Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Skilmálar

Nr. 0502-2

Viðbótartrygging er vátrygging fyrir raftæki sem seld eru í verslunum ELKO. Vátryggingin tekur til innri bilana í raftæki sem framleiðsluábyrgð eða neytendalög ná ekki yfir, sem og skyndileg og ófyrirséð ytri tjón, þ.e. ytri skemmdir vegna óhappa. Allt samkvæmt nánari skilgreiningum í þessum vátryggingarskilmála. Sölu- og þjónustuaðili vegna þessarar vátryggingar eru verslanir ELKO á Íslandi. 

Orðið „félagið“ í þessum skilmála og tryggjandi þessarar vátryggingar er: 

 

Trygg-Hansa Försäkring 

106 26 Stockholm,  

org.nr. 516403-8662 

útibú frá Tryg Forsikring A/S,  

CVR-nr. 24260666,  

Klausdalsbrovej 601,  

DK-2750 Ballerup, Danmörk. 

Orðið „tjónsuppgjörsaðili“ í þessum skilmála á við um: 

 

Tryggingamiðlun Íslands ehf. 

Hlíðasmári 12 

201 Kópavogi 

Kt. 690597-2849 

414 6693 

www.tmi.is 

1. gr. Hið vátryggða

1.1 Vátryggingin tekur til tækis þess sem tiltekið er á vörureikningi þess, sem jafnframt er staðfesting á vátryggingu. Hún tekur ennfremur til fylgihluta þeirra sem fylgja tækinu í þeim umbúðum sem það er afhent í.    

1.2 Vátryggingin gildir eingöngu sé tæki til einkanota, þ.e. gildir ekki fyrir tæki sem notuð eru í atvinnu- eða rekstrarskyni.   

2. gr. Hinn vátryggði

2.1 Hinn vátryggði er kaupandi tækis hjá ELKO sem verður þá jafnframt eigandi þess og vátryggingartaki.  

2.2 Verði eigandaskipti að hinu vá­tryggða tæki á vátryggingar­tímabilinu gildir vátryggingin fyrir nýjan eiganda ef eiganda­skiptin eru lögmæt og tilkynning um þau er send til félagsins innan 14 daga frá því af þeim varð.  

3. gr. Bótasvið

Vátryggingin bætir tjón sem stafar af:  

3.1 skyndilegum og óvæntum göllum eða bilunum í innri virkni tækis, sem samningsbundin eða lögboðin ábyrgð nær ekki yfir. Með samnings­bundinni ábyrgð er átt við sérstaka ábyrgð fram­leiðanda eða seljanda tækis. Með lög­boðinni ábyrgð er átt við reglur neytanda-löggjafar varðandi ábyrgð seljanda.   

3.2 skyndilegum og óvæntum ytri tjónum, t.d. vegna óhappa í notkun, flutningi og geymslu.  Með ytri tjónum er átt við utanaðkomandi högg eða áföll sem tækið verður fyrir og veldur á því skemmdum.  

3.3 innbroti í læsta íbúð, sumarhús eða atvinnuhúsnæði. Það er skilyrði fyrir greiðsluskyldu félagsins að á vettvangi séu ummerki um innbrot og að lögreglu sé þegar í stað tilkynnt um innbrotið. Þessi vátrygging tekur ekki til innbrota í bifreiðar, hjólhýsi, vinnuskúra eða sambærilega staði.  

3.4 bilun í kælitæki, frystitæki, þvottavél eða þurrkara þannig að innihald þessara tækja skemmist. Þessi liður bótaskyldu gildir í eitt ár frá kaupdegi og hámarksbætur eru kr. 30.000 í hverju tjóni.  

4. gr. Undanþágur frá bótaskyldu

Vátryggingin bætir ekki eftirfarandi:  

4.1 Tjón sem stafa af eðlilegu sliti, rangri samsetningu, ónógu eða röngu viðhaldi. 

4.2 Tjón sem ekki hefur áhrif á notkun eða virkni tækis og eru í eðli sínu smávægileg, s.s. rispur, beyglur, form eða lita­breytingar og annað sambærilegt.  

4.3 Tjón eða bilun á rekstrarvörum í tækinu, s.s. rafhlöðum, ljósaperum, filmum, prenthausum, blekhylki eða sambærilegs. 

4.4 Tjón sem orsakast af rafrænum vírus eða bilun í hugbúnaði tækis.  

4.5 Vátrygging þessi bætir ekki neins konar óbein eða afleidd tjón, s.s. líkams­tjón, afnota­missi, afhendingar­drátt vöru, kostnað við að taka niður tæki eða setja upp né tjón á öðrum munum heldur en hinu vátryggða tæki, sbr. þó gr. 3.4.  

4.6 Tjón sem kaupréttarleg krafa tekur til, svo sem ábyrgð eða önnur skuld­binding framleiðanda, heild­sala, smá­sala, viðgerðarmanns eða annars aðila og fylgir tækinu við kaupin eða fylgir samkvæmt lögum, reglugerð eða ábyrgðaryfirlýsingum. 

4.7 Kostnað vegna eðlilegs viðhalds, stillinga eða sambærilegrar þjónustu. 

4.8 Galla í Plasma, LCD eða LED skjá þar sem lítið magn pixla hverfur og er innan almennrar viðmiðunar­reglna eða vegna innbrenndrar myndar eða mynda á skjánum. 

4.9 Tjón sem verður er vátryggður gleymir, týnir eða skilur eftir hlut á almenningssvæði. 

4.10 Tjón sem stafa af kjarnorku, jónandi geislun, geislavirkum efnum, styrjöldum, borgarastríði, óeirðum eða þvingunaraðgerðum stjórnvalda. Þá bætir vátryggingin ekki tjón af völdum jarðskjálfta, eldgoss, skriðu­falla, snjó­flóða, sjávarflóða eða annarra náttúruhamfara. 

4.11 Tjón sem stafar af eldsvoða. Það telst ekki eldsvoði í skilningi þessarar greinar ef á hinu vátryggða tæki verða skemmdir sem stafa af bilun eða skammhlaupi í tækinu, s.s. sviðnun eða bráðnun.  

5. gr. Landfræðilegt gildissvið 

5.1 Vátryggingin gildir um allan heim.  

5.2 Uppgjör tjóna fer eingöngu fram á Íslandi.   

6. gr. Varúðarreglur

6.1 Vátryggðum og þeim sem sam­saga sig honum ber að fara eftir þeim varúðar­reglum sem félagið setur í þessum skilmála eða á vá­tryggingar­skírteini. Misbrestur á því getur leitt til skerðingar eða brottfalls bótaábyrgðar, skv. 26. gr. laga nr. 30/2004. 

6.2 Varúðarregla: Fylgja ber fyrir­mælum framleiðanda varðandi sam­setningu, notkun, vernd og viðhald hins vátryggða tækis.  

6.3 Varúðarregla: Sýna skal eðlilega aðgætni við vörslu hins vá­tryggða tækis, t.d. skilja það ekki eftir á svæði þar sem augljós hætta er á tjóni og ganga eðli­lega og skyn­samlega frá tæki við flutninga eða aðra meðhöndlun. 

6.4 Varúðarregla: Gæta skal þess að læsa tryggilega híbýlum eða öðrum geymslustað tækis þegar þessir staðir eru mannlausir, eða án eftirlits. Sjá til þess á allan skynsamlegan hátt að óviðkomandi eigi ekki greiðan aðgang að hinu vátryggða tæki.  

 

7. gr. Ásetningur og/eða stórkostlegt gáleysi

7.1 Ef tjón verður rakið til ásetnings hins vátryggða fellur bótaábyrgð félagsins niður.  

7.2 Valdi hinn vátryggði tjóni af stórkostlegu gáleysi getur það leitt til tak­mörkunar eða brott­falls bóta­ábyrgðar félagsins, skv. 27. gr. laga nr. 30/2004.  

8. gr. Vátryggingartímabil

UPPHAF OG LOK VÁTRYGGINGAR- IÐGJALDSGREIÐSLNA 

8.1 Vátryggingin tekur gildi um leið og tækið er keypt og greitt, þ.m.t. iðgjald fyrir vátrygginguna. Iðgjald vátryggingar skal allt greiðast fyrirfram.  

8.2 Vátryggingunni lýkur á miðnætti þess dags að liðnum fjölda mánaða eða keyptra ára (í vátryggingu) er liðin, miðað við mánaðardag.  

8.3 Heimilt er að segja upp vátryggingunni innan 30 daga frá kaupdegi tækis/vátryggingartöku. Verður þá iðgjald vátryggingarinnar endurgreitt að fullu. Uppsögn skal vera skrifleg og send á sömu verslun ELKO og tækið var keypt.

8.4 Vátryggingunni lýkur án endur­greiðslu iðgjalds, ef bótaskylt altjón verður á hinu vátryggða tæki og það er bætt með nýju tæki.  

 

9. gr. Tjónatilkynning - Skyldur hins vátryggða við tjón

9.1 Tjón skal tilkynna til Trygginga­miðlunar Íslands ehf., sími þjónustu­vers er 474-6671, eða gefa skýrslu á www.elko.is. Í tilfelli tjóns vegna innbrots skal hafa strax samband við lögreglu og tilkynna henni um atvikið. Afrit lögregluskýrslu skal svo fylgja tilkynningunni um tjónið til ofangreindra.  

9.2 Þegar það atvik, sem vátryggt er gegn, hefur gerst, eða hætta er á því að það gerist, ber vátryggðum skylda til þess að reyna að afstýra eða lágmarka tjónið. Hafi hinn vátryggði af þessum sökum orðið fyrir útgjöldum mun félagið endurgreiða þau að því leyti sem þau teljast réttlætanleg. Vanræksla í þessu efni getur valdið lækkun eða missi bóta, skv. 28. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga.  

9.3 Hinn vátryggði skal veita félaginu þær upplýsingar og þau gögn sem hann hefur undir höndum eða getur útvegað og félagið þarf til þess að meta ábyrgð sína og greiða bætur. Ef hinn vátryggði veitir af ásetningi rangar eða ófullnægjandi upplýsingar sem hann hefur vitneskju um og veit að muni leiða til þess að hann fær bætur, sem hann á ekki rétt á, fellur niður allur réttur hans samkvæmt vátryggingarsamningnum, sbr. 2. mgr. 47. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga. 

9.4 Hinn vátryggði glatar rétti til bóta ef hann tilkynnir ekki félaginu um kröfu sína innan árs frá því hann vissi um atvik sem bótakrafan er reist á. Ef félagið hafnar kröfu hins vátryggða í heild eða hluta glatar hann rétti til bótanna ef hann hefur ekki höfðað mál eða krafist meðferðar málsins fyrir Úrskurðarnefnd í vátrygginga­málum. Eða innan árs frá því hann fékk skriflega tilkynningu félagsins um að kröfu hans væri hafnað.  

 

10. gr. Uppgjör bóta

10.1 Vátryggingin greiðir sanngjarnan kostnað við viðgerð á hinu vátryggða tæki eða það er bætt með nýju tæki, sömu tegundar eða gerðar, eða ef það er ekki hægt, með sambærilegu tæki. Félagið áskilur sér rétt til að ákveða hvort gera skuli við tæki eða hvort það skuli bætt með nýju sambærilegu tæki. Vátryggðum ber að fara með hið vátryggða tæki á sinn kostnað til viðgerðaraðila sem ELKO bendir á eða samþykkir. Aldrei eru greiddar peningabætur sem uppgjör á tjónskröfu.  

10.2 Hámarksbætur sem vátryggingin greiðir fyrir viðgerðir eða útskipti á tæki, sbr. gr. 10.1, er sú fjárhæð sem tiltekin er sem kaupverð hins vátryggða tækis á upphaflegum reikningi þess. Í þeim tilfellum sem sambærilegt tæki er ekki fáanlegt hjá ELKO, eða að kaupverð slíks tækis er hærra en hins vátryggða tækis, er tjón gert upp með afhendingu inneignar­nótu í ELKO fyrir sömu fjárhæð.  

10.3 Ekki er dregið frá tjónskröfu verðmætarýrnun sökum aldurs eða notkunar.  

10.4 Ef hinn vátryggði býr innan við 50 km. frá þjónustustað og hið vátryggða tæki er það stórt að ósanngjarnt er að hann verði að flytja það sjálfur á verkstæði (tæki vegur yfir 20 kg. eða sjónvarp er með skjá sem er stærri en 32 tommur) greiðir félagið kostnað við slíkan flutning eða aukakostnað vegna útkalls viðgerðarmanns á staðinn þar sem hið vátryggða tæki er staðsett.  

10.5 Ef skiptivara er samþykkt af tjóna­­deild okkar getum við skipt tryggðu vörunni út fyrir nýja vöru eða vöru sem hefur verið gerð upp með sömu eða svipaðri tækni­lýsingu. Skipti­varan kann að vera nýrri útgáfa af upprunalegu tryggðu vörunni. Reynt verður að halda sama lit og á upprunalegu tryggðu vörunni en það getur verið að það sé ekki alltaf hægt. Í ljósi tækniþróunar getur verið að útveguð verði skiptivara sem er með lægra kaupverð en upprunarlega varan. 

 

11. gr. Önnur vátrygging

Ef hinn vátryggði á jafnframt rétt á bótum úr annarri vátryggingu vegna sama tjónsatburðar, fer uppgjör bóta eftir reglum 37. gr. laga nr. 30/2004.  

 

12. gr. Samsömum

Félaginu er heimilt að bera fyrir sig að maki eða sambúðarmaki hins vátryggða hafi brotið gegn ákvæðum vátryggingarinnar, skv. reglu b-liðar,  
2. mgr. 29. gr. laga nr. 30/2004  
um vátryggingarsamninga.  

 

13. gr. Lög um vátryggingarsamninga

Að öðru leyti, en því sem kveðið er á um í þessum skilmála, gilda um vátryggingarsamning þennan  
lög nr. 30/2004.  

 

14. gr. Löggjöf, ágreiningur og varnarþing

Um vátryggingu þessa gilda íslensk lög. Ágreiningi um bóta­skyldu má skjóta til Úrskurðar­nefndar í vá­trygginga­málum. Upplýsingar um nefnd þessa og starfs­hætti má fá hjá Vátryggingamiðluninni. Dómsmál sem kunna að rísa vegna þessa vátryggingarsamnings skulu rekin gegn félaginu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.  

 

15. gr. Samantekt úr persónuverndarstefnu

Persónuupplýsingarnar þínar eru unnar í samræmi við gildandi löggjöf um persónuvernd þ.e. reglugerð ESB 2016/679 sem samþykkt var á Evrópuþingi þann 25. maí 2018. Reglugerðin hefur verið lögleidd í íslensk lög með lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Persónuupplýsingarnar sem unnið er með eru t.d. nafn, heimilisfang, kennitala og eftir atvikum heilsufarsupplýsingar. Gögnin varða þig sem viðskiptavin en geta einnig fjallað um meðtryggða. Gögnin sem unnið er með eru veittar af þér en geta einnig verið sóttar hjá samstarfsaðilum okkar. Upplýsingarnar kunna að vera fengnar úr eða uppfærðar með gögnum úr opinberum skrám. Við vinnum úr persónuupplýsingum í því skyni að standa við skyldur okkar gagnvart þér sem viðskiptavini, t.d. við rannsókn tryggingarmála og hafa umsjón með tryggingarsamningnum þínum. Þá kunna persónuupplýsingarnar einnig að vera notaðar sem grunnur fyrir greiningar, viðskiptaþróun og töluleg gögn. Upplýsingar kunna að vera birtar samstarfsaðilum í áðurnefndum tilgangi, bæði innan og utan ESB og EFTA eða öðrum fyrirtækjum innan samstæðunnar. Samkvæmt gildandi lögum kann okkur að bera skylda til að birta yfirvöldum slíkar upplýsingar. Þær eru ekki vistaðar lengur en nauðsyn krefur. Heildarupplýsingar um meðhöndlun persónuupplýsinga er að finna í persónuverndarstefnu Trygg-Hansa á: 

 
www.affinity.trygghansa.se/gdpr 

Trygg-Hansa er ábyrgðar­aðili fyrir 
vinnslu persónu­upplýsinga. Hafðu samband við okkur ef þú vilt fá frekari upplýsingar um hvaða persónu­upplýsingum er unnið úr eða ef þú vilt fá afrit af slíkum upplýsingum. Sendu tölvupóst á: 
dpo@trygghansa.se 

 

16. gr. Ef þér mislíkar eitthvað 

 

Ánægðir viðskiptavinir eru okkar markmið og við metum álit þitt mikils, óháð því hvort þú ert ánægð(ur) eða finnst að eitthvað megi betur fara. Okkar ósk er að leysa öll mál sem koma upp með góðum samskiptum okkar á milli.Hafðu samband við aðilann sem sá um málið, ef þú ert ekki ánægð(ur) með niðurstöðuna í tilteknu máli eða hvernig málið var meðhöndlað. Ef þú vilt frekar að yfirmaður í viðkomandi deild endurskoði málið skaltu senda tölvupóst á tjon@tmi.is og tilgreina „kvörtun“ þína og tjónsnúmerið í efnis­línunni. Ef þú vilt senda ítarlegra bréf má sjá heimilisfang Tryggingamiðlunar Íslands á bls. 8. 

Gefðu upp nafn, tjónsnúmer og kvörtunar­­efnið til að auðveldara sé að vinna úr kvörtuninni. Sendu einnig hugsanlegar viðbótarupplýsingar eða skjöl sem viðkomandi starfsdeild hafði ekki aðgang. 

17. gr. Aðrar leiðir til að fá leiðbeiningar og leita réttar síns

Neytendasamtökin (NS)  www.ns.is 

Hafðu samband við Neytendasamtökin ef þig vantar aðstoð varðandi trygg­ingar eða uppgjör skaða­bóta. 

Fjármálaeftirlitið (FME).  www.fme.is 

Innan Fjármálaeftirlitsins starfar úr­skurðar­­nefnd í vátrygginga­­málum, sem neyt­endur geta lagt sín mál fyrir eftir að tryggingafélagið hefur tekið ákvörðun í málinu. Almennir dómstólar Óháð því hvort gerðardómur hafi fallið eða ekki, áttu í flestum tilvikum kost á að reka mál fyrir almennum dómstólum. 

Almennir dómstólar www.domstolar.is 

Óháð því hvort gerðardómur hafi fallið eða ekki, áttu í flestum tilvikum kost á að reka mál fyrir almennum dómstólum. 

þar sem augljós hætta er á tjóni og ganga eðli­lega og skyn­samlega frá tæki við flutninga eða aðra meðhöndlun. 

 

Samanburður