Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
XTRFY M4 leikjamús
M4 RGB leikjamúsin frá Xtrfy er tilvalin fyrir hasarleiki. Músin er með hágæða skynjara, öflugum örgjörva og mismunandi stillingar sem henta hvaða spilara sem er.
Innviði músarinnar
ARM 32-bit micro stýring sem tryggir nákvæmni og stöðugleika. Einnig er Pixart 3360 skynjari sem bíður upp á stillanlegt CPI, allt frá 400-12.000 CPI fyrir enn meiri nákvæmni.
Þyngd
Sterkbyggð hönnun sem vegur aðeins 73g. Þessi nýtískulega götótta hönnun hefur að geyma innbyggða Omron rofa sem þola allt að 20 milljón klikk án þess að missa af einu skoti. Leikjamúsin var hönnuð til þess að minnka þreytu í úlnlið, jafnvel eftir langa leikjaspilun.
Tenging
Músin er með USB tengi og Ezcord snúru sem er sérhönnuð til þess að vera sveigjanleg og létt til að hún þvælist ekki fyrir á meðan spilað er.
RGB lýsing
Hægt er að stilla lýsinguna beint í gegnum músina sjálfa. Stillingarnar bjóða upp á mismunandi liti, þemu og jafnvel slökkva á lýsingunni.
Aðrir eigileikar
- Stillanleg tíðni: 125-1000Hz
- 250 IPS hraði
- 100% PTFE undirlag með rúnuðum endum fyrir minni mótstöðu
- Ryk- og vatnsskvettu húðun