INNKÖLLUN: Rafhlöður í Bose S1 Pro og S1 Pro+ hátölurum
Skrifað 9. nóvember 2026
⚠️ Hættið notkun rafhlöðunnar strax ef raðnúmer hennar er á listanum hér að neðan.
Bose og Ofar, umboðsaðili Bose á Íslandi, innkalla rafhlöður sem fylgdu Bose S1 Pro og S1 Pro+ hátölurum og voru einnig seldar stakar sem aukahlutir og varahlutir. Rafhlöðurnar geta ofhitnað og valdið eldhættu. Innköllunin nær aðeins til rafhlöðunnar, ekki hátalarans sjálfs.
Vara:
Rafhlöður í Bose S1 Pro og S1 Pro+ hátölurum, einnig stakar rafhlöður seldar sem aukahlutir eða varahlutir
Vörunúmer í ELKO:
8695832100 (Bose S1 Pro+)
Strikamerki (EAN):
017817837316 (Bose S1 Pro+)
Raðnúmer sem falla undir innköllunina (fyrstu sex tölustafir):
083723, 078352, 084105, 078591, 078592, 084106, 086409
Hvar er raðnúmerið?
Undir strikamerkinu á miða rafhlöðunnar (17 tölustafir)
Athugið: Sumir S1 Pro hátalarar voru seldir án rafhlöðu. Ef Bose rafhlöðu var bætt við síðar þarf að athuga hana á sama hátt. Ef raðnúmerið byrjar ekki á neinni af tölunum hér að ofan fellur rafhlaðan ekki undir innköllunina og óhætt er að nota hana áfram.
Fellur rafhlaðan mín undir innköllunina?
Raðnúmer rafhlöðunnar er 17 tölustafir og er prentað undir strikamerkinu á miða rafhlöðunnar. Berið fyrstu sex tölustafina saman við listann hér að ofan. Til að skoða rafhlöðuna: slökkvið á hátalaranum, takið hann úr sambandi, fjarlægið tvær skrúfur á botninum og togið rafhlöðuna út á flipunum.
Hvað á ég að gera?
Hættið strax notkun rafhlöðunnar og fjarlægið hana úr hátalaranum.
Skráið hjá ykkur raðnúmer rafhlöðunnar. Það þarf til að fá nýja rafhlöðu.
Sendið raðnúmerið til Ofar í gegnum formið á innköllunarsíðu Ofar (sjá hlekk hér að neðan).
Skilið gömlu rafhlöðunni í Þjónustumiðstöð Ofar, Köllunarklettsvegi 8. Ekki henda henni með heimilissorpi eða í almenna endurvinnslu.
Viðskiptavinir fá nýja rafhlöðu án endurgjalds um leið og hún berst frá Bose. Á meðan má nota hátalarann áfram með rafmagnssnúru, án rafhlöðu.
Hafa samband
Nánari upplýsingar og form fyrir raðnúmer eru á innköllunarsíðu Ofar, umboðsaðila Bose á Íslandi: ofar.is/frettir/innkollun-a-rafhlodum-i-bose-s1-pro-og-s1-pro-hatalara. Spurningar um kaup í ELKO: þjónustuver ELKO, sími 544 4000 eða netfang elko@elko.is.