Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
TCL 43" P631 VA sjónvarp (2023)
TCL 43" P631" 4K VA snjallsjónvarpið er með nútímalega og nánast rammalausa hönnun. iPQ 2.0 Engine og HDR10 tryggja frábær myndgæði á meðan Dolby Atmos bætir hljómgæðin. Google TV veitir þér aðgang að fjölda efnis með sérstillum meðmælum sem hægt er að stjórna með röddinni einni með innbyggðum Google Assistant. Talþjóninn er hægt að nota sem skilvirka fjarstýringu og er samhæfur snjallheimilinu.
iPQ 2.0 Engine
iPQ 2.0 Engine er háþróaður örgjörvi sem bætir mynd og hljóð ásamt því skila frábærum krafti og frammistöðu fyrir snjallsjónvarpið. Allt myndefni er unnið í rauntíma til að skala upp hljóð og mynd miðað við umhverfi. Þetta skilar sér í bættum litum og skýrari mynd ásamt betri hljóm sem vinnur gegn hljóðtruflunum miðað við hljóðstyrk.
HDR10
HDR10 færir þér líflegt efni, þar sem birta er stillt til að ná skarpari og raunverulegri smáatriðum. Þetta tryggir að dökk myndsvæði líti dekkri út og björt svæði líta enn bjartari út. Upplifðu raunsærri mynd með fleiri litum og tónum og láttu sjónvarpsupplifunina verða enn raunsærri.
Dolby Atmos
Dolby Atmos hringóma hljómsniðið opnar nýjan heim með þrívíddar hljóðtækni sem fyllir stofuna af lifandi tónlist.
Google TV stýrikerfi
Stýrikerfi sjónvarpsins er Google TV. Þú færð greiðan aðgang að alls kyns snjallforritum (e. apps), þar á meðal Sjónvarpi Símans, beint í gegnum sjónvarpið og einnig uppástungum byggt á þínum Google aðgangi. Með þessum uppástungum er líklegra að meiri tími fari í að njóta skemmtunarinnar frekar en að leita hennar, hvort sem um ræðir kvikmyndir, myndbönd, tónlist, leikir og margt fleira.