Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung tvöfaldur kæli- og frystiskápur RS64DG5303B1EF - Svartur
RS64DG5303B1EFUppselt









Samsung tvöfaldur kæli- og frystiskápur RS64DG5303B1EF - Svartur
RS64DG5303B1EFSamsung RS64DG5303S9EF tvöfaldi kæli- og frystiskápurinn er með glæsilega hönnun, háþróaða tækni og er rúmgóður. Skápurinn mun halda matnum þínum við jafnt hitastig með All Around Cooling á meðan NoFrost passar að ekkert hrím myndist í frystinum.
Hönnun
Skápurinn er stílhreinn og hentar vel inn í hvaða eldhús sem er. Framhliðin er alveg flöt þar sem handföngin falla vel inn í skápinn til að halda stílhreinni hönnun.
Rúmmál
Innviði kæliskápsins er snilldarlega hannað svo nóg pláss er til fyrir matvæli og drykki. Kæliskápurinn er með allt að 417 lítra rúmmál og frystiskápurinn er allt að 218 lítra.
SpaceMax tækni
Þessi tækni gerir skápinn rýmri með því að þynna veggina án þess að það komi niður á einangruninni.
Vatns- og klakavél án vatnstengingar
Það þarf ekki að leggja vatnslagnir fyrir þennan skáp, þökk sé 4 lítra vatnstanki sem er handáfylltur. Úr tankinum býr skápurinn til klaka og kælir vatnið fyrir þig. Eina sem þarf er rafmagnssnúran við uppsetningu.
NoFrost
Sjálfvirk afhríming gerir það að verkum að þú þarft aldrei að afhríma skápinn þar sem hrím myndast ekki innan í honum sem gæti haft áhrif á hámarksafköst frystisins.
FastFreeze
FastFreeze stillingin frystir matinn fljótt til að viðhalda betur bragði, áferð og endingartíma. Ef þú þarft að frysta matvæli hratt og örugglega getur þú virkjað þennan eiginleika sem slekkur sjálfkrafa á sér eftir 24 tíma.
Humidity Fresh +
Hægt er að stilla rakastigið í skúffunum svo ávextir og grænmeti endast mun lengur.
SmartThings og AI
Með því að virkja gervigreindar orkusparnaðarstillingu í SmartThings smáforritinu geturðu dregið úr orkunotkun ísskápsins um allt að 15%. Gervigreindin greinir notkunarmynstur kæliskápsins, reiknar úr orkunotkun og hámarkar hraða og virkni pressunnar.