Notkunarskilmálar fyrir stafrænan ráðgjafa ELKO
1. Almennt um þjónustuna og eðli hennar
Stafrænn ráðgjafi ELKO ehf., kt. 561000-3280, (hér eftir „ELKO“) er sjálfvirkt spjallmenni sem knúið er af gervigreind (hér eftir „spjallmennið“). Tilgangur spjallmennisins er að veita almennar upplýsingar, leiðbeiningar og aðstoð við vöruval á vefsvæði ELKO. Með því að hefja samtal við spjallmennið staðfestir þú að hafa lesið, skilið og samþykkt þessa skilmála. Vakin er athygli á því að samskipti fara fram við gervigreindarkerfi en ekki manneskju.
2. Upplýsingagjöf, bindandi áhrif og verð
Spjallmennið veitir upplýsingar byggðar á fyrirliggjandi gagnagrunnum, vörulýsingum á hverjum tíma, almennri þekkingu sem gervigreinarkerfið inniheldur og gögnum af völdum vefsíðum. Svör og upplýsingagjöf spjallmennisins fela ekki í sér bindandi kauptilboð, loforð eða skuldbindingu af hálfu ELKO. Spjallmennið er stöðugt að læra og getur komið upp að upplýsingar séu óljósar eða rangar. Upplýsingar um verð, framboð og eiginleika vara eru eingöngu til viðmiðunar sem geta breyst án fyrirvara. Þær upplýsingar, þar á meðal um verð og afhendingu, sem birtast í kaupferli á elko.is þegar viðskipti eiga sér stað eru þær einu sem gilda um samningssamband aðila.
3. Takmörkun ábyrgðar
ELKO ber ekki skaðabótaábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem kann að hljótast af notkun spjallmennisins eða rangri, ónákvæmri eða villandi upplýsingum, eða túlkun á upplýsingum, sem það veitir. Upplýsingar frá spjallmenninu koma ekki í stað formlegra notkunarleiðbeininga eða öryggisviðvarana framleiðanda. Ábyrgð á endanlegu vali á vöru og að hún henti tiltekinni notkun hvílir á viðskiptavini, nema starfsmaður ELKO hafi staðfest annað sérstaklega. ELKO ber jafnframt ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota spjallmennið um skemmri eða lengri tíma (t.d. vegna viðhalds, bilana, truflana eða utanaðkomandi atvika). Engin svör spjallmennisins fela í sér faglega ráðgjöf eða ábyrgðaryfirlýsingu um tiltekna vöru umfram það sem fram kemur í vörulýsingum, skilmálum og/eða lögboðinni ábyrgð.
4. Þjónustumörk og úrlausn mála
Spjallmennið hefur ekki heimild til að taka bindandi ákvarðanir eða afgreiða mál sem varða vöruskil, beitingu neytendaábyrgðar, galla, endurgreiðslur, kvartanir eða nokkra aðra þætti sem varða viðskipti og aðra þætti í mögulegu samningssambandi við ELKO. Öll slík erindi lúta almennum viðskiptaskilmálum ELKO og skulu afgreidd af þjónustuveri eða starfsfólki í verslunum. Spjallmennið tekur ekki sjálfvirkar, einstaklingsmiðaðar ákvarðanir sem hafa réttaráhrif að því er notanda varðar eða snerta hann á sambærilegan hátt.
5. Persónuvernd og vinnsla gagna
Við notkun á spjallmenninu fer fram söfnun og vinnsla upplýsinga, þar á meðal samtalssögu og tæknilegra upplýsinga (t.d. IP-tölu), í þeim tilgangi að veita þjónustuna, svara fyrirspurnum, tryggja öryggi, rekjanleika og bæta gæði og virkni spjallmennisins. Samskipti við spjallmennið (og þær persónuupplýsingar sem notendur kunna að veita í spjalli) geta verið vistuð hjá ELKO og/eða þjónustuaðilum ELKO í þeim tilgangi sem hér greinir. ELKO getur jafnframt nýtt samantekin og/eða nafnlaus gögn úr samtölum til að þróa og þjálfa spjallmennið og bæta þjónustuna. Notendur skulu aldrei leggja viðkvæmar upplýsingar í spjallið, svo sem lykilorð, greiðslukortanúmer, bankaupplýsingar eða viðkvæmar persónuupplýsingar (t.d. heilsufarsupplýsingar). Velji notandi engu að síður að senda slíkar upplýsingar, samþykkir hann að þær verði unnar í samræmi við ofangreindan tilgang, að því marki sem lög heimila. Óheimilt er að misnota spjallið eða birta ólögmætt eða ósæmilegt efni í því og kann slík misnotkun að varða við lög. Notendum er bent á að fara ekki frá opnu spjalli í sameiginlegu eða ólæstu tæki.
Vinnsla persónuupplýsinga fer fram í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Nánari upplýsingar um vinnslu, varðveislu og réttindi má finna hér: https://elko.is/um_elko/personuvernd
6. Notkun gervigreindar og þjónustuaðilar
Spjallmennið er knúið af gagnagreiningu og gervigreindartækni í þeim tilgangi að bæta og auka þjónustu ELKO. Þar sem slík tækni er í sífelldri þróun geta gæði svara verið misjöfn og svör geta verið ófullkomin eða röng. ELKO kann að nýta þjónustu vinnsluaðila og/eða undirvinnsluaðila við hýsingu, rekstur, greiningar, þróun og/eða þjálfun spjallmennisins. ELKO leggur áherslu á að miðla einungis þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru vegna framangreindra markmiða og gerir viðeigandi kröfur til vinnsluaðila um öryggi og trúnað. Gögn eru ekki varðveitt lengur en þörf er á með hliðsjón af tilgangi vinnslunnar og lagaskyldum ELKO.
7. Breytingar á þjónustu og skilmálum
ELKO áskilur sér rétt til að uppfæra eða breyta þessum skilmálum hvenær sem er, sem og að takmarka, breyta eða loka fyrir aðgang að spjallmenninu án fyrirvara, t.d. vegna viðhalds, öryggisástæðna eða uppfærslna.
Skilmálar þessir voru síðast uppfærðir 16. mars 2026