Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Siemens IQ700 þvottavél WG56B2ALDN
Þvoðu fötin þín á stuttum tíma með Siemens iQ700 þvottavél WG56B2ALDN með i-Dos sjálfvirkri skömmtun og hljóðlátum iQdrive kolalausum mótor. Einnig er þvottavélin með varioSpeed sem sker niður tíma kerfis um allt að 65%.
Þvottakerfi
Þvottavélin þvær allt að 10 kg af þvotti í einu og er því hentug fyrir stærri heimili.
i-Dos
Þessi eiginleiki vélarinnar skammtar þvottaefni eftir þörfum hverju sinni og hjálpar þér þannig að spara bæði þvottaefni og minnkar vatnsnotkun.
iQdrive
Hjartað í þessari þvottavél er Kolaus iQDrive mótor sem er hljóðlátur, endingargóður með 10 ára ábyrgð.
SpeedPack XL
Þú getur valið um að 59, 30 eða 15 mín kerfi eða stillt tímann eftir þínum þörfum.
varioSpeed
Með varioSpeed eiginleikanum getur þú aukið hraða þvottakerfisins um allt að 65%.
WaterPerfect Plus
Í þvottavélinni eru skynjarar sem passa að þvottavélin fái alltaf ákjósanlegt magn af vatni, jafnvel fyrir minni þvott.
Bylgjulaga áferð
Tromlan er með bylgjulaga áferð sem þvær þvottinn á einstaklega mildan máta. Einnig er tromlan með LED lýsingu svo engin þvottur verður skilin eftir.
LED skjár
Snertiskjárinn gefur þér góða yfirsýn yfir allar mögulegar stillingar.
Uppsetning
Hægt er að nota gúmmífætur undir vélina til að styðja betur við hana og gera hana enn hljóðlátari. Einnig er hægt að kaupa sérstakan stöflunarrekka ef óskað er eftir því að setja aðra vél ofaná. Hafa ber í huga að báðar vélarnar þurfa að vera í sömu stærð ef þær eiga staflast ofan á hvor aðra.
ATH! Þarf að hafa það í huga að reglulega þarf að þrífa tromluna sem kemur í veg fyrir vonda lykt og myglu. Nóg er að sótthreinsa tromluna með því að stilla vélina tóma á 85-90 gráða þvott.