ELKOELKO
ELKOELKO

Vertu hluti af snjallheiminum með Hombli

Skrifað 10. september 2022

Viltu gera heimilið þitt að snjallheimili? Þá ertu að lesa rétt blogg. Með Hombli er auðveldara og skemmtilegra að snjallvæða heimilið. Þú notar aðeins eitt forrit til að stjórna heimilinu og stillir inn tímaáætlanir fyrir ljósaperur og snjallrofa… Listinn af möguleikum er endalaus en hér eru tíu ástæður af hverju þú ættir að velja Hombli.


1. Auðvelt í notkun

Hombli býður þér notendavæna og einfalda lausn til að setja upp snjallheimili. Allar vörurnar frá Hombli eru auðveldar í uppsetningu og jafnvel auðveldari í notkun. Allt sem þú þarft er eitt snjallforrit – Hombli.

Innan nokkurra sekúndna er hægt að tengja snjallljósin þín, snjallinnstunguna og önnur Hombli-tæki við þráðlausa netið (2.4Ghz) og ekki er þörf á aukabúnaði eins og brú* eða tengistöð, eða stóran uppsetningarbækling til að lesa. Uppsetningin er svo þægileg að það er líklegt að allir, jafnvel afar og ömmur, geti notað vörurnar. Ef þig vantar aukaleiðbeiningar (eða finnst bara þægilegra að lesa þær) getur þú skoðað umfangsmikinn lista af algengum spurningum inni á heimasíðu Hombli eða horft á eitt af mörgum leiðbeiningarmyndböndum sem þar er að finna.

*Hreyfiskynjarar og fjölnotaskynjarar tengjast við Hombli Bluetooth brú sem tengist svo við WiFi netið.

2. Eitt snjallforrit er allt sem þú þarft

Eins og var nefnt hér að ofan þarftu aðeins eitt forrit til að nota snjallheimilisvörurnar frá Hombli með góðum árangri. Hombli-smáforritið er hannað á einfaldan máta, án óþarfa aukahluta, sem tryggir að það er aðgengilegt fyrir alla. Þú getur stjórnað tækjunum þínum frá öllum stöðum, sem þýðir að þú þarft ekki að fara úr sófanum til að deyfa lýsinguna og getur séð í snjallsímanum hver kíkir í heimsókn, þ.e. ef þú ert með dyrabjöllu frá Hombli. Smáforritið er fáanlegt í iOS og Android. Smelltu hér til að vita meira um forritið og hvernig hægt er að sækja það.

Þú getur séð íslenskar leiðbeiningar fyrir uppsetningu á smáforriti hér.


Nánar um valdar Hombli vörur:

Hombli Smart Doorbell 2 dyrabjalla

Sjáðu og talaðu við gesti með Hombli Smart 2 dyrabjöllunni. Með Hombli snjallforritinu er einfalt að biðja sendilinn að skilja pakkann eftir hjá nágrönnunum til dæmi, ef þú ert ekki heima.

Hombli Smart Doorbell 2 gengur þráðlaust í allt að 4 mánuði, en einnig er hægt að nýta rafmagnstengi fyrir dyrabjöllur. (Þráðlaus notkun er miðuð við 10 virkjanir daglega með 10-13 sek myndbandi) Upptökur eru geymdar á SD korti (selt sér) eða í skýaþjónustu (selt sér). Skýaþjónusta Hombli er staðsett í Frankfurt, Þýskalandi, þar sem persónuvernd er tekin alvarlega og gögnin eru einungis ætluð þér.

Þú getur séð uppsetningarmyndband og leiðbeiningar fyrir uppsetningu frá Hombli hér (á ensku).

Smelltu hér til að skoða vöruna á elko.is. En dyrabjallan er til hvít og svört.

Hombli hátalari fyrir dyrabjöllu

Þú getur keypt aukalega hátalara fyrir dyrabjölluna svo að þú heyrir hringingu frekar en fá bara tilkynningu í símann þegar einhver dinglar. Þú stingur hátalaranum beint í innstungu og uppsetning er mjög auðveld. Sjá nánar hér.


Hombli smart fjölnotaskynjari

Snjallvæddu heimilið með Hombli Smart fjölnotaskynjara. Tengist við Hombli bluetooth brú.

Rafhlaða Skynjarinn er með rafhlöðu sem endist í allt að eitt ár.

Fjölnotaskynjari Hægt er að tengja Hombli fjölnotaskynjara við Hombli brú. Fjölnotaskynjarinn sendir þér tilkynningu í símann um leið og hann greinir hreyfingu á hurð eða glugga. Hægt að er að nota fjölnotaskynjarann til að kveikja á öðrum snjalltækjum eins og Hombli snjallperu eða senda þér tilkynningu ef að gluggi er opinn og það er rigning út.

Hombli persónuvernd Hombli virða persónuvernd. Skýjaþjónusta Hombli er vernduð hjá Amazon og netþjónar eru í hýsingu í Frankfurt, Þýskalandi þar sem gerð er mikil krafa á persónuvernda staðla. Hombli er einnig GDPR vottaðir.

ATH! Hombli brú seld sér! Sjá nánar um fjölnotaskynjarann hér og Hombli Bluetooth brú hér. En einnig er að hægt að kaupa sett sem inniheldur Brú, hreyfiskynjara og fjölnotaskynjara.


Hombli innandyra öryggismyndavél

Með Hombli öryggismyndavélinni er hægt að fylgjast með öllu, allan sólarhringinn, í skörpum Full HD myndgæðum. Með Hombli snjallforritinu geturðu fylgst með í beinni, farið yfir myndir og fengið tilkynningar ef myndavélin nemur hreyfingar. Auðvelt er að setja myndavélina upp og stjórna með snjallforritinu.

Upptökur eru geymdar á SD korti (selt sér) eða í skýaþjónustu (selt sér). Skýaþjónusta Hombli er staðsett í Frankfurt, Þýskalandi, þar sem persónuvernd er tekin alvarlega og gögnin eru einungis ætluð þér. Öryggismyndavélin sendir tilkynningar í símann ef hún nemur hreyfingarog með innbyggða hátalaranum er til dæmis hægt að biðja hundinn um að fara úr sófanum.

Hombli öryggismyndavélin er fáanleg hvít og svört.


Hombli úti öryggismyndavél

Með Hombli úti öryggismyndavélinni er hægt að fylgjast með öllu, allan sólarhringinn, í skörpum Full HD myndgæðum. Myndavélin er með hreyfiskynjara og þú getur fengið tilkynningar í símann þegar hún skynjar hreyfingu fyrir utan heimilið. Einnig er hægt að fylgjast með í beinni og farið yfir myndir með Hombli snjallforritinu.

Upptökur geta verið geymdar á SD korti (selt sér) eða í skýjaþjónustu (selt sér). Skýaþjónusta Hombli er staðsett í Frankfurt, Þýskalandi, þar sem persónuvernd er tekin alvarlega og gögnin eru einungis ætluð þér.

Uppfært 10. september 2022

Deila
Stafrænn ráðgjafi ELKO