ELKOELKO
ELKOELKO

Verum viðbúin

Skrifað 5. nóvember 2026

Þriggja daga viðbúnaður! Ertu með allt til alls?

Almannavarnir mæla með því að hvert heimili geti séð fyrir grunnþörfum sínum í að minnsta kosti þrjá daga (72 klukkustundir) ef truflanir verða á grunnþjónustu.

Það þarf ekki að vera flókið að undirbúa sig og litlu hlutirnir geta skipt miklu máli.

Hvað er gott að eiga til taks?

🔋 Hleðslubanki: Ef rafmagnið fer af er gott að geta haldErt þú viðbúin(n) ef eitthvað kemur upp á?

Hvað myndir þú gera ef rafmagnið færi af, netsambandið dytti út eða þú þyrftir að vera heima í nokkra daga án hefðbundinnar þjónustu?

Almannavarnir hafa gefið út bæklinginn Verum viðbúin þar sem farið er yfir einfaldar og mikilvægar leiðir til að undirbúa heimilið fyrir óvæntar aðstæður.

Markmiðið er ekki að skapa ótta heldur að minna okkur á aðið símanum og öðrum mikilvægum raftækjum hlaðnum.

🔦 Vasaljós og rafhlöður: Örugg og áreiðanleg lýsing er mikilvæg þegar rafmagn er ekki til staðar.

📻 Útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum: Ef net- og símasamband liggur niðri getur útvarp verið mikilvæg upplýsingaveita. Rás 2 er neyðarrás RÚV.

💧 Vatn og matur: Gott er að eiga nægar birgðir af drykkjarvatni og geymsluþolnum mat sem þarf litla eða enga eldun.

🩹 Sjúkragögn og nauðsynjar: Skyndihjálpartaska, nauðsynleg lyf, hlý föt og hreinlætisvörur ættu einnig að vera til staðar.

💵 Reiðufé: Ef greiðslukerfi liggja niðri getur verið mikilvægt að geta greitt fyrir nauðsynjar með reiðufé.

Góður undirbúningur byrjar heima

Það er ekki nóg að eiga réttu hlutina – það er líka mikilvægt að vita hvar þeir eru og hvernig á að nota þá.

Ræddu við heimilisfólkið um hvernig þið mynduð bregðast við rafmagnsleysi eða öðrum óvæntum aðstæðum. Hafið mikilvæg símanúmer aðgengileg og ákveðið hvernig þið getið haldið sambandi ef fjarskipti raskast.

Það þarf ekki að gera allt í einu. Mikilvægast er að byrja.

Við hjá ELKO viljum hjálpa þér að vera betur undirbúin(n) með praktískum búnaði sem getur komið sér vel þegar á reynir.

Kynntu þér ráðleggingar Almannavarna og skoðaðu hvað þú getur gert til að auka öryggi á þínu heimili.

Lestu bækling Almannavarna á verumvidbuin.is.

Deila