Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Apple iPhone 12 mini 128 GB snjallsími - Svartur
Hönnun
iPhone 12 mini er þunnur, með rúnuðum hornum og kemur í fimm fallegum litum. Til þess að veita snertiskjánum betri endingu hefur Apple unnið náið með Corning og þróað byltingarkennda glertækni, Ceramic Shield er sérstakt gler sem inniheldur Nano-keramik-kristalla. Þetta nýja ferli við styrkingu á gleri tryggir fjórum sinnum betra fallþol miðað við iPhone 11 seríuna. Vatnsvörnin er einnig talsvert bætt og síminn er IP68 vottaður allt að 6 metra dýpi í 30 mínútur.
5G
Venjulegt 5G er eitt, en 5G á iPhone er aðeins meira. iPhone 12 er með sérhönnuðum loftnetum sem eru einstaklega nákvæm og skilvirk. Síminn er hlaðinn mörgum 5G böndum svo þú nærð sambandi á fleiri stöðum. Hugbúnaðurinn var einnig endurhannaður til að hámarka nýtni 5G, til dæmis nýta mörg snjallforrit 5G án þess að þurfa auka afl.
Skjár
Super Retina XDR OLED skjárinn nær frá jaðri til jaðars. 5,4“ skjárinn á iPhone 12 mini er með 2340 x 1080 upplausn og með aðstoð True Tone tækni sýnir hann skýra, bjarta mynd með djúpum svörtum lit.
Myndavélar
iPhone 12 kemur með tvöföldu myndavélakerfi með Ultra Wide myndavél sem gerir þér kleift að taka myndir og 4K myndbönd utan rammans og fangar allt að fjórum sinnum meira af myndefni. Þessi eiginleiki er fullkominn til að taka upp landslag, hópamyndir, arkitektúr og hreyfimyndir. Hin myndavélin sem er 12Mpix gleiðhornsmyndavélin getur tekið fallegar myndir, jafnvel við léleg birtuskilyrði með nýrri næturstillingu. Fyrir ljósmyndun á andliti (e. Portrait mode) eru 6 stillingar í boði og dýptarstýringin gefur náttúrulegri Bokeh áhrif og kemur með meira birtustýringu til að skila ljómandi árangri í hvert skipti.
QuickTake
Þessi handhægi eiginleiki tryggir að þú færð öll óvæntu augnablikin inn í myndskeiðið. Með iPhone 12 getur þú auðveldlega tekið upp myndskeið í ljósmyndastillingu með því að halda takkanum (e. Shutter) inni.
TrueDepth myndavél
TrueDepth myndavélin að framan er með 12Mpix upplausn gerir þér kleift að taka fallegar sjálfumyndir og hópmyndir, fullar af líflegum litum. Þú getur meira að segja tekið svokallaða slofie, hágæða sjálfsmynd með hægri hreyfingu.
Næsta kynslóð Smart HDR
Fáðu skarpar myndir með Smart HDR 3, sem notar vélanám til að hámarka alltaf möguleika hverrar myndar með því að stilla birtu og lit. Þannig færðu fallegar myndir og myndband með fullkomlega teknum húðlitum og áferð, óháð birtuskilyrðum.
MagSafe
MagSafe er komið aftur og einfaldlega virkar. Smelltu þráðlausu hleðslutæki, hulstri, kortahulstri og mörgu fleiru (sem styður MagSafe) aftan á símann. Segullinn leiðbenir þér og heldur öllu á sínum stað.
iOS 14
Þökk sé nýjum og nettum símtalaglugga þurfa símtöl og FaceTime ekki að taka upp allan skjáinn. Skilaboðaforritið er endurbætt svo þú getur svarað með þráðum og fjölda nýrra eiginleika í Memoji. Heimaskjárinn er einnig uppfærður með smáforritum (e. widget) sem sýna hentugar upplýsingar á fljótlegan máta.
Færri fylgihlutir, betra fyrir umhverfið
Apple ætlar að taka stórt skref með útgáfu, framleiðslu og dreifingu á iPhone 12. Þau hafa fækkað fylgihlutum sem koma í kassanum, það fylgir ekki heyrnartól eða hleðslukubbur, aðeins USB-C Lightning snúra. Með þessari breytingu minnkar óþarfa framleiðsla og pakkningar eru fyrirferða minni.