6 hugmyndir fyrir Sumarið
Skrifað 10. júní 2020
Við tókum saman hugmyndir af afþreyingu og vörum sem gætu gert sumarið enn skemmtilegra. Tilvalið í bíltúrinn, útileguna eða fyrir góðar stundir í bústaðnum eða heima.
Hugmynd nr. 1:
Flakkaðu um Ísland og spilaðu ferðaBINGÓ
Njóttu þess að ferðast um Ísland í sumar hvernig sem viðrar. Taktu með þér ferðaBINGÓ til að gera ferðalagið skemmtilegra.
Smelltu hér til að sækja BINGÓ spjöld. Í boði eru bæði stærðir fyrir útprentun (4 spjöld á A4) og einnig 1080×1920 myndir til að vista og nota rafrænt á samfélagsmiðlum eins og í STORY.
Farðu í bíltúr í nýtt bæjarfélag, finndu gott bílastæði eða tjaldaðu á tjaldsvæði bæjarins. Farðu svo í göngutúr um svæðið, eða brunaðu um bæinn á hlaupahjóli. Fylgstu vel með því sem fyrir augun ber og krossaði út þegar þú finnur það sem er á spjöldunum.
Hugmynd nr. 2:
Hafðu afþreyingu fyrir börnin í bílnum
Fyrir sum börn er bílferðin á áfangastaðinn leiðinleg. Hvernig væri að sleppa við ‘Erum við komin’ spurninguna og setja upp bílabíó fyrir börnin með spjaldtölvu + festingu, bættu við heyrnartólum til að gera þetta ennþá betra.
| Lenovo 10“ spjaldtölva | Spjaldtölvufesting |
|---|---|
| Barnaheyrnartól | Splitter fyrir mini-jack |
Hugmynd nr. 3:
Prófaðu FOLF eða GOLF
FOLF er spilað eins og hefðbundið golf nema með frisbídiskum. Takmarkið er að kasta diskinum í körfuna með sem fæstum skotum. Sá aðili vinnur sem klárar allar brautirnar í sem fæstum skotum. Lestu nánar um hvar og hvernig þú spilar FOLF með því að smella hér.
| FOLF diskar | FOLF töskur |
Ef þú ert spenntari fyrir GOLF þá eigum við flott Golf út frá Garmin.
| Garmin Approach S10 | Garmin Approach S40 |
Hugmynd nr. 4:
Æfðu þig í ljósmyndun
Njóttu þess að ferðast um Ísland í sumar og lærðu að taka betri myndir af náttúrunni. Þú getur líka farið í ljósmyndabingó. Sett þér markmið að tala myndir af sérstökum hlutum eins og fjalli, fossi, strönd, rigningu, hesti, sveitabæ, sjónum eða lunda.
| Canon Powershot SX740 | Polaroid Now myndavél |
|---|---|
| Nedis Ultra HD 4K | Einnota myndavél |
Hugmynd nr. 5:
Hafðu það kósý í bústaðnum
Hvort sem þú stefnir að kíkja í bústað í sumar, njóta tímans á pallinum eða hafa kósý stund heima þá eru hér nokkar vörur sem setja punktinn yfir Y í Kósý.
| Tenderflame eldstæði | Kindle lesbretti |
|---|---|
| JBL hátalarar | Grill og grill aukahlutir |
Hugmynd nr. 6:
Farðu í fjallgöngu
Njóttu þess að ferðast um Ísland og farðu í göngutúr eða fjallgöngu. Tilvaldir félagar í göngu eru til dæmis, snjallsími með góða myndavél, ferðahleðsla, heyrnartól, góður vatnsbrúsi og ferðakaffivél.
| Ferðahleðslur | In-ear heyrnartól |
|---|---|
| Fitbit Charge 4 | Wacaco Nanopresso |
Ein að lokum…
…Mundu eftir vatninu og minnkaðu plastnotkun í sumar. Chilly´s flöskunar koma í þremur stærðum, 260ml, 500ml og 750ml. Skoðaðu úrvalið á elko.is.
Chilly´s flöskurnar koma í fallegum pakkningum og því tilvaldar sem tækifærisgjöf.