Það er einfalt að flytja gögn úr gamla símanum
Skrifað 8. desember 2023
Ertu að íhuga að færa þig yfir í Samsung Galaxy síma eða uppfæra úr gömlum Galaxy yfir í nýjan? Með Smart Switch er auðvelt að færa gögn og jafnvel stillingar yfir í nýjan símann.
Hönnnunin. Íslenska notendaviðmótið. Frelsið fyrir þig sem notanda. — Þær eru margar og mismunandi ástæðurnar sem fólk hefur til að skipta yfir í Samsung Galaxy. Og fyrir þig sem þegar hefur ákveðið þig — eða ert að velta því fyrir þér — erum við hér með leiðbeiningar sem gera flutninginn vonandi enn auðveldari.
Skref 1. Tendu. Notaðu þráðlausa tengingu eða USB snúru til að tengja símana saman. Þú verður að setja upp Smart Switch forritið bæði í gamla og nýja símann. Þegar nýji síminn tengist þeim gamla kemur upp QR kóði sem hægt er að skanna svo þeir tengjast.
Skref 2. Veldu. Passaðu að Smart Switch forritið er opið. Veldu hvaða efni, símaskrá, stillingar og myndefni þú vilt flytja yfir. Ef það er eitthvað sem þú vilt ekki fær í nýja símann, slepptu því að haka við það.
Skref 3. Færðu gögn yfir. Leyfðu gögnum og stillingum að færast yfir. Nýji síminn verður tilbúin eftir smá.
Fyrir iPhone
Skref 1. Tendu. Notaðu *USB snúru til að tengja símana saman. Þú verður að setja upp Smart Switch forritið bæði í gamla og nýja símann. Til að leyfa símanum að færa gögn þarf að velja ‘Trust this device / computer’ þegar það kemur upp í iPhone símanum velur þú ‘Trust’.
Skref 2. Veldu. Passaðu að Smart Switch forritið er opið. Veldu hvaða efni, símaskrá, stillingar og myndefni þú vilt flytja yfir. Ef það er eitthvað sem þú vilt ekki fær í nýja símann, slepptu því að haka við það.
Skref 3. Færðu gögn yfir. Leyfðu gögnum og stillingum að færast yfir. Nýji síminn verður tilbúin eftir smá. Ef þú ert að gleyma einhverjum gögnum getur þú valið ‘Get your iCloud data’ og skráðu þig inn á iCloud aðganginn. Veldu efni sem þú vilt færa yfir í Samsung Galaxy símann og veldu ‘import.
*ATH að óvirkja two-step verfication on your Apple ID áður en þú byrjar ferlið.
Smart Switch og Samsung spjaldtölvur
Þú getur notað sama ferli með spjaldtölvu, hvort sem þú ert að fara úr Android spjaldtölvu í Samsung Galaxy Tab eða úr iPad.
Ertu að kaupa Samsung Galaxy Book fartölvu?
Einnig er hæg tað nota Smart Switch til að færa gögn frá eldri fartölvu í Samsung Galaxy Book fartölvu.
Uppfært júlí 2026