ELKOELKO
ELKOELKO

Svalandi uppskriftir fyrir Ninja Slushi

Skrifað 10. júní 2026

Þegar sólin skín og hitinn hækkar er fátt betra en ískaldur drykkur til að kæla sig niður. Hvort sem það er á pallinum, í garðveislu eða á heitum sumardegi, þá getur krap, frappé eða ískaldur ávaxtadrykkur verið fullkomin hressing.

Ninja Slushi

Breyttu uppáhalds drykkjunum þínum í krap

Ninja Slushi krapvélin er hönnuð til að gera það einfalt að útbúa ískalda drykki heima við. Með Rapid Chill kælitækni getur vélin breytt uppáhaldsdrykkjunum þínum í krap á um 30 mínútum, án þess að bæta þurfi við ís eða hræra handvirkt.

Vélin býður upp á fimm forstillt kerfi sem gera þér kleift að velja á milli mismunandi drykkja, eins og kraps, frosinna kokteila, frappé, mjólkurhristinga og frosinna safa. Þetta gerir hana fjölhæfa og hentuga fyrir bæði hversdagslega notkun og tilefni.

Með 2,5 lítra tanki er hægt að útbúa nokkra skammta í einu, sem hentar vel þegar fleiri eru saman. Vélin getur einnig haldið drykkjum köldum í allt að 12 klukkustundir, sem gerir auðvelt að undirbúa drykki fyrirfram.

Öflugur 800W mótor tryggir jafna áferð á drykkjunum án þess að bæta þurfi við ís. Til að ná réttri áferð þarf að nota drykki með sykri, þar sem sykurinn hjálpar til við að mynda krapið.

Ninja Slushi uppskriftir

Með Ninja Slushi er auðvelt að prófa sig áfram með mismunandi. Hér fyrir neðan eru nokkrar einfaldar og svalandi uppskriftir sem henta vel fyrir sumarið. Flestar þeirra duga fyrir um 2–3 glös og eru fljótlegar í undirbúningi.

Óáfengt

Jarðaberja mjólkurhristingur

Ef þú ert að leita að klassískum jarðaberja mjólkurhristingi þá er þessi uppskrift sú rétta fyrir þig.

Hráefni

  • 600 ml nýmjólk

  • 30 ml rjómi

  • 1 tsk vanilludropar

  • 60 ml jarðarberjasósa eða eftir smekk

Aðferð

  • Blandið öllum hráefnum saman í skál eða könnu

  • Hellið blöndunni í Ninja Slushi vélina

  • Veljið Milkshake stillinguna

  • Þegar vélin gefur merki um að drykkurinn sé tilbúinn er hægt að hella honum í glas og bera fram strax

Tilvalið með

  • Ferskum jarðarberjum

  • Þeyttum rjóma

  • Smá jarðarberjasósu yfir til skrauts

Karamellu frappé

Fyrir þá sem elska ískaffi er karamellu frappé frábær leið til að breyta kaffibollanum í svalandi sumardrykk. Samblanda af kaffi, rjóma og karamellusósu skapar mjúka og kremkennda áferð með sætum karamellukeimi.

Hráefni

  • 240 ml kaffirjómi (e. half & half)

  • 480 ml kalt svart kaffi

  • 80 ml karamellusósa

Aðferð

  • Blandið kaffi, kaffirjóma og karamellusósu saman þar til blandan er jöfn

  • Hellið blöndunni í Ninja Slushi vélina

  • Veljið Frappé stillinguna

  • Þegar drykkurinn hefur náð réttri áferð er hægt að hella honum í glas

Tilvalið með

  • Þeyttum rjóma

  • Karamellusósu

Súkkulaði mjólkurhristingur

Fyrir þá sem elska klassískt súkkulaðibragð er þessi mjólkurhristingur einföld og ljúffeng uppskrift.

Hráefni

  • 480 ml nýmjólk

  • 250 ml rjómi

  • 1 tsk vanilludropar

  • 60 ml súkkulaðisósa eða eftir smekk

Aðferð

  • Blandið öllum hráefnum saman í skál eða könnu þar til blandan er jöfn

  • Hellið blöndunni í Ninja Slushi vélina

  • Veljið Milkshake stillinguna

  • Þegar vélin gefur merki um að drykkurinn sé tilbúinn er hægt að hella honum í glas og bera fram

Tilvalið með

  • Þeyttum rjóma

  • Toppað með súkkulaðispæni

Áfengt

Frosin mímósa

Ef þú ert að leita að svalandi drykk fyrir sumarið eða helgarbrönsinn, þá er frosin mímósa skemmtileg útfærsla á klassíska drykknum. Sambland af appelsínusafa og freyðivíni verður að ísköldum og léttum krapdrykk sem hentar vel á sólríkum dögum.

Hráefni

  • 300 ml appelsínusafi

  • 420 ml freyðivín

Aðferð

  • Hellið appelsínusafa og freyðivíni í Ninja Slushi vélina

  • Veljið Spiked Slush stillinguna

  • Þegar vélin gefur merki um að drykkurinn sé tilbúinn er hægt að hella honum í glas og bera fram

Tilvalið með

  • Appelsínusneið til skrauts

Piña colada

Ef þig langar í drykk sem minnir á sumar og sól, þá er Piña Colada krap skemmtilegur kostur. Samblanda af ananas og kókoshnetu skapar mjúkan og svalandi drykk sem hentar vel á heitum dögum.

Hráefni

  • 480 ml ananassafi

  • 240 ml kókosrjómi

  • 240 ml ljóst romm (má einnig nota kókoslíkjör fyrir sætara bragð

Aðferð

  • Hellið öllum hráefnum í Ninja Slushi vélina

  • Veljið Spiked Slush stillinguna

  • Þegar vélin gefur merki um að drykkurinn sé tilbúinn er hægt að hella honum í glas og bera fram strax

  • Helltu í glös og berðu fram

Tilvalið með

  • Ananassneið til skrauts

Jarðarberja Daiquiri krap

Ferskur og sumarlegur drykkur þar sem jarðarber og límóna fara vel saman. Hentar vel á sólríkum dögum eða þegar þú vilt eitthvað svalandi með ávaxtabragði.

Hráefni

  • 300 g jarðaber (frosin eða fersk)

  • 120 ml límónusafi

  • 60 ml ljóst romm

  • 60-120 ml sykursíróp (eftir smekk)

  • 240 ml kalt vatn

Aðferð

  • Maukaðu jarðarberin eða blandaðu þeim vel saman við önnur hráefni

  • Helltu blöndunni í Ninja Slushi vélina

  • Veldu Spiked Slush stillinguna

  • Þegar drykkurinn hefur náð réttri áferð er hægt að hella honum í glös og bera fram

Tilvalið með

  • Ferskum jarðarberjum

  • L+imónusneið

  • Myntulaufi

Smelltu hér til að skoða Ninja Slushi krapvélina á elko.is

Deila
Stafrænn ráðgjafi ELKO