ELKOELKO
ELKOELKO

Sous Vide Creme Brulee uppskrift

Skrifað 26. janúar 2018

Creme brulee hefur alltaf verið vinsæll eftirréttur en margir sem hafa ekki lagt í að gera hann heima frá grunni. Það er alger óþarfi að mikla það fyrir sér, þetta er í raun sára einfalt!

Með Sous Vide aðferðinni færðu fullkominn Creme brulee – alltaf!

Hráefni:
  • Eggjarauður úr 4 stórum eggjum (80g)

  • 300ml rjómi

  • 45g sykur

  • örlítið salt

  • Valkostur: 1 vanillustöng (mæli með!)

Áhöld:
  • Sous Vide tæki

  • Pottur eða plastbox fyrir vatnsbaðið

  • Krukkur með loki (4-6)

  • Brennari

Aðferð:
  • Stilltu Sous Vide tækið á 80°C (Ef þú ert með Anova getur þú fundið uppskriftina í appinu.

  • Blandaðu saman eggjarauðum, sykri, rjóma og salti*. Hrærðu því vel saman og notaðu sigti til að fjarlægja loftbólur. *Ef þú vilt búa til vanillu Creme Brulee getur þú bætt við fræjum úr einni vanillustöng

  • Helltu blöndunni í krukkur.

  • Settu krukkurnar í vatnsbaðið. Leyfðu þeim að vera í vatnsbaðinu í 1 klst við 80°C.

  • Eftir klukkustund fjarlægir þú krukkurnar úr vatnsbaðinu og setur á ís til að kólna í 2 klukkustundir.

  • Stráðu sykri yfir og notaður brennara til að brenna sykurinn.

Heimild: www.anovaculinary.com | Höfundur: Wook Yoo Yong
Deila
Stafrænn ráðgjafi ELKO