Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
iPad Pro 13" (2025) Wi-Fi + 5G - Space Black
ME7W4








iPad Pro 13" (2025) Wi-Fi + 5G - Space Black
ME7W4Geymsluminni: 256 GB
iPad Pro. Hannaður fyrir Apple Intelligence. iPad Pro með Apple M5 örgjörvanum færir sköpunargáfuna á nýtt stig. Leystu sköpunarkraftinn úr læðingi og nýttu þér háþróað gervigreindarvinnuflæði. Með stórkostlegum Ultra Retina XDR-skjá, leifturhröðu Wi-Fi 7, Neural Accelerators fyrir gervigreindarvinnuflæði og endurhönnuðu iPadOS. Það eru engin takmörk fyrir því hvað þú getur gert með iPad Pro. Og með Apple Pencil Pro og Magic Keyboard fyrir iPad Pro hefurðu óendanlega fjölhæfni, sköpunargáfu og framleiðni innan seilingar.
AFKÖST
iPad Pro með M5 örgjörvanum gefur þér næstu kynslóðar hraða og afl fyrir gervigreindarvinnslu fyrir öll verkefnin þín í tækinu.
iPadOS
Notaðu atvinnusmáforrit og vertu enn afkastameiri með iPadOS 26 með Liquid Glass-hönnun og byltingarkenndum eiginleikum. Með hinu leiðandi og sveigjanlega gluggakerfi geturðu stjórnað, skipulagt og haft umsjón með vinnuflæðinu þínu sem aldrei fyrr.
APPLE INTELLIGENCE
Apple Intelligence er persónulega snjallkerfið sem hjálpar þér að eiga samskipti, tjá þig og koma hlutum í verk hraðar – með byltingarkenndum persónuverndareiginleikum.
13 TOMMU ULTRA RETINA XDR-SKJÁR
Fullkomnasti skjár heims býður upp á gríðarlega birtu, nákvæmt birtuskilahutfall, ProMotion, breitt litasvið (P3) og True Tone.
APPLE PENCIL OG MAGIC KEYBOARD FYRIR IPAD PRO
Apple Pencil Pro og Apple Pencil (USB-C) veita leiðandi og nákvæma stjórn þegar þú teiknar, tekur minnispunkta og vinnur að skapandi verkefnum. Magic Keyboard veitir þægilega innsláttarupplifun og snertifleti með snertisvörun.
FULLKOMNAR MYNDAVÉLAR
iPad Pro er með 12 MP myndavél með „Í brennidepli“ að framan á langhlið skjásins og 12 MP gleiðlinsumyndavél með stillanlegu True Tone-flassi. Fjórir hljóðvershljóðnemar og fjórir hátalarar skila ríkulegum hljómi.
TENGIMÖGULEIKAR
Wi-Fi 7 með Apple N12 veitir hraðvirka og örugga þráðlausa tengingu. Vinndu nánast hvar sem er, með hraðvirkum flutningi á myndum, skjölum og stórum myndskrám. Og með ofurhröðu 5G með Apple C1X3 geturðu verið á netinu á enn fleiri stöðum.
AFLÆSTU OG GREIDDU MEÐ FACE ID
Aflæstu iPad Pro, framkvæmdu öruggar greiðslur, skráðu þig inn í smáforrit og fleira – með því að líta snöggt á skjáinn.