Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Sony WH-CH720N þráðlaus heyrnartól - Svört

WHCH720NBCE7
Sony WH-CH720N þráðlaus heyrnartól með DSEE, V1 örgjörva og stafrænni hljóðeinangrun. Hlustaðu á þína tónlist í frábærum gæðum út allan daginn með allt að 35 klst rafhlöðuendingu.
Bluetooth 5.2
Allt að 35 klst rafhlöðuending
360 Reality Audio vottun
Digital Sound Enhancement Engine
V1 örgjörvi
Google Assistant talþjónn
22.990 kr.
Upplýsingar

Hlustaðu á uppáhalds tónlistina þína eins og hún á að vera Sony WH-CH720N þráðlausum heyrnartólum. Hvert sem farið er getur þú einbeitt þér að og notið tónlistar án truflanna með stafrænni hljóðeinangruninni sem heyrnartólin veita. Innbyggður V1 örgjörvi og Digital Sound Enhancement Engine færa tónlistina þína á hærra plan og gera hana bæði skýrari, dýpri og nær upprunalegu upptöku tónlistarinnar. Hlustaðu í allt að 35 klst á fullri hleðslu og nýttu þér marga nytsamlega eiginleika heyrnartólanna til að gera daginn þinn ánægjulegri.

Stafræn hljóðeinangrun með tveimur hávaðaskynjurum
Ný tækni sem dregur úr utanaðkomandi hávaða svo hægt sé betur að njóta tónlistarinnar. Láttu umhverfið þitt ekki trufla hlustunina. Hægt er að stilla hversu mikil hljóðeinangrunin er ef þú þarft að vera meðvitaður um umhverfið þitt.

Hljómgæði
Hlustaðu á kristal tæran hljóm með heyrnartólunum þökk sé V1 innbyggðum örgjörva og Digital Sound Enhancement Engine. V1 örgjörvinn býr til jafnari hljómburð með náttúrulegri raddir og heldur hljóðbrenglun í lágmarki. DSEE endurheimtar hljóm úr samþjappaðari (e. compression) tónlist svo að tónlistin er nær því að hljóma eins og upprunalegu upptökurnar. Þannig er meiri dýpt og smáatriði sem tapast við samþjöppun rísa aftur upp á yfirborðið.

360 Reality Audio vottun
Láttu greina heyrnina þína og 360 Reality Audio sér um að fínstilla hljóminn svo þú getir fengið betri og persónulegri upplifun af tónlistinni þinni.

35 klst af spilatíma
Hlustaðu í allt að 35 klst á aðeins einni hleðslu. Haldu heyrnartólunum tengdum allan daginn og að hlaða tóma rafhlöðu tekur aðeins 3,5 klst. Heyrnartólin styðja líka hraðhleðslu.

Raddstýring
Fylgstu með tilkynningum, skiptu um lag eða lagalista eða aflaðu þér upplýsingar með Google Assistant talþjón. Raddstýring gerir notkun þægilegri þar sem óþarfi er að taka upp símann.

Tengist við fleira en eitt tæki
Bluetooth tenging heyrnartólanna styður fleiri en eitt tæki svo auðvelt er að hætta að hlusta í símanum og byrja að horfa á mynd á spjaldtölvunni og svo svara símanum ef einhver hringir samstundis.

Eiginleikar
Heyrnartól
Strikamerki
0027242925391
Framleiðandi
Sony
Hentar fyrir
Skrifstofu
Litur
Svartur
Rafhlöðuending (klst)
35
Viðnám (ohm)
325
Tíðni (Hz)
7 - 20000
Stærð hátalara (Driver)
30mm
Þráðlaus
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.2
Tengi
USB-C, 3.5 mm
Hljóðstillir
Þyngd (g)
192
Hljóðnemi
Greiðsludreifing
6 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 6 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður