Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Weber Spirit EPX-325s gasgrill - Svart

WE46713584
Weber Spirit EPX-325s er eitt snjallasta gasgrillið á markaðnum. Með innbyggðum hitamælir fyrir kjötið og niðurtalningu færð þú tilkynningar þegar að kjötið er komið á akkúrat rétt hitastig til þess að snúa því við eða reiða fram með listum. Grillið kemur útbúið Weber „Sear Zone“ tækni og er með bæði „GBS (Gourmet BBQ System)“ pottjárns grillgrindur sem taka á móti allskonar aukahlutum og „Flavorizer® bars“ bragðburstir.
GBS, Flavorizer, Sear Zone
3 ryðfríir brennarar
Grillflötur 61 x 45 cm
9,38 kW
„Weber Connect Smart“ snjalltækni
Rafstýrður kveikjari
139.995 kr.
Upplýsingar

Weber Spirit EPX-325s er eitt snjallasta gasgrillið á markaðnum. Reiddu fram hina fullkomunu steik hvort sem þú villt hafa hana medium-rare eða well-done. Grillið notar „Weber Smart Connect“ snjallhitamælir sem er í senn kjöthitamælir og hefðbundinn stafrænn hitamælir. Það gefur þér skref-fyrir-skref leiðbeiningar svo að þú getur verið áhyggjulaus og boðið upp á æðislegan mat. Einnig er grillið útbúið „Sear Zone“ aukabrennara, „Gourmet BBQ System (GBS)“ pottjárns grillgrindum og „Flavorizer® bars“ bragðburstum úr ryðfríu stáli.

Smelltu hér fyrir yfirbreiðslu.

Gasgrill
Með gasi hefur þú meira vald á hitanum og getur því stýrt hitanum með meiri nákvæmni. Ýtir á einn takka og grillið er tilbúið til notkunar.

Weber Connect Smart snjallhitamælir
Á grillinu er að finna innbyggðan snjall grillhitamælir sem er bæði hefðbundinn hitamælir og kjöthitamælir í senn. Mælirinn er bæði Wi-Fi og Bluetooth tengdur, getur þú því grillað áhyggjulaus.

Sear Zone aukabrennari
Í grillinu er auka Sear Zone brennari sem að eykur hitann á afmörkuðu svæði grillsins til þess að læsa inni bragði og vökva.

Flavorizer bragðburstir
Grillið er útbúið bragðburstum sem grípa vökva og olíur úr matnum og reykir þær til þess að viðhalda ekta reyktu grillbragði.

GBS Gourmet BBQ kerfi
Gourmet BBQ kerfið frá Weber gefur þér möguleikann á því að bæta fjöldan öllum af aukahlutum við grillupplifunina, hvort sem þér langar að grilla pizzu, henda í sjávarrétta matseðil með pönnu eða grilla heilan kjúkling.

Rúmgóður grillflötur
61 x 45 cm grillflötur, meira en nóg til að elda ofan í gestina. Einnig er 56 x 12 cm efri grind svo þú getur haldið tilbúnum mat heitum.

Hliðarborð
Hliðarborð auka þægindi við grillun, auðvelt að umgangast grillið þannig þú átt ekki að þurfa að hlaupa inn með diska eða áhöld. Úr ryðfríu stáli.

Hjól
Þar sem grillið er á hjólum er auðvelt að hreyfa það til og koma því fyrir þar sem þú vilt hafa það.

Þrif
Heilsa grillsins byggist á þrifum. Þrífðu grillið fyrir notkun. Kveiktu á öllum brennurum við háan hita og láttu standa í 10 mínútur. Föst fita, olía eða matarleifar kolast við hitann og einfaldar þrif á grilli. Svo þegar að grindin er orðin köld er hægt að nota burstan á hana til að ná auðveldlega burst óhreinindum.

Þrýstijafnari með grilli er ekki fyrir smellugas.

Eiginleikar
- 3 ryðfríir brennarar: 9,38 kW
- Sear Zone brennari: 2,2 kWh
- Pottjárns grillgrindur
- Postulín-glerungshúðað lok
- Weber Connect Smart snjall grillhitamælir
- Ryðfrítt stál í bragðburstum (Flavorizer® bars)
- Þykk álsteypa í botni og hliðum í loki
- Ryðfrítt stál í hliðarborðum
- Skápur með svartri hurð
- Grillflötur: 61 x 45 cm
- Efri grind: 56 x 12 cm
- 4 hjól, 2 læsanleg
- 2 áhaldakrókar
- Gaskútahlíf
- Fitusafnari og álbakki fyrir fitu
- Heildar utanmál með lok opið (HxBxD): 160 x 132 x 81,3 cm

Eiginleikar
Grill og aukahlutir
Strikamerki
0077924161506
Framleiðandi
Weber
Grill og aukahlutir
Gasgrill
Litur
Svartur
Fjöldi brennara
3+1
Grillflötur (cm)
61 x 45
Grillgrind í loki
56 x 12 cm
Hliðarborð
2
Brennari á hliðarborði
Nei
Hitamælir í loki
Efni
Álsteypa
Þrýstijafnari og slanga
Fylgir með
Stærð (HxBxD)
115,6 x 132 x 61 cm
Þyngd (kg)
55.8
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður