Vorhreingerning
Skrifað 15. apríl 2026
Hvað er betra en hreint heimili?
Hefurðu einhvern tímann byrjað að taka til en veist ekki alveg hvar á að byrja? Með góðu plani verða heimilisþrifin einfaldari, skipulagðari og jafnvel skemmtilegri!
Hvað gerir þú daglega og hvað vikulega? Með því að skipta verkunum niður verður auðveldara að halda heimilinu hreinu og að verkin safnist ekki upp. Við höfum útbúið frítt prentefni sem hjálpar þér að halda yfirsýn yfir þrifin, hvað hefur verið gert og hvað er næst á dagskrá.
Í ELKO finnur þú allt sem þarf til að einfalda þrifin, allt frá hreinsiefnum fyrir heimilistæki yfir í öflug hreingerningatæki sem spara þér tíma og fyrirhöfn.
Hver ryksugar á þínu heimili?
Er kannski kominn tími til að útdeila þessu verkefni yfir á annan eða viltu kannski uppfæra í nýja skaftryksugu eða fá vél sem hentar gæludýraeigendum? Sama hvað hentar þér þá erum við með ryksuguna.
Hér fyrir neðan eru flýtileiðir til að skoða blogg eða vörur
Hvernig þværð þú gólfin?
Í ELKO finnur þú fjölbreytt úrval af skúringarvélum, gufumoppum og fleiru sem hjálpa þér að halda gólfinu tandurhreinu.
Hér fyrir neðan eru flýtileiðir til að skoða blogg eða söluvörur á elko.is
Hvenær var uppþvottavélin síðast þrifin?
Uppþvottavélin þvær leirtau fyrir þig líklega 3-7 sinnum á viku. Hvenær fékk uppþvottavélin sjálf sinn dekurdag? 2-4 sinnum á ári þarf að þrífa hana vel, nota t.d. sérstök hreinsiefni og setja vélina í gang tóma.
Vissir þú að í ELKO er fáanleg hreinsiefni fyrir þvottavélar, uppþvottavélar, ofna og ísskápa?
Hér fyrir neðan eru flýtileiðir til að skoða blogg eða vörur
Góð ráð fyrir þvottavélina
Hvort sem þvottahúsið er lítið eða stórt þá er alltaf hægt að halda því fínu og fersku og skiptir þá miklu máli að þvottvélin sjálf sé hrein. Smelltu hér til að lesa blogg um umgengisrelgur fyrir þvottavélar.
Hér fyrir neðan eru flýtileiðir til að skoða blogg eða vörur
Hversu oft þrífur þú grillið?
Hvernig á að þrífa grill? Góð grillun fæst með hreinni grillgrind og það er lítil vinna sem þarf til þess að halda grillgrindinni hreinni. Með góðum grillbursta, olíu og 15 sekúndum á heitu grillinu kemstu langt með það að hreinsa grillið fyrir eða eftir grillun.
Hér fyrir neðan eru flýtileiðir til að skoða blogg eða vörur
Hvernig er loftið heima?
Loftgæði heimilisins skipta öllu máli, því ef loftið heima hjá þér er þungt og slæmt þá er víst að orkan þín falli og þú fáir höfuðverk. Mælt er með því að opna hurðar og glugga í að minnsta kosti 5-10 mínútur á hverjum degi til þess að skipta loftinu út fyrir nýtt. Með því erum við að tryggja að fá inn ferskara loft inn á heimilin okkar. Stundum er þó mikilvægt að skoða tæki sem aðstoða þig við að ná þínum markmiðum í loftslagsmálum.
Hér fyrir neðan eru flýtileiðir til að skoða blogg eða vörur
Vissir þú að í ELKO er fáanleg sérstök hreinsiefni fyrir þvottavélar, uppþvottavélar, ofna, kaffivélar, grill og ísskápa?