ELKOELKO
ELKOELKO

Vinsælir ferðafélagar

Skrifað 1. mars 2023

Ertu á leið í ferðalag og íhugar að pikka upp nýjan ferðafélaga á leiðinni út? Við höfum tekið saman lista yfir vinsælustu ferðafélagana sem eru keyptir í ELKO á Keflavíkurflugvelli. Muna einhverjar vörur af þessum lista rata í handfarangurinn þinn og bæta upplifun þína á meðan ferðalaginu stendur?


Heyrnartól

Hvort sem þú leitast eftir heyrnartólum sem gera flugferðina sjálfa þægilegri, heyrnartólum fyrir börn eða ódýrum heyrnartólum til þess að eiga til vara – til dæmis ef þín týnast eða eru rafmagnslaus – þá er um nóg að velja. Hér eru tvö atriði sem gott er að hafa í huga áður en þú velur þér heyrnartól:

Er mini-jack tengi á símanum?

Flestir snjallsímar eru ekki með mini-jack tengi og því gert ráð fyrir að þú tengir heyrnartól í gegnum Bluetooth eða fjárfestir í millistykki til að breyta útLightning eða USB-C yfir í mini-jack.

Hvað er ANC / Active hljóðeinangrun?

Ekki láta umhverfishljóð trufla þig. Heyrnartól með Active hljóðeinangrun (e. ANC eða Active Noise cancellation) eru með hljóðdempandi eiginleika. Þessi tækni hjálpar til við einbeitingu t.d. við að hlusta á tónlist, hlaðvörp og símtöl í háværu umhverfi.


Við tókum saman vinsælustu heyrnartólin sem eru seld í ELKO á Keflavíkurflugvelli.

Apple AirPods Pro 2. kynslóð (2022)

AirPods Pro 2. kynslóð eru þráðlaus heyrnartól sem bjóða upp á hágæða tækni ásamt tvisvar sinnum betri hljóðeinangrun en fyrri kynslóðin. Með Adaptive Transparency er hægt að hleypa umhverfishljóðum í gegn en þessi stilling kemur einnig í veg fyrir óþægileg hljóð eins og sírenur eða há hljóð úr borum – henta því fullkomlega í flugi. Auðvelt er að stjórna heyrnartólunum með snertingu. Strjúktu upp eða niður til að hækka og lækka, smelltu til að spila eða gera hlé á tónlist eða til að svara símtölum og skella á. Með langri snertingu er hægt að skipta á milli ANC hljóðeinangrunar eða Adaptive Transparency. Heyrnartólin endast í allt að sex klukkustundir með kveikt á ANC hljóðeinangrun eða 30 klukkustundir með aðstoð hleðsluhylkis.Skoða Airpods Pro nánar á elkodutyfree.isog önnur Apple airpods hér.

Bose NC700 þráðlaus heyrnartól

NC700 þráðlausu heyrnartólin frá Bose eru með 11 hljóðeinangrandi stillingum, Google Assistant/Amazon Alexa raddstýringu og fjórum hljóðnemum fyrir skýrari og betri hljóm. Bose NC700 heyrnartólin eru með allt að 20 klst. þráðlausum hlustunartíma og fullhlaðast á einungis 2,5 klst. Hægt er að nota heyrnartólin líka með snúru. Bose NC700 eru fáanlegsilfurlituðogsvört.

JBL Tune 130 þráðlaus heyrnartól

Hlustaðu á uppáhalds tónlistina þína án truflana með JBL Tune 130 þráðlausu heyrnartólunum með ANC hljóðeinangrun, 4 hljóðnemum og allt að 40 klukkustunda rafhlöðuendingu. Nýttu þér hentuga eiginleika með talþjóni og smáforriti. Hlustaðu á tónlist allan daginn með allt að 40 klukkustunda rafhlöðuendingu og þú þarft ekki að hafa áhyggjur af svita eða regni þar sem heyrnartólin eru með IPX4 skvettuvörn. Sjá nánar hér.

Xqisit heyrnartól

Xqisit snúrutengd heyrnartól í eyru með mini jack tengi. Sjá nánar hér.

Bose QuietComfort 45 heyrnartól

Bose QuietComfort 45 þráðlaus heyrnartól veita skýran hljóm og þykkan, djúpan bassa. Með ANC hljóðeinangrun og Bose hljóðtækni sem er þekkt fyrir gæði sín. Rafhlaðan endist út allan daginn með allt að 24 klst rafhlöðuendingu. Sjá nánar hér.

Sony 1000XM5 þráðlaus heyrnartól

Vertu í þínum eigin heimi með Sony WH-1000XM5 þráðlausu heyrnartólunum. Tveir örgjörvar og átta hljóðnemar framkalla eina mest framúrskarandi hljóðeinangrun sem finna má. DSEE – Extreme er sérhannaður búnaður fyrir XM5 heyrnartólin og framkalla hágæða hljóm. Símtöl eru kristaltær og rafhlöðuending allt að 30 klukkustundir. Fjórir sérstakir hátalarar eru fráteknir fyrir símtöl sem skilar röddinni þinni enn skýrari til viðmælanda. Heyrnartólin styðja Google og Alex ásamt því að styðja aðra snjalleiginleika á borð við Instant Pause. Instant Play. sem stöðvar tónlist sjálfkrafa þegar að heyrnartólin eru tekin af og byrjar spilun um leið og þau eru aftur sett á höfuðið. Sjá nánar á dutyfree.elko.is

Sennheiser Momentum 4 þráðlaus heyrnartól

Sennheiser Momentum 4 þráðlausu heyrnartólin varpa skýrum hágæða hljóm með Sennheiser Signature Sound. Minnkaðu umhverfishljóð hvar sem er með ANC virkri hljóðeinangrun. Allt að 60 klst. rafhlöðuending. Með hraðhleðslu þarf einungis að hlaða heyrnartólin í 10 mínútur svo þau endist sex klukkustundir. Ef heyrnartólin eru fjarlægð stöðva þau afspilun sjálfkrafa og slökkva á sér eftir 15 mínútna biðstöðu til að spara rafhlöðuna. Sjá nánar hér.

JBL T210 heyrnartól

JBLT210 heyrnartólin eru þægileg og gefa mjög góðan hljóm. Heyrnartólin eru með flatri snúru sem gerir það að verkum að þau flækjast ekki. Þrjár stærðir af töppum fylgja með. Sjá nánar hér.

Bose QuietComfort Earbuds II þráðlaus heyrnartól

Njóttu þess að hlusta á uppáhalds lögin þín í þægindum og án truflana með Bose QuietComfort Earbuds II þráðlausu heyrnartólunum. Virka hljóðeinangrunin minnkar umhverfishljóð og CustomTune tæknin bætir hljóminn. Hlustaðu í allt að 24 klukkustundir á einni hleðslu og vertu óhræddur við vatnsskvettur með IPX4 skvettuvörninni. Heyrnartólin eru fáanleg í svörtu og hvítu. Sjá nánar á dutyfree.elko.is.

Samsung Galaxy Buds2 þráðlaus í-eyra heyrnartól

Samsung Galaxy Buds2 þráðlaus heyrnartól veita hágæða hljóm með ANC hljóðeinangrun. Þau eru með IPX2 vatnsvörn, Bluetooth 5.2 tengingu, PowerShare hleðslutækni og allt að 8 + 21 klst rafhlöðuendingu.

Er rafhlaðan að klárast í heyrnartólunum eftir langan dag? Engar áhyggjur, Galaxy Buds2 styðja þráðlausa hleðslu milli tækja með PowerShare tækni sem virkar með studdum Samsung snjallsímum. Hlustaðu í allt að 8 klst samfleytt og í allt að 29 klst með hleðslu frá hleðsluhylkinu. Skoða allar útgáfur af Buds2.


Topp 10 heyrnartólin 2022-2023
  • Apple AirPods þráðlaus í-eyra heyrnartól

  • Apple AirPods Pro þráðlaus í-eyra heyrnartól

  • JBL T210 heyrnartól

  • Apple in-ear heyrnartól með Lightning tengi

  • Sony In-ear heyrnartól MDR-EX15

  • Bose NC700 þráðlaus heyrnartól

  • Sennheiser CX300s heyrnartól

  • Sony 1000X M5 þráðlaus heyrnartól

  • Samsung Galaxy Buds2 í eyra þráðlaus heyrnartól

  • Happy Plugs Air 1 Go þráðlaus heyrnartól

Sony WH1000X M4 heyrnartól
Skross ferðahleðsla
Samsung Galaxy SmartTag

Hægt er aðpanta vöru og sækja í brottfaraverslun ELKO á Keflavíkurflugvelli á leiðinni út.

Panta og sækja

FERLIÐ

  • Þú skoðar vöruframboð í ELKO á Keflavíkurflugvelli hér á heimasíðunni. Ef þú ert með fyrirspurn um vöruframboð er hægt að senda fyrirspurn á flugstod@elko.is

  • Þú setur það sem þú vilt panta í körfu

  • Ef þú velur að skoða körfu kemur upp ‘Karfan þín‘ þar sem þú getur eytt út línum, breytt fjölda, eytt körfu eða haldið áfram að versla

  • Ef þú vilt senda pöntun til ELKO smellir þú á afgreiðsla.

Þú gefur upp flugnúmer, nafn og tölvupóstfang

Smellir á greiðslu- og afhendingarmátar

Pöntun er sótt í brottfaraverslun. Sjá opnunartíma hér.

Greiðslumáti: eingöngu er hægt að greiða þegar vara er sótt upp í flugstöð

Panta verður vörur með að lágmarki sólarhrings fyrirvara

Ekki er mælt með því að panta vörur með meira en viku fyrirvara

PÖNTUNARNÚMER

  • Þegar pöntun er staðfest er sendur staðfestingarpóstur á uppgefið tölvupóstfang

  • Hægt er að prenta út staðfestingarpóst eða sýna starfsmanni tölvupóstinn í símanum þínum

Ef það kemur upp að þú fékkst ekki pöntunarstaðfestingu, er hægt að senda okkur fyrirspurn á FLE@elko.is eða hringja í síma 575-8272.

Ath. ef vara sem þú pantaðir er ekki á pöntunarstaðfestingunni sem er á pokanum þínum þegar þú sækir hann þá hefur hún ekki verið til þegar pöntunin var tekin saman. Þú getur spurt starfsmann um hvort varan sé komin aftur í sölu þar sem ný sending gæti hafa komið í hús eftir að pöntun var tekin til.

Deila
Stafrænn ráðgjafi ELKO