
Viltu gefa milljón?
Taktu þátt og sendu okkur málefni sem stendur þér nærri og þú vilt styrkja um um eina milljón króna í desember. Það málefni sem fær flestar tilnefningar fyrir 15. Desember 2023 fær úthlutað 1.000.000 króna úr styrktarsjóði ELKO.
Styrkveiting síðasta árs (2022)
Þau góðgerðarsamtök sem fengu flest atkvæði árið 2022 var SKB, Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna.
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna nýtur engra beinna opinbera styrkja og reiðir sig á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja og félagasamtaka til að fjármagna starfsemi sína en hún felst fyrst og fremst í því að styðja við bakið á fjölskyldum barna á aldrinum 0-18 sem greinast með krabbamein. Styrkurinn úr styrktarsjóð ELKO hefur verið greiddur.