Afhendingarstaður sem hentar þér
Þú getur fengið vöruna senda á afhendingarstaði Dropp, í póstbox, í pósthús eða fengið heimsent á þeim póstnúmerum sem það er í boði. Einnig er hægt að velja að sækja smávörur í verslanir ELKO á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri.
Til að geta verið með úrvalsþjónustu leitast ELKO við að vera með marga möguleika fyrir bæði afhendingar og sendingar. Hér að neðan má sjá þá helstu möguleika sem í boði eru.
Heimsending á stærri tækjum
Hægt er að fá heimsendingu á stórum heimilistækjum (t.d. kæliskápum, þvottavélum, sjónvörpum) á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Vörur eru afhendar í notkunarrými ef aðstæður leyfa, en bílstjóri sér hvorki um tengingar né frágang tækja.
Verð fyrir eitt heimilistæki: 9.995 kr.
Verð fyrir tvöfaldan ísskáp eða tvö eða fleiri heimilistæki: 13.995 kr.
Afhendingartímar eru á milli 12:00-15:00 og 16:00-21:00 virka daga, eða 16:00-21:00 um helgar. Nánari upplýsingar má sjá í lista afhendingarmáta fyrir neðan.
Heimsending, uppsetning og förgun
Gildir á höfuðborgarsvæðinu. Flutningsaðili verður í samskiptum við kaupanda til að finna tíma fyrir heimsendingu og afhendingu - yfirleitt næsta virka dag eftir kaup.
Heimsending á vöru, Taka niður eldri vöru, Uppsetning á vöru, Förgun á eldri vöru og á umbúðum
Verð fyrir eitt heimilistæki: 39.995 kr.
Verð fyrir tvö heimilistæki: 49.995 kr.
Verð fyrir þrjú heimilistæki: 69.995 kr.
Verð fyrir tvöfaldan ísskáp: 59.995 kr.
Nánari skilgreining á þjónustu:
Uppsetning felur ekki í sér breytingar á lögnum eða rafmagni.
Rafmagn, vatnsinntak og -úttak þarf að vera til staðar á uppsetningarstað.
Verðið er fast, óháð því hvort gamalt tæki er til staðar eða ekki.
Þjónustan er ekki í boði um helgar og að afhending getur tekið 1–2 daga, sérstaklega við mikla eftirspurn.