Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Tacx Flow Smart T2240 hjólaþjálfi

T224061
Hjólaðu heima af ákafa með Flow Smart T2240 æfingatæki. Tækið tengist við smáforrit á borð við Zwift, Tacx, Strava og TrainerRoad. Auðvelt er að setja upp tækið og einnig er einfalt að ganga frá því.
Einfalt í uppsetningu
11,8 kg tregða
Allt að 6% halli
Virkar með smáforritum
Zwift, Tacx, TrainerRoad, Strava
59.994 kr.
Upplýsingar

Traust æfingatæki
Flow Smart er hannað til að veita áreiðanlegan, nákvæman og stöðugan hraða, mótstöðu og takt án notkun utanaðkomandi skynjara.

Raunverulegur hjólahermir
Þrátt fyrir fyrirferðalítið kasthjól nær Flow Smart að líkja eftir 11,8 kg tregðu. Einnig líkir hjólið eftir brekkum við allt að 6% halla. Þannig fær maður sömu tilfinningu og við að hjóla utandyra.

Hannað með endingu í huga
Þó æft sé af miklum ákafa er Flow Smart gert til að endast og haldast stöðugt. Með tveimur auðveldum handtökum smellist hjólið í stað.

Hljóðlátt
1,6 kg kasthjól með kjarna úr mjúku plasti sem deyfir titring. Flow Smart er því einstaklega hljóðlátt.

Virkar með æfingaforritum
Notaðu smáforrit til að nýta Flow Smart til fulls. Hjólaðu um í sýndaveruleika með Zwift eða notaðu t.d. Strava eða TrainerRoad smáforritin til að gera æfingarnar þínar snjallari.

Þjálfaðu eftir eigin plani
Með Tacx hugbúnaði er hægt að setja upp æfingaplön sem hentar þér og mæta þínum kröfum og markmiðum. Einnig er gott úrval af hágæða myndefni sem hermir eftir hraðanum þínum. Hvort sem það eru bröttu brekkur Alpafjallanna eða hellusteinsgötur Mílanó. Farðu í kapp við aðra notendur eða þjálfaðu með sýndaræfingafélögum. Tengdu Strava aðganginn þinn við Flow Smart og hjólaðu um í þrívídd eða hannaðu þínar eigin æfingar eftir halla, þrótt, hjartslætti eða FTP sem mælir afl í vöttum á klukkustund. En ef þessir snjöllu eiginleikar eru aukið flækjustig fyrir þig þá er hægt að nota Flow Smart án notkun hugbúnaðar.

Eiginleikar
Almennt
Strikamerki
8714895058542
Framleiðandi
Tacx
Stærð (HxBxD)
41 x 67,5 x 65 cm
Þyngd (kg)
9.4
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður