ELKOELKO
ELKOELKO

Vöfflur með sódavatni

Skrifað 23. mars 2021

Hefur þú prófað að baka vöfflur og nota sódavatn í deigið? Sú aðferð er notuð til þess að fá extra mjúkar vöfflur en samt fá stökkt yfirborð.

Þessi uppskrift er aðeins öðruvísi en hefðbundin íslensk vöffluuppskrift. Í henni er bæði sódavatn og grískt jógúrt en hægt er að nota súrmjólk í staðinn fyrir gríska jógúrtið ef það er ekki til staðar.

Ef þú vilt hafa vöfflunar extra stökkar eru nokkrar aðferðir fyrir það listaðar upp neðst í blogginu.

Hráefni:

  • 2 egg

  • 4 tsk lyftiduft

  • 2 msk sykur

  • 1 tsk vanilludropar

  • 1/4 tsk salt

  • 2 msk smjör (brætt og látið kólna)

  • 3,0 dl mjólk

  • 4,0 dl hveiti

  • 1 dl grískt jógúrt

  • 1,2 dl sódavatn (bragðlaust)

Aðferð:

  • Settu öll hráefnin, fyrir utan sódavatnið í blandara og notaðu PULSE stillinguna 3-4x þangað til að deig myndast.

  • Bættu við sódavatnið og notaðu PULSE stillinguna 2-3x þangað til allt er blandað saman eða hrærðu saman með skeið eða þeytara.

  • Ef þér finnst deigið of þunnt getur þú bætt við örlitlu af hveiti.

  • Hitaðu vöfflujárnið, notaðu olíusprey ef þess þarf en ef tefal húð á járninu er góð ætti það að vera óþarfi.

  • Tilvalið að bera fram með sultu og rjóma, tilbúnu Betty Crocker kremi eða ís.


Viltu stökkari vöfflur?

Til þess að fá stökkar vöfflur getur þú til dæmis skipt út 1/2 dl af hveiti fyrir kartöflumjöl eða maizena mjöl. Aðrir setja 1-2 tsk af Amaretto (Möndlu líkjör) út í deigið. Þriðja aðferðin er að búa til ‘buttermilk’ með því að finna til magn af mjólk, bæta við 1 tsk af sítrónusafa og leyfa því að standa á borði í 10-15 mín áður en deigið er sett saman.


Ef þú þarft að græja þig upp fyrir þessa uppskrift getur þú skoðað vöfflujárn, blandara og Sodastream tæki á elko.is.

Deila
Stafrænn ráðgjafi ELKO