Samsung Galaxy S25 Ultra
Skrifað 23. janúar 2025
Samsung Galaxy S25 Ultra er fyrir þá sem vilja aðeins það besta. Myndavélin er nú með brautryðjandi notkun á gervigreind og enn betri vélbúnað fyrir betri aðdrátt og aukin gæði. Að vanda er Galaxy S25 Ultra með innbyggðan S-penna sem er vatnsvarinn samkvæmt IP68-vottun.
Ennþá snjallari með Galaxy AI
S25 línan brýtur blað með framúrstefnulegri nýtingu gervigreindar til þess að auka notagildi símans meðal annars með rauntímaþýðingum milli tungumála og enn betri ljósmyndum og myndskeiðum.
Hönnun
Galaxy S25 Ultra heldur í klassískt en samtímalegt útlit Samsung með mjúkum línum og minimalískum stíl. Skjárinn er 6,9 tommu Dynamic AMOLED 3X með 4K upplausn og 120Hz endurnýjunartíðni. Þessi skjár tryggir ótrúlega skýra mynd, djúpa liti og slétta hreyfingu, hvort sem þú ert að skoða myndbönd, spila leiki eða vinna í forritum.
S25 Ultra er sterkbyggður með Titanium ramma.
S-penninn
Glósaðu á skjáinn hvenær sem er eða nýttu pennann til að fínpússa myndefnið þitt áður en þú deilir því. S Penninn hefur marga eiginleika upp á að bjóða og virkar bæði sem penni og pensill sem opnar á nýjar leiðir til þess að skapa.
Rafhlaðan
Rafhlaðan er 5000 mAh og styður 65W hraðhleðslu, sem þýðir að hægt er að hlaða símann upp í 50% á innan við 20 mínútum.
Krafurinn
S25 Ultra er knúinn af nýjasta Snapdragon 8 Elite. Síminn kemur með allt að 16 GB vinnsluminni og 256GB, 512GB eða 1 TB geymsluplássi.
Gríðarlega öflugir örgjörvar tryggja mjúka og kraftmikla vinnslu S25 Ultra hvort sem er í leik eða starfi. Geta og afl síma ræðst af mörgum þáttum. Samsung Galaxy S25 Ultra er keyrður á Snapdragon 8 Elite fyrir Galaxy, hraðasti og öflugasti örgjörvi í Samsung hingað til.
Meiri afkastageta og styttri svartímar. En það er ekki bara örgjörvinn sem gerir þennan síma hraðan og öflugan, hann er einnig með 12GB vinnsluminni og stillingar á forritum hjálpa við að gera símann öflugri.
Samanburður á Galaxy S25, S25+ og S25 Ultra
Hvað er í kassanum?
Smelltu hér til að skoða Samsung Galaxy S25 Ultra á elko.is.
Helstu tæknileg atriði:
Hönnun og skjár:
6,9 tommu Dynamic AMOLED 3X skjár með 120Hz endurnýjunartíðni.
4K upplausn og S Pen stuðningur fyrir fjölhæfni.
Myndavélar:
200 MP aðalmyndavél með „AI Photo Genius“ tækni.
50 MP Ultra-Wide og 50/10 MP telephoto með 10x optískum aðdrætti.
12MP sjálfumyndavél
Yfirburðar ljósmyndunargeta fyrir áhugafólk um myndir.
Afköst og rafhlaða:
Allt að 16 GB vinnsluminni og 512GB eða 1TB geymslupláss.
5000 mAh rafhlaða með 65W hraðhleðslu.