Huawei X3 Pro WiFi Mesh kerfið
Skrifað 17. mars 2026
Ef WiFi sambandið heima hjá þér nær ekki til allra króka og kima eða hraðinn dettur niður þegar margir eru tengdir á sama tíma, þá getur Huawei X3 Pro WiFi Mesh verið lausnin. Þetta er öflugt mesh kerfi sem tryggir stöðugt, hraðvirkt og víðtækt þráðlaust net á heimilinu.
Fullkomið WiFi um allt heimilið
Mesh tæknin virkar þannig að nokkrir sendar vinna saman sem eitt net. Í stað þess að vera með einn router sem á erfitt með að ná til allra rýma, dreifir Huawei X3 Pro netinu jafnt um heimilið. Þetta þýðir:
Betra samband í öllum herbergjum
Minni truflanir og stöðugra net
Sjálfvirk tenging við sterkasta punktinn.
Þú getur því gengið um heimilið án þess að WiFi-ið detti út eða hægi á sér.
______
Hraði, eins og þú vilt á nútíma, íslensku heimili
Huawei X3 Pro er hannaður til að takast á við mikla netnotkun. Hvort sem þú ert að streyma í 4K, spila tölvuleiki í gegnum netið, vinna heima eða tengja saman snjalltæki, heldur kerfið tengingunni stöðugri.
3.6 Gbps Dual-Band WiFI 7
Knúið áfram af öflugum Chipset með Quad-magnara, skilar stöðugri tengingu sem nær í gegnum veggi.
______________
Hvernig setur þú upp X3 Pro WiFi Mesh kerfi. part 1
Part 2