ELKOELKO
ELKOELKO

Lúsíubollur

Skrifað 7. desember 2017

Lúsíubollur:

• 95 ml heit mjólk (ekki sjóðandi) • ¼ tsk mulið saffran • 80 ml volg mjólk • 5 g þurrger • 50 g bráðið smjör • 1 stór eggjarauða • 50 g sykur • 1/3 tsk salt • 320 g hveiti • Rúsínur til skrauts

1. Hrærðu heitri mjólk og saffran saman í bolla og láttu standa í 15 mín. 2. Settu volga mjólk í skál og dreifðu þurrgeri yfir. Láttu standa í 5-10 mín. 3. Bættu við smjöri, eggjarauðu, sykri og salti í skálina og hrærðu. 4. Helltu saffranmjólkinni í blönduna, geymdu smá til að pensla yfir bollurnar. 5. Bættu hveitinu við, hægt og rólega og hnoðaðu deigið. 6. Búðu til kúlu og settu hana í skálina með viskustykki yfir. Láttu hefast í 1 ½ tíma. 7. Skiptu svo deiginu í 10 parta. Rúllaðu hverjum parti í 35-40 cm lengjur. 8. Búðu til það mynstur sem þú vilt og settu bollurnar á bökunarplötu. 9. Láttu bollurnar standa í 30-45 mín og forhitaðu ofninn á 200°c. 10. Þrýstu rúsínum í bollurnar til skrauts og pennslaðu yfir. Bakaðu í 8-12 mín. Njóttu!

Deila
Stafrænn ráðgjafi ELKO