Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Vampire: The Masquerade - Swansong (SWI)

SWIVAMPIREMS
Spilaðu sem þrjár vampírur, notaðu krafta þeirra skynsamlega og finndu jafnvægið á milli þess að vera mannlegur eða skepna í þessari blóðugu og hjartnæmu sögu þar sem val þitt mun ákvarða örlög Boston.
Big Bad Wolf
Fyrir Nintendo Switch
Hlutverkaleikur
Fyrir 18+ ára
7.994 kr.
Upplýsingar

Vampire: The Masquerade - Swansong er frásagnar hlutverkaleikur byggður á World of Darkness heiminum. Spilaðu sem þrjár vampírur, notaðu krafta þeirra skynsamlega og finndu jafnvægið á milli þess að vera mannlegur eða skepna í þessari blóðugu og hjartnæmu sögu þar sem val þitt mun ákvarða örlög Boston.

Velkomin í World of Darkness
Hvað ef vampírur væru raunverulegar? Hvað ef þessi blóðþyrstu rándýr væru á meðal okkar og hefðu skipulagt samsæri í þúsundir ára? Og hvað ef þú værir ein af þeim? Í Vampire: The Masquerade spilar þú sem þessi áhugaverðu skrímsli í fáguðum heimi þar sem erfitt er að greina á milli hvað er raunverulegt og hvað er yfirnátturulegt.

Blóðugur reyfari
Hazel Iversen sem er einnig þekkt sem "The Swan", er nýji prins Boston Camarilla. Hún er járnhnefi í flauelhanska og ætlar að verja valdið sitt og halda í "The Masquerade", vampírulög sem passa að mannfólk muni aldrei komast að því að vampírur eru raunverulegar. En ekkert er það einfalt. Orðrómar um samsæri, morð og valabaráttur er allt sem þú hefur í höndunum til að vinna með. Til að vernda söfnuðinn þinn þarftu að vinna í skugganum og steypa þér í rannsókn sem sendir Boston í ringulreið.

Spilaðu sem 3 vampírur
Spilaðu sem 3 vampírur sem eru yfir hundrað ára gamlar og sjáðu hvernig örlög þeirra samtvinnast. Hver vampíra hefur sína eigin hæfileika sem þú getur uppfært eftir þínu höfði hvort sem það er að ógna, tæla eða með laumuspili. Það er þitt val, svo lengi sem þú nærð að svala blóðþorstanum þínum.

Leikur með afleiðingar
Með sinni einstöku leikjaspilun leggur Swansong áherslu á afleiðingar gjörða þinna hvort sem það er í rannsóknum eða í samskiptum við aðrar persónur. Greindu aðstæðurnar varlega því að þínar ákvarðanir geta haft miklar afleiðingar fyrir söguhetjurnar og örlög Boston Camarilla.

Eiginleikar
Tölvuleikir
Strikamerki
3665962012408
Fyrir hvaða tölvu
Nintendo Switch
Tegund leiks
Hlutverkaleikir
Leikjahönnuður
Big Bad Wolf
Útgefandi
Nacon
Útgáfuár
2023
Samanburður