Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Vafrakökustefna ELKO

Skilmálar ELKO um notkun á vafrakökum (e. „cookies“)

1. Hvað eru vafrakökur?

Vafrakökur eru agnarsmáar textaskrár sem eru geymdar í vafraranum þínum. Vafrakökur eru notaðar í margvíslegum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsíðna, til greiningar á notkun vefsíðna og til að beina auglýsingum til ákveðinna hópa eða einstaklinga. Vafrakökur geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar.

2. Notkun ELKO á kökum

Með því að samþykkja skilmála ELKO um notkun á vafrakökum er ELKO m.a. veitt heimild til þess að:

  • Bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna,

  • Að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum,

  • Að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar,

  • Að birta notendum auglýsingar

ELKO notar einnig þjónustur frá þriðja aðila til að greina umferð um vefinn, mæla virkni auglýsinga og til að birta gestum sérsniðnar auglýsingar. Til dæmis má nefna Google Analytics frá Google og Facebook Pixel frá Facebook. Analytics og Pixel safna upplýsingum nafnlaust og gefa skýrslur um þróun á vefsvæðum án þess að greint sé frá stökum notendum eða persónuupplýsingum. Google Analytics og Facebook Pixels notar sínar eigin kökur til að fylgjast með samskiptum gesta við vefsvæði. Á grundvelli þess áskilur ELKO sér rétt til að birta notendum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi þessara þriðju aðila.

3. Geymslutími

Kökur frá ELKO eru geymdar í allt að 24 mánuði frá því að notandi heimsækir vefsvæði ELKO.

4. Slökkva á notkun á kökum

Notendur geta og er ávallt heimilt að stilla vafrann sinn þannig að notkun á kökum er hætt, þannig að þær vistast ekki eða vefvafrinn biður um leyfi notenda fyrst. Slíkar breytingar geta dregið úr aðgengi að tilteknum síðum á vefsvæðinu eða vefsvæðinu í heild sinni og getur haft neikvæð áhrif á heildarvirkni.
Leiðbeiningar um hvernig megi slökkva á kökum eða breyta stillingum um vafrakökur má finna á vefsíðu þíns vafra eða www.allaboutcookies.org.

Notendur geta einnig stillt og stýrt vafrakökum sínum á elko.is með því að smella á tannhjól sem er sýnilegt neðst í vinstra horni á vefsíðuðunni.

5. Meðferð ELKO á persónuupplýsingum

Þegar þú notar vefviðmót okkar söfnum við jafnframt persónuupplýsingum með vefkökum (e. cookies), IP-tölum og öðrum upplýsingum tengdum tækinu sem þú notar (s.s. gerð vélbúnaðar, útgáfu stýrikerfis o.þ.h.). Þú getur valið hvort þú kýst að gefa okkur þessar upplýsingar. Sjá nánar í Persónuverndarstefnu ELKO.

Samanburður