ELKOELKO
ELKOELKO

Saltkaramellu og súkkulaði tartaletta

Skrifað 23. september 2017

Ég rakst á þessa uppskrift hjá Ninjakitchen og mátti til að deila henni með ykkur. Tilvalin fyrir okkur sem langar í sætan bita í notalegu haustveðri.

Það tekur um klukkustund að gera hana og uppskriftin er fyrir 4.

Það sem þú þarft:

Botninn

  • 100g glútein fríir hafrar

  • 65g brúnt rísmjöl

  • 35g kakó

  • 2 msk möndlumjólk

  • 40ml hlynsýróp

  • 50g fljótandi kókosolía

  • 40g tahini (sesam paste)

Fylling

  • 100g steinlausar döðlur

  • 1/2 tsk vanillu extract

  • 4 msk möndlusmjör

  • saltklípa

Toppurinn

  • 75gr bráðin kókosolía eða kakósmjör

  • 30ml hlynsýróp

  • 1/2 tsk vanillu extract

  • saltklípa

  • 30g kakó

  • 2 msk möndlumjólk

Til skrauts, ef vill

  • kakóknibbur

  • kókosflögur

  • það sem hugmyndaflugið hefur býður þér upp á

Aðferð

  • Saxaðu hafrana í blandaranum þar til þeir verða að mjöli.

  • Settu haframjölið í skál með restinni af hráefnunum fyrir botninn.

  • Hrærðu aðeins og blandaðu svo betur saman með hreinum höndum.

  • Taktu nú 4 lítil tartalettuform og settu smjörpappír í botninn.

  • Skiptu deiginu í 4 parta og pressaðu þeim svo í hvert form

  • Settu nú í frysti í 30 mín.

  • Fyrir fyllinguna, settu öll hráefnin í blandarann og blandaðu þar til þú færð þykka karamellu (þú þarft eflaust að skafa með hliðunum annað slagið).

  • Settu fyllinguna í tartaletturnar og losaðu þær varlega úr mótunum.

  • Settu þær aftur í fyrstinn.

  • Blandaðu nú saman öllum hráefnunum fyrir toppinn og leyfðu því að hvíla í 5 mínútur.

  • Smyrðu nú toppnum á tartaletturnar.

  • Skreyttu að vild.

Njóttu!

Deila
Stafrænn ráðgjafi ELKO