Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
TCL 98" C735 QLED sjónvarp (2022)
TCL C735 QLED snjallsjónvarpið er nútímalegt og flott 98" sjónvarp með Quantum Dot tækni í 4K UHD myndgæðum. Þökk sé HDR tækni býður sjónvarpið upp á yfir milljarð lita og Dolby Atmos veitir enn betri upplifun. Google TV stýrikerfið gefur þér fullkomna stjórn og aðgang að fjölda streymisveita og forrita sem er auðveldlega hægt að stýra með raddstýringu. Þökk sé 120 Hz endurnýjunartíðni er tækið tilvalið til leikjaspilunar og býður einnig upp á ALLM, VRR og AMD FreeSync Premium.
Quantum Dot tækni
Quantum Dot er nanóagna sía sem gerir það að verkum að myndin lítur jafn vel út frá öllum sjónarhornum. QLED tækin henta betur við bjartari aðstæður. Þau eru því t.d. frábær til að horfa á fótboltaleiki um miðjan dag. Þó að sólin skíni skært, þá helst myndin skýr og björt á QLED tæki.
4K HDR (High Dynamic Range) Pro Picture
Með hjálp endurnýjunartíðninnar sér HDR um að dekkri hlutar myndarinnar verði enn dekkri og bjartari hlutarnir bjartari. Þú færð því meiri birtuskil og litbrigði í mynd.
Dolby Atmos og Dolby Vision
Upplifðu kvikmyndahús að heiman. Með Dolby Atmos og Dolby Vision færð þú mynd og hljóðgæði sem aldrei fyrr. Tækið aðlagar sig að umhverfislýsingunni í herberginu og stillir sig eftir því til þess að veita þér sem bestu myndgæðin. Dolby Atmos hljóðtæknin hreinlega umlykur áhorfendur þannig að þér líði eins og þú standir í miðjum hasarnum.
Google TV stýrikerfið
Stýrikerfi sjónvarpsins er Google TV. Þú færð greiðan aðgang að alls kyns snjallforritum (e. apps), þar á meðal Sjónvarpi Símans, beint í gegnum sjónvarpið og einnig uppástungum byggt á þínum Google aðgangi. Með þessum uppástungum er líklegra að meiri tími fari í að njóta skemmtunarinnar frekar en að leita hennar, hvort sem um ræðir kvikmyndir, myndbönd, tónlist, leikir og margt fleira.
Tilbúið í leikina
Fáðu meira út úr stóra skjánum með frábærum hljóð- og myndgæðum. Með HDMI 2.1 gerir tækið þér kleift að ná yfirburðum yfir mótspilurunum og 120 Hz endurnýjunartíðnin veitir frábæra upplifun. Sjálfvirk Low Latency stilling, VRR (Variable Refresh Rate) og AMD FreeSync Premium er einnig til staðar.
Onkyo hljóðkerfi
Í tækinu er að finna hljóðkerfi frá Onkyo. Hljóðkerfið tryggir að hver einasta nóta sé tær og skýr, hvort sem um sé að ræða háværar sprengingar eða hvíslandi tal.
Uppsetning
Ertu ekki viss hvar á að setja nýja sjónvarpið? Við eigum mikið úrval af veggfestingum sem geta hjálpað þér að finna það sem hentar þér og þínu heimili. Fótur fylgir sjónvarpinu.
Snúrur og fylgihlutir
Ef þú ætlar að tengja sjónvarpið við afruglara, leikjatölvu eða heimabíó þarf að passa að réttu snúrurnar eru til staðar. Þú finnur hljóð- og myndsnúrur í ELKO.