Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

The Quarry (PS4)

PS4THEQUARRY
Það er sólsetur, og flokksstjórarnir í Hackett's Quarry sumarbúðunum eru að halda partý. Engir krakkar, engir fullorðnir og engar reglur. Hlutirnir eru ekki lengi að fara úr böndunum og snúa til hins verra. Vinátta og döðrun umbreytist í líf-eða-dauða ákvarðanir og sambönd byggjast upp eða brotna eftir því hvaða ákvarðanir þú tekur.
Supermassive Games
Fyrir PlayStation 4
Hryllings leikur
Fyrir 18+ ára
7.494 kr.
Þessi vara er hætt í sölu og kemur ekki aftur
Upplýsingar

Sólin er að setjast yfir Hackett's Quarry sumarbúðunum og flokksstjórarnir ákveða að halda partý. Engir krakkar, engir fullorðnir og engar reglur!

Hlutirnir eru ekki lengi að fara úr böndunum. Blóðþyrstir heimamenn í samvinnu við eitthvað mun, mun verra eru á veiðum eftir unglingunum. Partýið fer úr því að vera skemmtun yfir í nótt fulla af ófyrirsjáanlega hryllinga. Vinalegum samtölum og döðrun er skipt út fyrir líf-eða-dauða ákvarðanir og sambönd brotna undan þunga óhugsandi valmöguleika.

Spilaðu sem hver unglingur á fætur öðrum í þessari spennandi, kvikmyndalegu sögu þar sem hver og ein ákvörðun mótar einstaka sögu frá vef möguleika. Hver og ein persónan getur orðið hetjan í sögunni eða dáið áður en sólin rís.

Þú getur einnig sérsniðið Hackett's Quarry með því að velja eina af þremur síum sem líkja eftir frægum áhrifum hryllingsmynda forðum daga.
- 8 mm stíll
- Retro VHS stíll
- Svart/hvítur stíll

Þín saga, þín örlög
Þoriru að kíkja bakvið hurðina? Ætlaru að rannsaka öskrin úr skóginum? Myndir þú bjarga vini þínum eða flýja með líf þitt? Hver einasta ákvörðun, hvort sem stór eða lítil, mótar söguna og ákvarðar hver deyr og hver lifir.

Spilaðu með vinum
Spilaðu með allt að 7 vinum yfir netið þar sem allir geta fylgst með og kosið á lykil augnablikum. Ef einhver í hópnum vill frekar horfa en að spila þá er Movie Mode fyrir þann aðila. Leikurinn sýnir helstu atriði eins og í alvöru bíómynd!

 

Eiginleikar
Tölvuleikir
Strikamerki
5026555432320
Fyrir hvaða tölvu
PlayStation 4
Tegund leiks
Hryllingsleikir
Aldurstakmark (PEGI)
18
Leikjahönnuður
Supermassive Games
Útgefandi
2K Games
Útgáfuár
2022
Netspilun
Samanburður