Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung 65" Q80A sjónvarp
Samsung 65" 4K UHD snjallsjónvarpið gefur kvikmyndum, myndböndum eða leikjum einstaklega raunverulegt útlit. Í sjónvarpinu er Quantum Dot tækni, Direct Full Array og öflugur 4K örgjörvi (uppskölun) og Quantum HDR. Wide Viewing Angle með Ambient Mode + gerir það að verkum að allt sem sést á skjánum verður enn raunverulegra frá hvaða sjónarhorni sem er. Öflugt Object Tracking Sound hljómurinn fylgir því sem er að gerast á skjánum af mikilli nákvæmni en hægt er að nálgast allskonar efni, snjallforrit og fleira í gegnum Tizen stýrikerfið. Motion Xcelerator Turbo + eiginleikinn er tilvalinn fyrir þau sem vilja spila leiki.
QLED tækni
Quantum Dot er nanóagna sía sem gerir það að verkum að myndin lítur jafn vel út frá öllum sjónarhornum. QLED tækin henta betur við bjartari aðstæður. Þau eru því t.d. frábær til að horfa á fótbolteleiki um miðjan dag. Þó að sólin skíni skært, þá helst myndin skýr og björt á QLED tæki. Skarpari línur og bjartari litir en nokkru sinni áður.
Quantum Processor 4K
Quantum 4K örgjörvinn skalar myndgæðin upp í 4K upplausn, litirnir verða tærari og skýrari. Örgjðrvinn notar sérstaka tækni til að auka myndgæðin á hvaða efni sem er.
Quantum HDR
Quantum HDR tæknin (High Dynamic Range) er studd af HDR10+ sem færir þér nýjan heim af framúrskarandi lit og skýrari myndgæði. Litatónar sem sýna dökk svæði á myndinni í enn dekkri gæðum og bjartari litir verða enn bjartari, sem gefur raunverulegri mynd í fleiri litbrigðum og tónum.
4K/UHD upplausn
4K/UHD upplausn (3840x2160pix) þýðir fjórum sinnum fleiri pixlar en í Full HD sjónvarpi (1920x1080) auk UHD uppskölunar á Full HD eða HD Ready efni. Upplausn segir til um hve margir pixlar komast fyrir í mynd. Einn pixill sýnir einn lit hverju sinni og saman verður til mynd. Með fleiri pixlum eykst gæði myndarinnar og smáatriði verða greinilegri.
Adaptive Picture eiginleiki
Eiginleiki sem stillir birtustig og birtuskil skjásins eftir því hversu bjart eða dimmt er í herberginu svo myndin líti komi sem best út.
Tizen
Tizen snjallkerfið, fyrir nettengingu og tengingu við netforrit. Hannað til að einfalda aðgengi að uppáhalds efninu í Samsung sjónvarpinu þínu. Uppáhalds tónlistin, myndirnar, seríur og samfélagsmiðlar eru fáanleg með nokkrum smellum á fjarstýringunni.
Leikjastillingar
Vertu framarlega í tækninni með Motion Xceleration Turbo eiginleikanum með Frame Enhancement sem eykur skýrleika myndarinnar í 60 Hz sjónvörpum, styður VRR leiki og 120 Hz leiki í allt að 4K gæðum.
Ambient stilling +
Umhverfisstillingin umbreytir sjónvarpinu þínu í listaverk þegar ekki er verið að horfa á það. Veldur úr allskonar skrautlegum- eða persónulegum myndum og upplýsingar um veður og fréttir. Notaðu snjallsíman þinn eða fjarstýringuna með raddstýringu og streymdu tónlist í gegnum sjónvarpið.
Object Tracking Sound Lite
Sjónvarpið er með tækni sem notar efri og neðri hátalara til að gefa enn raunverulegri hljóm.
Direct Full Array
Direct Full Array skapar jafnari ljósróf, sem þýðir að dreyfing á lýsingu er náttúrulegri og skerpa dýpri. Myndin er því einstaklega björt í hvítum og ljósum litum en kolsvört í djúpum, dökkum litum og lýsingu.
Uppsetning
Ertu ekki viss hvar á að setja nýja sjónvarpið? Við eigum mikið úrval af veggfestingum sem geta hjálpað þér að finna það sem hentar þér og þínu heimili. Fótur fylgir sjónvarpinu.
Snúrur og fylgihlutir
Ef þú ætlar að tengja sjónvarpið við afruglara, leikjatölvu eða heimabíó þarf að passa að réttu snúrurnar eru til staðar. Þú finnur hljóð- og myndsnúrur í ELKO.
Aðrir eiginleikar
- Samsung Q-Symphony samtvinnar hljóðið beint með Samsung hljóðstöng
- Tap View fyrir Screen Mirroring
- Samsung Multi View fyrir tvískiptan skjá
- SmartThing's stuðningur
- Active Voice Amplifier