ELKOELKO
ELKOELKO

Persónuverndarstefna ELKO ehf.

Við berum virðingu fyrir þér og persónuupplýsingum þínum. Okkur er umhugað um að þú fáir skýrar upplýsingar með einföldum hætti um hvernig og af hverju við söfnum, notum og varðveitum persónuupplýsingar um þig, auk þess að þú vitir hvaða réttindi þú átt gagnvart okkur. ELKO vinnur með persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Í persónuverndarstefnu okkar svörum við eftirfarandi spurningum:

  • Hvenær og hvers vegna söfnum við upplýsingum um þig?

  • Hvaða persónuupplýsingum söfnum við um þig?

  • Hvernig notum við persónuupplýsingarnar þínar?

  • Með hverjum deilum við persónuupplýsingum þínum?

  • Hvernig tryggjum við öryggi persónuupplýsinga þinna?

  • Hve lengi varðveitum við upplýsingarnar?

  • Hver eru réttindi þín gagnvart okkur?

  • Mun þessi persónuverndarstefna breytast?

1. Hvenær og hvers vegna söfnum við upplýsingum um þig?

Við söfnum og varðveitum ýmsar persónuupplýsingar um viðskiptavini okkar til að geta veitt umbeðna þjónustu, afgreitt pantanir og uppfyllt lagaskyldur.

  • Vörukaup og þjónusta: Þegar þú verslar við okkur, hvort sem er í verslun eða á vef, söfnum við upplýsingum til að afgreiða pöntunina, veita ábyrgð og halda utan um viðskiptasögu þína.

  • Lán og greiðsludreifing: Þegar þú sækir um neytendalán eða greiðsludreifingu hjá ELKO er okkur skylt samkvæmt lögum um neytendalán að meta lánshæfi þitt og greiðslugetu. Í þeim tilgangi söfnum við fjárhagsupplýsingum og sækjum upplýsingar í gagnagrunna fjárhagsupplýsingastofa (Creditinfo).

  • Markaðssetning: Ef þú vilt fá upplýsingar frá okkur, t.d. fréttabréf eða tilboð, þarft þú að veita okkur samþykki fyrir vinnslunni.

  • Vefnotkun: Þegar þú notar vefviðmót okkar söfnum við upplýsingum með vefkökum (e. cookies) til að bæta upplifun þína.

  • Eftirlit: Myndefni úr eftirlitsmyndavélum er tekið upp í verslunum okkar í öryggis- og eignavörsluskyni.

2. Hvaða persónuupplýsingum söfnum við um þig?

Tegund upplýsinga veltur á þeirri þjónustu sem þú nýtir. Við kunnum að safna:

  • Grunnupplýsingar: Nafn, kennitala, heimilisfang, símanúmer og tölvupóstfang.

  • Viðskiptasaga: Upplýsingar um vörukaup, dagsetningar, fjárhæðir og greiðslumáta.

  • Fjárhags- og lánshæfisupplýsingar: Vegna umsókna um lán eða greiðsludreifingu vinnum við með upplýsingar um lánshæfismat (skor), stöðu á vanskilaskrá og eftir atvikum tekju- og

skuldayfirlit. Þessar upplýsingar eru sóttar til Creditinfo Lánstrausts hf. með þínu samþykki eða á grundvelli lagaskyldu.

  • Samskipti: Tölvupóstar, hljóðrituð símtöl við þjónustuver og fyrirspurnir.

  • Notuð tæki: Þegar þú skilar tæki til ELKO, hvort sem er vegna vöruskila, viðgerðar eða endurvinnslu, berum við ábyrgð á öruggri meðferð þeirra gagna sem á tækinu kunna að vera. Við notum viðurkenndan hugbúnað og ferla til að eyða öllum persónuupplýsingum af tækjum sem fara í endursölu eða förgun, í samræmi við kröfur persónuverndarlaga og reglna um meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs.

  • Myndefni: Upptökur úr eftirlitsmyndavélum.

3. Hvernig notum við persónuupplýsingarnar þínar?

Við notum persónuupplýsingar þínar í eftirfarandi tilgangi:

  • Efndir samnings: Til að afgreiða vörur, veita þjónustu, innheimta greiðslur og sinna ábyrgðarmálum.

  • Lánshæfismat (lagaskylda): Til að framkvæma lánshæfis- og greiðslumat áður en neytendalán er veitt, í samræmi við 10. gr. laga nr. 33/2013 um neytendalán. Við notum upplýsingar frá Creditinfo til að meta líkur á efndum lánssamnings.

  • Áhættustýring: Til að meta útlánaáhættu og tryggja örugga greiðslumiðlun.

  • Markaðssetning: Til að senda þér tilboð og upplýsingar, byggt á samþykki þínu eða lögmætum hagsmunum okkar af því að kynna vörur og þjónustu.

  • Innri stjórnun: Til að halda utan um rekstur, bókhald og samstæðuyfirlit (sjá nánar um miðlun innan Festi).

4. Með hverjum deilum við persónuupplýsingum þínum?

Við kunnum að deila upplýsingum með:

  • Creditinfo Lánstrausti hf.: Við miðlum kennitölu þinni til Creditinfo til að sækja lánshæfismat og upplýsingar um stöðu á vanskilaskrá þegar þú sækir um lán. Jafnframt ber okkur skylda til að tilkynna vanskil til Creditinfo að uppfylltum skilyrðum laga og reglna.

  • Fjármálafyrirtækjum og innheimtuaðilum: Vegna greiðslumiðlunar og innheimtu vangoldinna krafna.

  • Þjónustuaðilum: Aðilum sem sinna tölvuþjónustu, hýsingu eða flutningum fyrir okkar hönd (vinnsluaðilar).

  • Stjórnvöldum: Ef lagaskylda krefur, t.d. skattyfirvöldum eða lögreglu.

4.1 Miðlun innan Festi samstæðu

ELKO er hluti af Festi hf. samstæðunni. Í þágu innri stjórnunar, áhættustýringar og rekstrarlegrar hagræðingar samstæðunnar kann ELKO að miðla eða veita Festi hf. (móðurfélagi) aðgang að tilteknum persónuupplýsingum.

  • Almenn viðskiptasaga: Við kunnum að miðla yfirlitsupplýsingum um viðskiptasögu og samskiptaupplýsingum til Festi hf. á grundvelli lögmætra hagsmuna samstæðunnar af skilvirkri stjórnun.

  • Lánatengd gögn: Upplýsingum um lánshæfismat, niðurstöður úr vanskilaskrá og nákvæmri stöðu lána er ekki miðlað til Festi hf. í markaðslegum tilgangi. Slíkum upplýsingum kann þó að vera miðlað til áhættustýringar- og fjármálasviðs Festi hf. í þeim eina tilgangi að meta heildaráhættu samstæðunnar og uppfylla skyldur um samstæðureikningsskil.

Þú átt rétt á að andmæla miðlun upplýsinga til móðurfélagsins á grundvelli lögmætra hagsmuna, sbr. 21. gr. laga nr. 90/2018. Viltu nýta þann rétt, hafðu samband við personuvernd@elko.is.Komi til þess að ELKO sameinist öðru félagi, eða verði yfirtekið, munu persónuupplýsingar þínar flytjast til hins nýja félags. Slík miðlun byggir á lögmætum hagsmunum af rekstrarlegri samfelldni og munum við upplýsa þig um slíkar breytingar með viðeigandi hætti.

5. Hvernig tryggjum við öryggi persónuupplýsinga þinna?

ELKO leggur mikla áherslu á öryggi persónuupplýsinga. Við notum viðurkenndar aðgangsstýringar, dulkóðun og öryggisvarnir til að vernda gögn gegn óheimilum aðgangi. Sérstakar öryggisráðstafanir gilda um fjárhags- og lánshæfisupplýsingar og aðgangur að þeim er takmarkaður við þá starfsmenn sem sinna lánaveitingum og innheimtu.

6. Hve lengi varðveitum við upplýsingarnar?

  • Bókhaldsgögn:  Persónuupplýsingar sem verða hluti af bókhaldi, reikningum, greiðslum og öðrum bókhaldsgögnum eru varðveittar í samræmi við lögbundnar kröfur, þ.m.t. samkvæmt bókhaldslögum. Að loknum lögbundnum varðveislutíma er áframhaldandi varðveisla metin með tilliti til þess hvort nauðsyn beri til vegna réttarkrafna, ágreiningsmála eða annarra lögmætra hagsmuna. Þegar ekki er lengur þörf á persónugreinanlegum upplýsingum eru þær eyddar, afmáðar eða gerðar ópersónugreinanlegar, eftir því sem við á.

  • Lánagögn: Upplýsingar og gögn er varða lánshæfis- og greiðslumat eru varðveitt í að lágmarki 5 ár frá lánveitingu eða synjun, til að uppfylla kröfur laga um neytendalán og reglugerðar nr. 920/2013. Upplýsingar um lánssamninga eru varðveittar í 4 ár frá lokum uppgjörs kröfu vegna fyrningarreglna.

  • Myndefni: Eftirlitsmyndavélaefni er almennt geymt í allt að 90 daga, nema sérstök ástæða sé til lengri varðveislu, t.d. vegna rannsóknar máls.

7. Hver eru réttindi þín gagnvart okkur?

Þú hefur rík réttindi samkvæmt persónuverndarlögum:

  • Aðgangsréttur: Þú getur óskað eftir aðgangi að þeim upplýsingum sem við geymum um þig.

  • Upplýsingar um lánshæfismat: Ef lánsumsókn þinni er hafnað á grundvelli uppflettingar í gagnagrunni Creditinfo, átt þú rétt á að fá upplýsingar um það og hvaða upplýsingar í grunninum réðu úrslitum, þér að kostnaðarlausu.

  • Leiðrétting og eyðing: Þú getur óskað eftir að rangar upplýsingar séu leiðréttar eða þeim eytt ef ekki er lengur lagaheimild fyrir vinnslunni.

  • Andmælaréttur: Þú getur andmælt vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum, t.d. miðlun til móðurfélags eða beinni markaðssetningu.

Til að nýta réttindi þín, sendu okkur tölvupóst á personuvernd@elko.is. Þú hefur einnig rétt á að beina kvörtun til Persónuverndar (www.personuvernd.is).

8. Mun þessi persónuverndarstefna breytast?

Persónuverndarstefna þessi kann að taka breytingum, t.d. vegna nýrra laga eða breytinga á þjónustu okkar. Nýjasta útgáfan er ávallt aðgengileg á vefsíðu okkar.

Síðast uppfært: Febrúar 2026.

Stafrænn ráðgjafi ELKO