ELKOELKO
ELKOELKO

Tengdu ELKO við gervigreind

Tengdu uppáhalds gervigreindarforritin þín við ELKO. Það er auðvelt að tengja elko.is við forrit eins og ChatGPT og Claude.

Hvað get ég gert?

Án þess að tengja reikninginn þinn

Vörulistinn er opinn. Gervigreindin getur leitað að vörum, sagt þér verð og hvort varan sé til, borið saman vörur og sýnt þér verðsögu, til dæmis hvenær varan var síðast á tilboði.

Þegar þú tengir reikninginn þinn

Forritið sér líka þín eigin gögn: körfuna, pantanirnar, óskalistann og vöruvaktanir. Þú getur beðið um að bæta vörum í körfuna, á óskalistann eða skrá vöktun þegar vara er uppseld.

Svona tengir þú

Claude

  • Opnaðu Claude og farðu í Settings (stillingar) eða Customize.

  • Veldu Connectors og smelltu á Add og síðan Add custom connector, eða farðu á þessa slóð https://claude.ai/customize/connectors.

  • Veldu nafn, til dæmis „ELKO“, settu svo inn slóðina https://elko.is/mcp og staðfestu.

  • Veldu auðkenningu undir Authentication: Always required eða Required when the server asks ef þú vilt tengja ELKO-reikninginn þinn. None ef þig vantar bara vörulistann.

  • Ef þú valdir auðkenningu velur þú Use Claude’s published identity (Recommended).

  • Ef þú valdir auðkenningu skaltu skrá þig inn með rafrænum skilríkjum og samþykkja aðganginn.

  • Prófaðu að spyrja: „Hvað kostar Samsung þvottavél hjá ELKO?“

ChatGPT

Hægt er að sækja ChatGPT Plugin hér án innskráningar. Ef þú vilt tengja með innskráningu er hægt að fylgja þessum skrefum:

  • Farðu á https://chatgpt.com/plugins.

  • Ýttu á (+) takkann (New Plugin).

  • Veldu nafn (t.d. ELKO) og settu inn slóðina https://elko.is/mcp.

  • Veldu auðkenningu: OAuth ef þú vilt tengja ELKO-reikninginn þinn eða No Auth ef þig vantar bara vörulistann.

  • Ef þú valdir OAuth skaltu skrá þig inn með rafrænum skilríkjum og samþykkja aðganginn.

Því miður er ekki hægt að bæta við custom connector með ókeypis (Free) ChatGPT aðgangi að svo stöddu.

Önnur forrit

Forrit sem styðja ekki OAuth geta samt tengst þínum aðgangi með aðgangslykli. Búðu til lykil á https://elko.is/minar/adgangslyklar, veldu MCP-leyfi og sendu lykilinn með í hverju kalli. Leiðbeiningar eru á sömu síðu.

Vefþjónusta fyrir almenning

ELKO býður líka upp á vefþjónustu (API) fyrir vörulistann, körfuna, pantanir og óskalista.

Að sækja aðgangslykil krefst rafrænna skilríkja, svo þú þarft íslenskt auðkenni til að búa til aðgangslykil.

Stafrænn ráðgjafi ELKO