Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Tacx NEO 2T hjólaþjálfi

T287561
Tacx NEO 2T hjólaþjálfinn er kröftugur, hljóðlátur og nákvæmur til að gefa þér raunverulega hjólaupplifun.
Hljóðlátt
125 kg tregða
Allt að 25% halli
Virkar með smáforritum
Hægt að nota án rafmagns
2200W
229.994 kr.
Upplýsingar

Tacx Trainer NEO 2T hjólaþjálfinn er fjölhæfur, öflugur og áreiðanlegur. Með nákvæmni og þægindi í huga, þessi þjálfi sér til þess að veita þér frábæra hjólaæfingu sem hermir á marga mismunandi vegu eftir ekta hjólreiðaferð.

Hljóðlátur
Endurhannaðir seglar veita töluvert stöðugri notkun sem dregur greinilega úr hávaða við æfingu sem gerir hann einstaklega hljóðlátann.

Þægilegri hreyfing
NEO 2T bregst strax við hraða- og hallabreytingum sem leyfir þér að hjóla til beggja hliða og þjálfinn aðlagar sig að náttúrulegri stefnu og hreyfingum líkamans.

Breytileg tregða
Til að líkja betur eftir hjólatúr er breytilega tregða sem tekur þyngd, hraða og halla í reikninginn til að gera hjólaþjálfann ennþá raunverulegri.

Víbringur
Með notkun Tacx forritsins eða Zwift smáforrits er hægt að láta hjólaþjálfann víbra og líkja þannig eftir mismunandi gerðum af vegum t.d. malarveg eða hellustein.

Öflugur mótor
NEO 2T er með nýja hönnun á mótor sem veitir meiri kraft við lægri hraða sem gerir hjólaþjálfann betri í að líkja eftir halla og hröðun.

Náðu miklum hraða
32 innbyggðir neodymium seglar veita mikinn hraða og öfluga bremsugetu. NEO 2T er einstaklega stöðugt jafnvel þegar hjólað er á miklum hraða, allt að 2200W.

Mikill halli
Gerðu æfinguna krefjandi með meiri halla. Hægt er að herma eftir allt að 25% halla.

Nákvæmur og áreiðanlegur
Haltu þínu striki og fylgstu með árangri með nákvæmum og stöðugum mælingum. Hraði, afl og taktur við æfingu mælist innan við 1%.

Virkar vel með öðrum tækjum
NEO 2T á samskipti við önnur tæki með Bluetoothm, ANT+ og FE-C. Þannig er hægt að nota hjólaþjálfann með mörgum mismunandi smáforritum og æfingahugbúnaði á borð við TrainerRoad og Zwift.

Frábær einn og sér
Ef þú vilt nota tækið eitt og sér án þess að tengja við rafmagn þá er það lítið mál. Þegar þjálfinn er ótengdur hermir hann eftir flötum vegi og því hraðar sem hjólað er, því meira viðnám myndast.

Tacx æfingaforrit
Með Tacx hugbúnaði er hægt að setja upp æfingaplön sem hentar þér og mæta þínum kröfum og markmiðum. Einnig er gott úrval af hágæða myndefni sem hermir eftir hraðanum þínum. Hvort sem það eru bröttu brekkur Alpafjallanna eða hellusteinsgötur Mílanó.

 

Eiginleikar
Almennt
Strikamerki
8714895058405
Framleiðandi
Tacx
Annað
Hægt að brjóta saman
Litur
Svartur
Stærð (HxBxD)
55 x 57,5 x 75 cm
Þyngd (kg)
21.5
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður