Cricut Joy fullkomnar föndurstundina
Skrifað 19. október 2022
Leyfðu sköpunargáfu þinni að blómstra með Cricut Joy skurðarvélinni og gerðu hugmyndir að veruleika. Cricut Joy vélin hentar til þess að skera út hönnun á pappír, vinyl og iron-on efni fyrir fatnað.
Cricut Joy
Cricut Joy er litla barnið í Cricut fjölskyldunni, en vélin er aðeins 10,8 x 21,5 x 13,8 cm á stærð og tengist snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu í gegnum Bluetooth. Hún er fær um að klippa einstök form allt að 1,2 m eða endurtekin mynstur allt að 6 m.
Hannaðu, skapaðu og njóttu
Þú getur búið til hönnun í Design Space forritinu eða Cricut Joy smáforritinu eða valið úr þúsundum tilbúna verkefna.
Eina sem þarf er að velja efnið sem þú vilt nota (pappír, límmiðar, vínyl eða annað) og festa það á skurðarmottuna, eða ef þess þarf setja það í skurðarvélina. Cricut vélin sér svo um að skera út eða teikna og skrifa. Ekkert smáatriði er of lítið!
Cricut Joy er lítil og nett græja sem tekur lítið pláss og tengist auðveldlega við snjallsíma með Bluetooth.
Náðu í Cricut Joy smáforritið fyrir Android eða iPhone og tengdu skurðarvélina við. Allt þráðlaust sem þýðir engar snúrur og ekkert vesen. Ef þú vilt tengja Cricut Joy við PC tölvu getur þú sótt Design Space forritið.
Smart Cricut efni
Fáanleg eru sérstök snjöll efni (e. Smart Material) frá Cricut sem þurfa ekki sérstaka skurðarmottu undir efnið þegar það er skorið í Cricut Joy vélinni. Smelltu hér til að sjá Cricut Smart efni á elko.is.
Hvort sem þú ert að leita að tæki til að fullkomna föndurhæfileika þína, skipuleggja heimilið með merkimiðum eða vera betri í skreytingum fyrir veislur þá Cricut vörurnar tilvaldar fyrir þig. Smelltu hér til að skoða allar Cricut vörur í ELKO.