ELKOELKO
ELKOELKO

Garmin Fenix 9: Tæknin á bak við árangurinn

Garmin Fenix er ein þekktasta línan hjá Garmin og hefur lengi verið vinsæl meðal þeirra sem stunda markvissa þjálfun, úthaldsíþróttir og útivist. Úrin henta sérstaklega vel fyrir krefjandi æfingar þar sem löng rafhlöðuending, nákvæmar mælingar og áreiðanleg leiðsögn skipta miklu máli. Með endingargóðri hönnun og ítarlegum eiginleikum hjálpa þau notendum að fylgjast með árangri, æfingaálagi og endurheimt.

Nú tekur Fenix-línan næsta skref með Garmin Fenix 9 og Fenix 9 Pro, sem byggja á styrkleikum fyrri kynslóða og bæta við nýjum eiginleikum fyrir æfingar, leiðsögn og daglega notkun. Úrin fást í þremur stærðum, 43, 47 og 51 mm, og bjóða upp á fjölbreyttar útfærslur fyrir ólíkar þarfir.

Nýjungar í Fenix 9

Garmin Fenix 9 og Fenix 9 Pro eru með ýmsar nýjungar sem gera úrin enn öflugri fyrir æfingar, útivist og daglega notkun. Meðal helstu nýjunga eru bjartari AMOLED skjár, endurbætt kortakerfi og nýjar úthaldsmælingar sem gefa betri innsýn í líkamlega getu og þróun hennar yfir tíma.

Stamina Zones og Stamina Curve eru nýir eiginleikar sem byggja á Real-Time Stamina, sem Garmin kynnti árið 2022. Þessar viðbætur hjálpa notendum að áætla úthald við mismunandi álag og fylgjast með framförum í hlaupum og hjólreiðum. Þá bætist Garmin Epic við, nýr eiginleiki í Garmin Connect sem notendum gerir kleift að sameina margar æfingar og ferðir í eina heildstæða yfirsýn með mælingum, myndum og upplýsingum um árangur.

Einnig hefur leiðsögnin verið uppfærð með hraðari kortavinnslu og nýrri þrívíddarlíkri sýn sem auðveldar notendum að átta sig á landslaginu fram undan.

Hönnun fyrir þá sem vilja ná lengra

Úrið sameinar vandaða og endingargóða hönnun sem hentar jafnt fyrir daglega notkun og krefjandi aðstæður. Það er með bjartan AMOLED sem er tvöfalt bjartari en skjárinn á Fenix 8. Úrið er einnig með rispuþolið safírgler og lekavarða málmtakka. Úrin eru jafnframt hönnuð til að standast erfiðar aðstæður og uppfylla hernaðarstaðla um hita-, högg- og vatnsþol.

Úrin fást í þremur stærðum, 43, 47 og 51 mm, svo hægt er að velja útfærslu eftir stærð úlnliðs og óskum um skjástærð. Innbyggt LED-vasaljós nýtist við æfingar í myrkri, útivist og ýmsar daglegar aðstæður.

Innsýn í hverja æfingu

Með ítarlegum mælingum og greiningu á líkamlegri getu hjálpar Fenix 9 þér að skilja betur hvernig æfingar hafa áhrif á líkamann og hvernig þú getur nýtt upplýsingarnar til að bæta árangurinn.

Þekktu þína getu

Með VO₂ Max færðu mat á þoli og líkamlegri getu, á meðan Endurance Score gefur ítarlegri yfirsýn yfir úthaldsgetu þína út frá æfingasögu, VO₂ Max og æfingaálagi. Fyrir hlaupara býður Race Predictor einnig upp á áætlaða keppnistíma fyrir 5 km, 10 km, hálfmaraþon og maraþon, sem geta hjálpað þér að setja raunhæf markmið og fylgjast með framförum.

Æfðu af meiri nákvæmni

Training Readiness metur hversu tilbúinn líkaminn er fyrir næstu æfingu með hliðsjón af svefni, endurheimt og nýlegu æfingaálagi. Training Status og Training Load hjálpa þér að sjá hvort þjálfunin sé að skila framförum og hvort álagið sé hæfilegt. Að æfingu lokinni færðu einnig áætlaðan endurheimtartíma sem getur hjálpað þér að skipuleggja næstu æfingu.

Þjálfun sem tekur mið af þér

Með Garmin Coach geturðu fylgt æfingaáætlunum sem aðlagast getu þinni og markmiðum. Úrið býður einnig upp á daglegar æfingatillögur sem taka mið af núverandi formi, æfingasögu og endurheimt. Þannig færðu aðstoð við að skipuleggja þjálfunina og vinna markvisst að næstu markmiðum.

Meira en 100 leiðir til að hreyfa sig

Garmin Fenix 9 býður upp á yfir 100 æfinga- og íþróttastillingar, allt frá hlaupum, hjólreiðum og sundi til styrktaræfinga, golfs og útivistar. Með sérhæfðum mælingum fyrir ólíkar íþróttagreinar geturðu fylgst með frammistöðunni og fengið betri yfirsýn yfir árangurinn í hverri æfingu.

Fyrir hlaup og úthaldsíþróttir

Fenix 9 býður upp á ítarlegar mælingar fyrir hlaupara og úthaldsíþróttafólk. Með PacePro færðu leiðsögn um hlaupahraða sem tekur mið af hækkunum og lækkunum á leiðinni, á meðan ClimbPro sýnir upplýsingar um brekkur fram undan, meðal annars halla, vegalengd og hækkun. Úrið mælir einnig skrefatíðni, skrefalengd og snertitíma við jörðu, ásamt því að meta getu þína til að hlaupa upp brekkur með Hill Score.

Sérhæfðar mælingar fyrir ólíkar íþróttir

Fyrir þríþrautarfólk getur Fenix 9 skipt sjálfkrafa á milli íþróttagreina og haldið utan um tímana í hverjum hluta keppninnar. Fjallahjólreiðafólk getur nýtt Grit- og Flow-mælingar til að meta erfiðleikastig leiðarinnar og hversu vel tekst að halda hraða, á meðan sundfólk getur fylgst með vegalengd, sundtökum og hraða. Úrið býður einnig upp á sérhæfðar stillingar fyrir meðal annars skíði, golf, róður og fjölmargar aðrar íþróttagreinar.

Úrið býður einnig upp á stillingar fyrir óhefðbundnari íþróttir á borð við brimbretti, köfun, bogfimi og göngur með þyngdan bakpoka (e. rucking). Við brimbrettaiðkun getur úrið meðal annars skráð fjölda alda, hraða og vegalengd, auk þess sem það býður upp á sérhæfðar mælingar fyrir skíði, snjóbretti, golf og fjölmargar aðrar íþróttagreinar.

Æfingar í ræktinni

Fenix 9 nýtist einnig vel við æfingar innandyra. Úrið býður upp á sérstakar stillingar fyrir styrktaræfingar, HIIT, jóga og Pilates, ásamt æfingum með myndrænum leiðbeiningum á skjánum. Við styrktaræfingar getur úrið meðal annars talið endurtekningar og hjálpað þér að halda utan um æfingarnar.

Lengra með betri leiðsögn

Garmin Fenix 9 er búið öflugum leiðsögueiginleikum sem hjálpa þér að rata um ókunnugar slóðir, skipuleggja ferðir og fylgjast með staðsetningu þinni. Með nákvæmri GPS-tækni og ítarlegum kortum geturðu lagt af stað í næsta ævintýri með betri yfirsýn yfir leiðina fram undan.

Nákvæm staðsetning við krefjandi aðstæður

Með Multi-Band GPS getur úrið nýtt merki frá fleiri en einni tíðni gervihnatta til að bæta staðsetningarnákvæmni, meðal annars í þéttum skógi og fjalllendi. SatIQ-tæknin velur sjálfkrafa hentugustu GPS-stillinguna eftir aðstæðum og hjálpar þannig til við að halda jafnvægi á milli nákvæmni og rafhlöðuendingar.

Kort sem sýnir þér leiðina

Fenix 9 býður upp á ítarleg landakort sem auðvelda þér að átta þig á landslaginu og finna réttu leiðina. Endurbætt kortavinnsla gerir kortin hraðvirkari og ný þrívíddarlík sýn hjálpar þér að sjá betur hvernig landslagið liggur fram undan.

Þú getur einnig hlaðið inn fyrirfram ákveðnum leiðum og fengið beygjuleiðsögn beint á úrið. Þannig geturðu fylgt fyrirhugaðri leið án þess að þurfa sífellt að taka upp símann, hvort sem þú ert á hlaupum, hjóli eða í gönguferð.

Meira en bara æfingaúr

Garmin Fenix 9 er ekki aðeins hannað fyrir æfingar og útivist heldur einnig til að hjálpa þér að fylgjast með heilsu, líðan og daglegri virkni. Með fjölbreyttum heilsumælingum og snjalleiginleikum færðu betri yfirsýn yfir líkamann og getur nýtt úrið við fjölmargar daglegar athafnir.

Betri yfirsýn yfir heilsu og endurheimt

Með Body Battery færðu mat á orkubirgðum líkamans yfir daginn út frá meðal annars svefni, streitu og hreyfingu. Úrið fylgist einnig með hjartslætti, streitustigi og HRV (breytileika hjartsláttar), sem getur gefið vísbendingar um hvernig líkaminn bregst við álagi og hvíld.

Fenix 9 býður jafnframt upp á ítarlega svefngreiningu þar sem þú færð upplýsingar um svefnlengd, svefnstig og svefngæði. Með Pulse Ox geturðu einnig fylgst með áætlaðri súrefnismettun blóðsins.

Snjalleiginleikar sem nýtast á hverjum degi

Fenix 9 býður upp á fjölbreytta eiginleika sem gera daglega notkun þægilegri. Þú getur fengið tilkynningar úr símanum beint á úrið, greitt með Garmin Pay og hlustað á tónlist án þess að þurfa að hafa símann við höndina, að því gefnu að þú sért með samhæf heyrnartól og tónlistina vistaða á úrinu.

Með innbyggðum hljóðnema og hátalara geturðu einnig svarað símtölum í gegnum úrið þegar það er tengt við samhæfan snjallsíma. Í Garmin Connect appinu geturðu síðan skoðað heilsumælingar, æfingasögu og þróun árangurs yfir tíma.

Rafhlaða sem heldur í við þig

Löng rafhlöðuending hefur lengi verið einn af helstu styrkleikum Garmin Fenix-línunnar. Fenix 9 er hannað til að endast í gegnum langar æfingar, útivistarferðir og daglega notkun án þess að þurfa stöðuga hleðslu.

Rafhlöðuendingin fer eftir stærð úrsins og hvaða útgáfa er valin. Garmin Fenix 9 býður upp á allt að 10 daga rafhlöðuendingu í 43 mm útfærslunni, 16 daga í 47 mm og 29 daga í 51 mm. Fenix 9 Pro gengur enn lengra í stærri útfærslunum, með allt að 18 daga rafhlöðuendingu í 47 mm og 31 dag í 51 mm.

Við æfingar með virkri staðsetningarmælingu endist rafhlaðan í Fenix 9 í allt að 18, 30 eða 54 klukkustundir eftir stærð. Með SatIQ-tækninni getur úrið jafnframt aðlagað GPS-stillingarnar sjálfkrafa að aðstæðum til að nýta rafhlöðuna betur án þess að fórna staðsetningarnákvæmni að óþörfu.

Skoða Garmin Fenix 9 hér

Deila