Hljómgæði
Endurbætt hljóðhönnun sem skilar dýpri bassa, breiðara hljóðsviði og kristaltærri raddendurgerð.
Skrifað 16. október 2025
Allt að 2x meiri en AirPods Pro 2
Versla Hér
Endurbætt hljóðhönnun sem skilar dýpri bassa, breiðara hljóðsviði og kristaltærri raddendurgerð.
Endurbætt hljóðhönnun sem skilar dýpri bassa, breiðara hljóðsviði og kristaltærri raddendurgerð.
Eyrnatapparnir eru nú snúnir inn á við fyrir öruggari festingu. Að auki eru tapparnir komnir með nýtt lag sem inniheldur froðufylltar örkúlur sem bætir hávaðadeyfingu.
Með örnákvæmum ljósskynjara sem sendir ósýnilegt ljós mælir AirPods Pro 3 hjartslátt og æfingaupplýsingar með ótrúlegri nákvæmni, hvar sem þú æfir.
Með IP57-vottun eru AirPods Pro 3 hönnuð til að standast bæði svita, ryk og vatn, fullkomin fyrir æfingar eða útivist í íslenskri veðráttu.
Með snertinæmum fleti geturðu spilað tónlist, breytt hljóðstyrk með stroku og nýtt nýja myndavélarfjarstýringu til að taka myndir eða myndbönd án þess að snerta símann.
Nýjustu kynslóðar Ultra Wideband-tækni gerir Precision Finding 1,5 sinnum skilvirkari, svo þú getur staðsett AirPods Pro 3 hraðar og nákvæmar en áður.
Þau eru hönnuð með endurbættri hljóðeinangrandi þéttingu sem aðlagar sig sjálfkrafa að umhverfi þínu og persónulegum stillingum. Nýir, hljóðlágir hljóðnemar fjarlægja enn meira af óæskilegum hávaða svo þú heyrir aðeins það sem þú vilt heyra, í áður óþekktri hljóðupplifun.
(Ultra-low-noise microphones)
Með háþróaðri hljóðúrvinnslutækni fjarlægja AirPods Pro 3 enn meira af umhverfishávaða en nokkru sinni fyrr, svo þú getir einbeitt þér eða aftengt þig þegar þú þarft á því að halda. Fimm nýir eyrnatappar, þar á meðal XXS, sameina mjúka froðu og sílikon fyrir betri hljóðeinangrun.
(Voice Isolation)
AirPods Pro 3 nota háþróaða tækni til að einangra röddina þína og draga úr umhverfishávaða í símtölum. Þannig heyrist þú skýrt og greinilega, jafnvel í hávaðaumhverfi eins og í strætó eða á kaffihúsi.
(Adaptive Audio)
AirPods Pro 3 sameina virka hávaðadeyfingu og næstu kynslóð gegnsæisstillingu, sem gerir röddina þína og umhverfishljóð náttúrulegri og líflegri. Heyrnartólin aðlagast snjallt að aðstæðum og forgangsraða því sem þú þarft að heyra, þegar þú þarft að heyra það.
(Conversation Awareness)
AirPods Pro 3 nema þegar þú byrjar að tala við einhvern nálægt þér og lækka sjálfkrafa hljóðstyrkinn á því sem þú ert að hlusta á. Þegar samtalinu lýkur hækkar hljóðið sjálfkrafa aftur í fyrra stig.
Knúin af H2 örgjörvanum frá Apple býður AirPods Pro 3 upp á nýja hönnun á hljóðbyggingu sem skilar sér í mögnuðu og umlykjandi hljóði í öllu sem þú hlustar á, hvort sem það er uppáhalds tónlistin eða vikulegt FaceTime símtal við fjölskylduna.
Endurbætt hljóðbygging með nákvæmri stjórn á loftflæði og inn á við snúnum hljóðnema sem beinist að hlustinni tryggir kraftmeiri bassa, skýrari raddtón og víðara hljóðsvið þannig að þú nýtur hverrar nótu til fulls.
AirPods Pro 3 eru með hljóðjöfnun næstu kynslóðar (Adaptive EQ) sem stillir hljóðið sérstaklega eftir lögun og stærð eyrna þinna, svo þú fáir fullkomna hljóðupplifun sem hentar þér. Að auki nýtir Persónuleg hljóðstyrksstilling (Personalized Volume) gervigreind til að læra hvernig þú hlustar og aðlagar hljóðstyrkinn smám saman að þínum venjum og óskum.
Adaptive EQ stillir tónlistina í rauntíma eftir því hvernig AirPods sitja í eyrunum. Inn á við snúnir hljóðnemar mæla hvað þú heyrir og fínstilla bæði lágar og háar tíðnir, þannig að þú færð stöðugt, nákvæmt og skýrt hljóð í hvert skipti sem þú hlustar.

Persónulegt rýmishljóð (Personalized Spatial Audio) notar TrueDepth-myndavélina í iPhone til að búa til sérsniðna hljóðstillingu út frá lögun höfuðsins þíns. Niðurstaðan er djúp umlykjandi hljóðupplifun, sérsniðin einungis fyrir þig.

Dynamic head tracking gerir samtöl að raunverulegri upplifun, eins og þau eigi sér stað í sama herbergi hvort sem þú ert að spila með vinum eða í Group FaceTime-símtali með fjölskyldunni.
Ný hjartsláttarskynjun hjálpar þér að fylgjast með hjartslætti og kaloríubrennslu á meðan þú æfir. Með því að nota LED-ljós sem senda ósýnilegt ljós 256 sinnum á sekúndu og skynjara úr hröðunarmælum, veita AirPods Pro 3 afar nákvæmar mælingar fyrir allt að 50 mismunandi æfingategundir í Fitness-forritinu. Auk þess tryggir öruggari festa í eyranu að þú getir æft af krafti án þess að heyrnartólin detti úr.
Með AirPods Pro 3 og iPhone geturðu dýft þér í nýja æfingaupplifun í Fitness-forritinu, sem inniheldur æfingar eins og göngu, hjólreiðar og HIIT. Þú getur stillt uppáhaldstónlistina eða hlaðvörpin til að spilast sjálfkrafa þegar æfingin hefst.
Nýja Workout Buddy-aðgerðin, knúin af Apple Intelligence, sendir persónuleg hvatningarskilaboð sem halda þér við efnið og með aðgangi að Move-hringnum og jafnvel Burn Bar í Fitness+ verður kannski erfitt að hætta æfa!
Í fyrsta sinn fyrir AirPods fá AirPods Pro 3 IP57-vottun, sem þýðir að þau eru endingarbetri en nokkru sinni fyrr. Með nákvæmri verkfræði og ströngum prófunum geturðu verið örugg(ur) jafnvel í erfiðustu æfingum, þar sem sviti og vatn eru engin fyrirstaða.
AirPods Pro 3 færa nýjar framfarir í heyrnarvernd og heyrnarheilbrigði, fyrsta heildstæða kerfi sinnar tegundar.
Nú geturðu tekið vísindaleg staðfest heyrnarpróf við mismunandi aðstæður í bakgrunnshljóði. Heyrnartækisaðgerðin (Hearing Aid) býður upp á endurbætta raddskýru, sjálfvirka Conversation Boost og allt að 67% lengri rafhlöðuendingu í gegnsæisstillingu með einni hleðslu. Að auki verndar virk heyrnarvörn (Active Hearing Protection) þig gegn of miklum hávaða úr umhverfinu.
(Battery)
Notendur Heyrnartækis aðgerðarinnar fá nú 67% lengri rafhlöðuendingu í gegnsæisstillingu með einni hleðslu eða allt að 10 klukkustundir í heildina. Það gerir það auðveldara en nokkru sinni fyrr að nýta þessa byltingarkenndu tækni allan daginn, frá morgni til kvölds.
(Automatic Conversation Boost)
Nú, þegar þú átt samtal á fjölförnum stað eins og á veitingastað eða skrifstofu, eikur Conversation Boost sjálfkrafa röddina hjá þeim sem þú ert að tala við og dregur úr truflandi hávaða í kring. Með nýjum hljóðnemum, hljóðgjafa og magnara hljómar rödd þín skýrar en nokkru sinni fyrr.
(Hearing Test)
Með aukinni hávaðadeyfingu geturðu nú tekið vísindalega staðfest heyrnarpróf við margvíslegar daglegar aðstæður beint úr þægindum heimilisins. Ef þú ert með væga til miðlungs heyrnarskerðingu geturðu notað endurbætta heyrnartækisaðgerðina hvar sem er.
(Hearing Protection)
Auk hávaðadeyfingar frá eyrnatöppunum veitir virk heyrnarvörn (Active Hearing Protection) vernd gegn háum umhverfishljóðum. Með vélrænu námi H2 örgjörvans er hávaði dreginn úr 48.000 sinnum á sekúndu, án þess að skerða náttúrulegt og líflegt hljóð í því sem þú ert að hlusta á.
AirPods Pro 3 eru full af eiginleikum sem gera jafnvel einföldustu augnablik einstök. Með nýju Live Translation-aðgerðinni og þægilegri myndavélarstýringu er ljóst að AirPods bjóða upp á miklu meira en bara frábært hljóð.
Með Apple Intelligence er nú hægt að hlusta á fólk tala á mismunandi tungumálum og heyrt þýðinguna beint í AirPods Pro 3. Til að svara talarðu einfaldlega þitt tungumál, og þín orð birtast í iPhone hins aðilans á hans tungumáli.
Með Apple Intelligence er nú hægt að hlusta á fólk tala á mismunandi tungumálum og heyrt þýðinguna beint í AirPods Pro 3. Til að svara talarðu einfaldlega þitt tungumál, og þín orð birtast í iPhone hins aðilans á hans tungumáli.
Með snertistýringum geturðu auðveldlega hækkað eða lækkað hljóðið, sleppt lögum og sent óþekkt símtöl beint í talhólf. Nýja myndavélafjarstýringin gerir þér einnig kleift að taka mynd eða myndefni á iPhone, jafnvel úr fjarlægð.
Til að setja upp AirPods Pro 3, haltu þeim nálægt iPhone og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum. Með Automatic Switching tengjast þau sjálfkrafa því tæki sem þú ert að nota, án fyrirhafnar, þú þarft aðeins að ýta á play.
Tilkynningalestrar (Announce Notifications)
Siri getur lesið upp skilaboð og tilkynningar um leið og þau berast, og þú getur svarað með röddinni einni saman. Með Siri Interactions geturðu jafnvel notað eðlislægar höfuðhreyfingar eins og að kinka kolli eða hrista höfuðið til að svara eða hunsa símtöl og skilaboð.
Hljóðdeiling (Audio Sharing)
Deildu auðveldlega því sem þú hlustar eða horfir á með vini. Það eina sem þarf er að færa AirPods vinarins nær iPhone, iPad eða Apple TV sem þú ert tengd(ur) við og voilá, bæði heyrið sama hljóðið samstundis.
MagSafe-hleðsluhulstrið er fullt af gagnlegum eiginleikum, þar á meðal innbyggðum hátalara og nákvæmari staðsetningaraðgerð (Precision Finding), sem hjálpar þér að finna AirPods Pro 3 hvar sem þau eru. Og nú nægir ein hleðsla til að halda þér gangandi allan vinnudaginn og jafnvel fram yfir hann.
Allt að 8 klst. rafhlöðuending með virkri hávaðadeyfingu á einni hleðslu, 2 klst. lengri en hjá AirPods Pro 2.
Allt að 10 klst. rafhlöðuending í gegnsæisstillingu með Heyrnartækisaðgerðinni á einni hleðslu, 4 klst. lengri en hjá AirPods Pro 2.
Finndu nákvæmlega hvar þú lagðir AirPods Pro 3 frá þér á einfaldan hátt. Ný kynslóð Ultra Wideband-tækni í hleðsluhulstrinu eykur nákvæmnina og leitarlengdina.
Með innbyggðum hátalara í hulstrinu geturðu fundið AirPods jafnvel þó þau séu falinn djúpt í sófapúðum.
Bjóða upp á besta virkni hávaðadeyfingar í heyrnartólum heims, ásamt hjartsláttarskynjun fyrir æfingar og hreyfingu.
Næsta kynslóð hljóðs, þæginda og hávaðastýringar hannað til að veita enn betri hlustunarupplifun í hverju augnabliki.
Allt að fjórfalt meiri virk hávaðadeyfing en í upprunalegu AirPods Pro og einnig í AirPods 4 með virkri hávaðadeyfingu.
Virk hávaðadeyfing (Active Noise Cancellation)
Dregur sjálfkrafa úr umhverfishljóði svo þú getir einbeitt þér betur að tónlistinni, hlaðvörpum eða símtölum — hvar sem þú ert.
Aðlögunarhljóð og gegnsæisstilling
Aðlögunarhljóð og gegnsæisstilling
Persónulegt rýmishljóð með hreyfiskynjun (Personalized Spatial Audio with Dynamic Head Tracking)
Persónulegt rýmishljóð með hreyfiskynjun (Personalized Spatial Audio with Dynamic Head Tracking)
Hjartsláttarskynjun við æfingar
AirPods Pro 3
Heyrnarpróf, Heyrnartæki og Heyrnarvörn
Lifandi þýðing (Live Translation)
Lifandi þýðing (Live Translation)
Allt að 8 klst. hlustunartími á einni hleðslu með virkri hávaðadeyfingu, og allt að 10 klst. í gegnsæisstillingu með Heyrnartækisaðgerðinni.
Allt að 5 klst. hlustunartími á einni hleðslu — eða allt að 4 klst. með virka hávaðadeyfingu virka.