Hindberja skál
Skrifað 27. september 2017
Það jafnast ekkert á við ljúffenga smoothy skál á góðum morgni. Nutribullet færir okkur þessa súrsætu skál gefur twist í daginn. Toppaðu hana svo með uppáhalds meðlætinu þínu! … granóla, ávextir, ber, kókosflögur, chiafræ… Mmmm..
Það sem þú þarft:
50g af frosnum banana
50g af frosnum hindberjum
50g af grískri jógúrt
150ml af kókosmjólk
Hrærðu öllu saman í blandaranum þar til áferðin verður mjúk, helltu í skál og stráðu meðlætinu yfir eða drekktu bara beint úr glasi.
Fyrst og fremst,
njóttu.