ELKOELKO
ELKOELKO

INNKÖLLUN: Love to Dream Sleep Machine

Skrifað 10. september 2026

⚠️ Hættið notkun vörunnar tafarlaust og aftengið hana frá öllum hleðslutækjum.

Love to Dream Sleep Machine er innkölluð vegna framleiðslugalla sem getur valdið því að litíumrafhlaða vörunnar ofhitni við hleðslu. Það getur skapað eldhættu og hættu á alvarlegum brunasárum og/eða eignatjóni.

Vara: Love to Dream Sleep Machine

Vörunúmer: LB71 01 001 WHT OS LTD-SM23

Strikamerki: 9343443208895

Lotunúmer (Date Code): 7T12TN, 7W15TN og 8P01TN

Hvað á ég að gera?

  • Hættið strax notkun vörunnar.

  • Aftengið vöruna frá öllum hleðslutækjum og geymið hana á öruggum stað, fjarri eldfimum hlutum.

  • Skilið vörunni á þann sölustað sem hún var keypt á.

  • Ef ekki er mögulegt að skila vörunni á sölustað skal fara með hana á næstu endurvinnslustöð SORPU og farga henni samkvæmt reglum um litíumrafhlöður. Ekki má setja vöruna í heimilissorp eða hefðbundna endurvinnslutunnu.

  • Viðskiptavinir eiga rétt á endurgreiðslu eða nýrri vöru.

Deila
Stafrænn ráðgjafi ELKO