Snjallsíminn er jólagjöf ársins 2026
Skrifað 11. nóvember 2026
Jólakönnun ELKO 2026
Niðurstöður árlegrar jólakönnunar ELKO fyrir árið 2026 liggja nú fyrir og samkvæmt þeim er snjallsíminn jólagjöf ársins 2026. Hamborgarhryggurinn, Home Alone og gervijólatréð halda velli sem fastir liðir jólanna og miðgildi skógjafar er 1.000 kr. samkvæmt svarendum. Alls svöruðu 3.257 manns könnuninni, sem send var á póstlista ELKO og stóð frá 24. október til 3. nóvember.
Þegar spurt var opið „Hver er jólagjöf ársins í ár?“ nefndu 10,9% snjallsíma, tvöfalt fleiri en nefndu næstu gjöf á listanum. Snjallsíminn endurheimtir því toppsætið eftir að Ninja CREAMi hirti það í fyrra. Ísvélin vinsæla fer þó ekki neðar en í 5. sæti, þrátt fyrir að vera til á um 19% heimila svarenda. Fyrir ofan hana eru aðrir fastagestir listans: snjallúr, heyrnartól og ryksugur.
Hörð keppni um næstu sæti
Næst á eftir símanum koma snjallúr (5,2%), heyrnartól (4,3%), ryksugur (3,8%) og Ninja CREAMi ísvélin (3,7%). Nærri helmingur þeirra sem nefndu síma (48%) nefndi iPhone sérstaklega, en Apple er það vörumerki sem flestir tengja við jólagjöf ársins (28,8%). Þar á eftir koma Samsung (26,8%) og Ninja (20,1%).
Það voru þó ekki bara tæki og tól sem komust á listann að þessu sinni. Samvera, ást og friður er í 6. sæti (3,2%) og gjafabréf og upplifanir komust einnig á topp 20.
Nóvember er jólagjafamánuðurinn
42% svarenda ætla að byrja jólagjafainnkaupin í nóvember og 57% segja mjög líklegt að þau kaupi jólagjafir á afsláttardögunum: Degi einhleypra, Svörtum föstudegi og Stafrænum mánudegi. Aðeins 1% skilur innkaupin eftir til Þorláksmessu, en 9% eru með augun opin fyrir jólagjöfum allan ársins hring.
Flestir (69%) ætla að verja svipaðri upphæð í jólagjafir og í fyrra, 16% minna og 15% meira. Yngstu svarendurnir virðast þó gjafmildastir: í hópnum 18–24 ára ætla 22% að eyða meira en í fyrra og aðeins 11% minna. Hjá 25–34 ára er þessu öfugt farið, þar ætla fleiri að eyða minna (25%) en meira (17%).
Innkaupalistinn er langur hjá mörgum, en 45% gera ráð fyrir að kaupa fleiri en tíu jólagjafir fyrir þessi jól, sem er sambærilegt við niðurstöður síðustu ára. Jólagjafahandbók ELKO er áfram föst hefð: 97% ætla að fletta henni og helmingur les hana eingöngu rafrænt.
Eins náttföt, gervitré og 1.000 króna skógjöf
Um fimmtungur svarenda (19,6%) segir alla á heimilinu eiga eins jólanáttföt og 8,4% til viðbótar ætla að bæta úr því fyrir jólin.
Skógjöfin: Helmingur svarenda telur að skógjöf frá jólasveininum megi kosta um 1.000 krónur. Kertasníkir hugsar þó líka til fullorðna fólksins, því um 22% svarenda fá í skóinn á aðfangadag og 18% segja að það komi í ljós.
Jólatréð: 68% svarenda eru með gervitré en 22% með alvöru tré. 7% setja ekki upp jólatré.
Gjöf handa sjálfum sér: 32% kaupa jólagjöf handa sjálfum sér og 9% pakka henni meira að segja inn og setja undir tréð.
Skilin: 74% hafa einhvern tímann þurft að skila jólagjöf. Hjá ELKO má skila og skipta jólagjöfum til 31. janúar 2027.
LEGO: 92% segja að LEGO sé líka fyrir fullorðna, 42% ætla að gefa LEGO í ár og 31% segja kannski. ELKO hóf sölu á LEGO í fyrra og fæst það nú í nær öllum verslunum ELKO. Allt úrvalið má skoða á elko.is.
Spil: 62% ætla að kaupa nýtt spil fyrir jólin, til eigin nota eða til að gefa.
Jóladagatal: 35% ætla að kaupa sér jóladagatal. Súkkulaðidagatalið er langvinsælast en snyrtivöru-, unaðs- og kaffidagatöl koma þar á eftir.
Hamborgarhryggur og Home Alone
Hamborgarhryggurinn er á borðum 42% svarenda á aðfangadag. Næst koma lambakjöt (9%), kalkúnn (8%) og rjúpa (5%). Home Alone er uppáhaldsjólamyndin (21%) og þar á eftir kemur Christmas Vacation (12%). The Grinch, Die Hard og The Holiday eru svo nánast hnífjafnar, hver með um 9%.
„Síminn er orðinn þungamiðjan í daglegu lífi fólks“
Síminn er sú vara sem fólk notar mest á hverjum degi og það kemur okkur ekki á óvart að hann tróni á toppnum í ár. Það sem gleður okkur líka er hversu fjölbreyttar óskirnar eru, en þær spanna allt frá ísvélum, heilsu- og snyrtivörum og ryksuguvélmennum upp í samveru og upplifanir. Það er góð áminning um að jólin snúast um samveru og góðar stundir en ekki bara gjafirnar.
Við hjá ELKO höfum unnið af miklu kappi með birgjunum okkar við undirbúning jólanna og því ættu viðskiptavinir að geta fundið ótal vinsælar jólagjafir fyrir alla fjölskylduna allt til jóla.
Um könnunina
Jólakönnun ELKO var opin netkönnun sem stóð yfir frá 24. október til 3. nóvember 2026. Alls svöruðu 3.257 manns. Hlutföll miðast við þá sem svöruðu hverri spurningu og opin svör voru flokkuð eftir efni. Könnunin byggir ekki á slembiúrtaki.