Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Weber Spirit E-325s GBS gasgrill

E325SSPIR
Byrjaðu daginn með fersku beikoni og endaðu hann með ógleymanlegri máltið. E-325s grillið er samhæft GBS aukahlutum og iGrill 3.
3 + 1 brennarar
60 x 44 cm grillflötur
Flavorizer Bars
9,38 kW + 2,2 kW
4 hjól, 2 læsanleg
2 hliðarborð
119.995 kr.
Upplýsingar

Spirit E-325s GBS er uppfærsla á klassísku Weber Spirit línunni. Grillið er með 3 ryðfríum brennurum og auka "Sear station" brennara ásamt innfeldum gráðuhitamæli í lokinu. Spirit E-325s GBS er eins og nafnið gefur til kynna með GBS pottjárns grillgrindur sem gera ráð fyrir alls konar aukahlutum, pottum og pönnum frá Weber sem hægt er að koma fyrir í grillgrindinni.

Gasgrill
Með gasi hefur þú meira vald á hitanum og getur því stýrt hitanum með meiri nákvæmni. Ýtir á einn takka og grillið er tilbúið til notkunar.

Rúmgóður flötur
60 x 44 cm grillflötur og 60 x 12 cm efri grind, meira en nóg fyrir þig og þína.

Óbein grillun
Þegar þrír eða fleiri brennarar eru í grilli er hægt að nýta grillflötinn einstaklega vel. Óbein grillun hentar þegar um stærri eða þykkari kjöt er um að ræða. Þá nærðu jafnara hitastig um bitann sem gerir hann mýkri og safaríkari. Ef stærri bitar eru eldaðir beint undir eldi er hætta á vökvatapi og bruna.

Hliðarborð
Hliðarborð auka þægindi við grillun, auðvelt að umgangast grillið þannig þú átt ekki að þurfa að hlaupa inn með diska eða áhöld.

Flavorizer bragðburstir
Grillið er útbúið bragðburstum sem grípa vökva og olíur úr matnum og reykir þær til þess að viðhalda ekta reyktu grillbragði.

Innbyggður hitamælir í loki
Hafðu betri umsjón með grillinu og matnum með hitamælinum sem er innbyggður í lokið.

Þrif
Heilsa grillsins byggist á þrifum. Þrífðu grillið fyrir notkun. Kveiktu á öllum brennurum við háan hita og láttu standa í 10 mínútur. Föst fita, olía eða matarleifar kolast við hitann og einfaldar þrif á grilli. Svo þegar að grindin er orðin köld er hægt að nota burstan á hana til að ná auðveldlega burst óhreinindum.

Þrýstijafnari með grilli er ekki fyrir smellugas.

Eiginleikar
- 3 ryðfríir brennarar: 9,38 kW
- Auka brennari „Sear Station“ 2,2 kW/h
- Rafstýrður kveikjari
- Pottjárns grillgrindur – „BBQ system“
- Ryðfrítt stál í bragðburstum(Flavorizer® bars)
- Postulín-glerungshúðað lok – svart
- Þykk álsteypa í botni og hliðum í loki
- Innfeldur gráðuhitamælir í loki
- Ryðfrítt stál í hliðarborðum
- Grillflötur: 60cm x 44cm
- Efri grind: 60cm x 12cm
- 4 hjól, 2 læsanleg
- 2 áhaldakrókar
- Skápur með hurð
- Fitusafnari og álbakki fyrir fitu
- Heildar utanmál (með lok opið): H:115,6cm (160cm) B:132cm D:61cm (81,3cm)

Eiginleikar
Grill og aukahlutir
Strikamerki
0077924161957
Framleiðandi
Weber
Grill og aukahlutir
Gasgrill
Litur
Svartur
Fjöldi brennara
3
Grillflötur (cm)
60 x 44
Grillgrind í loki
Hliðarborð
2
Brennari á hliðarborði
Nei
Hitamælir í loki
Efni
Álsteypa
Stærð (HxBxD)
115,6 x 132 x 61 cm
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður