Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Staðsetningarkerfi í ELKO
Nú getur þú staðsett vörur í verslunum okkar. Staðsetning vara í verslunum er aðgengileg á vöruspjaldi hverrar vöru á elko.is. Taktu upp símann þinn, farðu á elko.is, finndu vöruna í leitinni og sjáðu staðsetningu vörunnar.
Staðsettu vöruna
Með því að smella á „Sjá staðsetningu í verslun“ á vefsíðu ELKO geta viðskiptavinir nú séð nákvæma staðsetningu vörunnar á korti innan verslunarinnar.
Láttu verðmerkinguna blikka
Til þess að auðvelda leitina enn frekar er hægt að velja um að láta verðmerkingu vörunnar blikka.
Hvernig virkar þetta?
Tæknin byggir á sendum í lofti verslunarinnar sem greina styrkleika merkja frá rafrænum hillumerkingum, sem tryggir allt að 95-99% nákvæmni í vöruleit. Viðskiptavinir geta staðsett vöruna með einum smelli og látið hillumerkinguna blikka ljósi til að auðvelda leitina enn frekar.
Í hvaða verslunum er þetta í boði?
Lausnin er nú þegar í boði í ELKO-verslunum í Skeifunni og á Granda og verður sett upp á Akureyri á næstu vikum. Í Lindum verður lausnin tilbúin þegar framkvæmdum þar lýkur í vetur.