Hindberja- og kókos hrákaka
Skrifað 27. september 2017
Ég fann þessa hjá Ninjakitchen og gat ekki látið hana fram hjá mér fara.
Það sem þú þarft:
Botninn
50g kókoshveiti
50g möndlumjöl
2 msk hlynsýróp eða hunang
2 ms fljótandi kókosolía
2 msk möndlumjólk
Fylling
150g kókosmjöl (gamla góða tætta)
2 msk möndlu eða hnetu smjör
4 msk hlynsýróp eða hunang
2 msk bráðin kókosolía
1 tsk vanillu extract
100g frosin eða fersk hindber
Toppur
50g dökkt súkkulaði
1 tsk kókosolía
2 msk þurrkuð hindber
Aðferð
Blandaðu fyrst saman kókoshveiti og möndlumjöli, bættu restinni af uppskriftinni við og blandaðu vel saman.
Þrýstu deiginu í mót.
Fyrir fyllinguna, blandaðu öllum hárefnunum saman í blandarann og hrærðu þar til blandan verður mjúk.
Bættu nú blöndunni við í mótið ofan á deigbotninn og settu í frystinn í 4 tíma.
Taktu kökuna úr frysti rétt áður en þú ætlar að bera hana fram. Gott er að skera hana í teninga eða sneiðar núna.
Bræddu súkkulaði og kókosolíu saman. Toppaðu kökuna með bræddu súkkulaði og þurkkuðum hindberjum.
Ef það er afgangur af kökunni endist hún í fyrsti í mánuð.
Njóttu!