Þessi sími er algjör A sími
Skrifað 19. apríl 2022
Galaxy A53 snjallsíminn frá Samsung hefur margt að bjóða en er þó einfaldur í hönnun með myndavél sem fellur inn í bakhlið símans og mjúkar línur á hornum.
Samsung Galaxy A53 5G snjallsíminn er með glæsilegan 6,5″ Super AMOLED snertiskjá með 120 Hz endurnýjunartíðni auk 64 + 12 + 5 + 5 MP bakmyndavél sem hefur að geyma Optical Image Stabilization. Hönnunin tryggir IP67 vottun og 5000 mAh rafhlöðu með 25W hraðhleðslu en einnig Bluetooth 5.1 og Dolby Atmos stuðning.