ELKOELKO
ELKOELKO

Stafrænn ráðgjafi ELKO

ELKO hefur tekið í notkun nýjan stafrænan ráðgjafa sem hjálpar viðskiptavinum að finna upplýsingar og lausnir hraðar og auðveldara. Ráðgjafinn er hannaður til að styðja við val á raftækjum og lausnum út frá raunverulegum þörfum, hvort sem um er að ræða heimilistæki, tölvubúnað eða snjalltæki.

Notkunarskilmálar fyrir stafrænan ráðgjafa ELKO

Hannað og prófað með notendur í huga

Stafræni ráðgjafi ELKO var þróaður í samstarfi með Snjallgögn og byggir á lausnum þeirra ásamt mállíkönum frá OpenAI. Lausnin er hönnuð til að veita skýra og notendavæna leiðsögn við vöruval. Við unnum með Resonate að hönnun og notendaprófunum til að tryggja að virkni, flæði og framsetning væri skýr og einföld.

Ráðgjafi með verkfæri

Með innbyggðum verkfærum getur ráðgjafinn sýnt þér vörur, borið þær saman og leitað að leiðbeiningum, upplýsingum og umsögnum um það sem þú ert að skoða. Með þessu hjálpar það þér að velja réttu vöruna á upplýstan og markvissan hátt.

Viðbót við þjónustu, ekki staðgengill

Markmið ELKO er að nýta tækni til að bæta þjónustu, ekki skipta henni út. Stafræni ráðgjafinn vinnur samhliða starfsfólki ELKO og auðveldar viðskiptavinum að taka upplýstar ákvarðanir, hvar og hvenær sem er.

Stafrænn ráðgjafi ELKO