Hvað á ryksugan að heita?
Skrifað 23. júlí 2025
Nú þegar ryksuguvélmenni eru vinsæl gerð af ryksugum og algeng á heimilum landsmanna er spurning hversu stórt hlutfall vélmenna fá nafn.
Hvort sem það er ryksuguvélmenni, skaftryksuga eða hefðbundin ryksuga er alltaf skemmtileg hefð að gefa nýja fjölskyldumeðlimnum nafn, án þess að hafa hafa sérstaka athöfn eða skrásetningu í kringum það, nema þá kannski í smáforritinu ef þetta er ryksuguvélmenni.
Hér fyrir neðan eru nokkrar tillögur ef þú ert að pæla hvað ryksugan á að heita, kannski áttu eina gamla sem hefur aldrei fengið nafn eða ný ryksuga er kominn á heimilið sem vantar nauðsynlega nafn.
Gott að hafa í huga áður en þú velur nafn.
Það er ekkert að því að velja vinsælt nafn. En það er spurning hvort nafnið er vinsælt núna en verður úrelt eftir nokkra mánuði. En þetta er auðvitað bara nafn á ryksugu svo það kostar ekkert að breyta því seinna.
Passar nafnið í fjölskylduna? Sumir skýra börnin sín þannig að þau byrja öll á sama stafnum eða hafa sama millinafn, er það eitthvað sem þú vilt hafa í huga þegar nafn er valið?
Er börn á heimilinu? passaðu að velja barnvænt nafn.
Það er auðvitað alls ekki nauðsynlegt að velja nafn sem enginn önnur ryksuga heitir en það er gaman að finna eitthvað eintakt nafn.
Skiptir máli að nafnið hljómi skemmtilega í setningu? „Tengdamamma er að ryksuga„, „Ég ætla að senda skilaboð á R2D2 um að ryksuga áður en ég kem heim„.
Tillögur að nöfnum
Nöfn tengd kvikmyndum og þáttaröðum
Robo Fett
Mrs. Doubtfire
Optimus Prime
Grogu (Baby Yoda)
Wall-E
EVE
Bender
R2D2
CP3O
BB-8
Pickachu
Mando
Rambo-bot
Minion
Buzz
Sokki (Kötturinn úr Ljósár)
Leikur að orðum:
Frið-ryk
Robbi
Sogmundur
Friðþjófur
Tengdamamma
Hjónabandsráðgjafi
Sökker
Sópfús
Bjargvætturinn
Heimilishjálpinn
Robbi húsvörður
Uppáhaldið
Vinsæl erlend nöfn fyrir ryksugvélmenni
Dusty
Bestie
Jarvis
Discovery
Neymar
Alfred
The Bot
P-Body
Bob
Beyoncé
Dexter
Mildred
Marvin
Audrey
A Life Saver
Moon Pie
Pumba
Morty
Steve
Cyborg
The Lazy Husband
Rick
Bane
Karl
Percy
Cat Sitter
Fred
Nitro
Audrey
DJ Roomba
Metal Man
Cat car
Rex
Nöfn ryksuguvélmenna á íslenskum heimilum
Albert
Alexandra
Ari
Bob
Bobbi
Brandur
Christopher
Dobby
Drulli
Dublin
Dúddi róbot
Dwayne „The Roborock“ Johnson
Eirka
Fanney
Fíóna
Friðryk
Friðryka
Gorgrímur
Hannes
Honey
Johann
Kiddi
Kisi
Kolla
Lalli
Litla vinnukonan
Lína
Lupe
Meril Sweep
Núnú (Eins og í Stubbunum)
Pawel
Pinky
Ragnar
Ricksuga
Rikki ryksuga
Robbi
Robbi Róbot
Robocop
Rosita
Róbert gólfahrellir
Róbótínn
Rósa
Rúmbla
Rúryk
Rykfinnur
Rykhildur
Rykmundur
Sigga
Skúli
Skvísa
Snati
Suga
Tessa
Theodór
Vala
Valli
Vilhjálmur
Vinnukonan
Þórmundur
Þrif Hildur
Öskubuska
Heimilid:Listinn fyrir ‘Nöfn ryksuguvélmenna á íslenskum heimilum var unnin út frá könnun í gegnum STORY á Instagram 7.1.2021.
Engin ryksugunafnanefnd var notuð við gerð listans en ef hún væri stofnuð væri skilgreining á henni líklega eftirfarandi:
Ryksugunafnanefnd
Ryksugunafnanefnd er alls ekki skipuð í samræmi við ákvæði laga um mannanöfn nr. 45/1996. Ryksugunafnanefnd yrði líklega skipuð þremur aðalmönnum og einum til vara. Ekki er krafa að einn nefndarmaður sé skipaður að fenginni tillögu heimspeki- eða íslenskudeildar Háskóla Íslands heldur þurfa meðlimir nefndar að hafa góðan húmor og kostur ef þeir eiga ryksugu.
Ef þú ert að íhuga að fá þér ryksugu getur þú skoðað úrvalið hér.
Blogg uppfært í júlí 2025