ELKOELKO
ELKOELKO

ELKO Snjallgreiðslur

Nú geta neytendur fjármagnað kaupin sín með ELKO snjallgreiðslum á elko.is. Um er að ræða hefðbundin vaxtalaus neytendalán til 12 mánaða líkt og hefur verið boðið upp á í gegnum þriðja aðila til þessa. Allar upplýsingar um greiðsludreifingu og árlegan hlutfallslegan kostnað má sjá í lánareiknivél í kaupferli vöru á elko.is en hér að neðan má sjá almenna verðskrá fyrir neytendalán með ELKO snjallgreiðslum. Með ELKO snjallgreiðslum verður einnig hægt að velja 30 daga greiðslufrest án viðbótarkostnaðar.

Nánari upplýsingar

Verðlisti greiðsludreifingar

  • Lántökugjald: 5,5%

  • Afborgunargjald: 399 kr./mán

  • Greiðslugjald: 399 kr./mán

  • Gjöld eru því samtals 798 kr. á mánuði

  • Vextir af lánum allt að 12 mánuði: 0%

  • Vextir af lánum lengri en 12 mánuði: 16,5%

  • Lágmarksupphæð 8.990 kr.

Verðlisti greiðslufrests

  • 30 daga greiðslufrestur

  • 0% lántökugjald

  • 0 kr. greiðslugjöld

  • Lágmarksupphæð 8.990 kr.

  • Athugið að þessi verðskrá er tímabundin og getur tekið breytingum án fyrirvara

Annað

  • Uppgreiðslugjald lána: 0 kr.

Að sækja um neytendalán

Þegar sótt er um lánaheimild til töku neytendaláns með ELKO snjallgreiðslum í fyrsta skipti þarf að fara í gegnum stutt ferli sem felur í sér áreiðanleikakönnun og lánshæfimat sem er tengt við gagnagrunn Creditinfo. Að loknu ferlinu færð þú upp gefna lánaheimild sem kemur fram undir mínum síðum á elko.is. Þar munt þú einnig sjá yfirlit yfir stöðu lána. Verið er að vinna í því að neytendur geti greitt inn á lán, eða greitt upp lán inni á mínum síðum. Þangað til bendum við á að hafa samband á netfangið innheimta@elko.is.

Spurt og svarað varðandi neytendalán og 30 daga greiðslufrest

Nánari upplýsingar og svör við helstu spurningum

Hvernig greiði ég með ELKO snjallgreiðslum?

Get ég greitt upp lánið þegar ég vill án kostnaðar?

Get ég dreift greiðslum ef ég valdi greiðslufrest?

Hvar sé ég lánið mitt og stöðuna á því?

Hvað ef ég stenst ekki áreiðanleikakönnun?

Hvað ef ég fæ ekki lánshæfimat?

Stafrænn ráðgjafi ELKO