Spurt og svarað
Við höfum tekið saman nokkrar algengar spurningar og svör við þeim. Ef þú finnur ekki svar við spurningu þinni hér fyrir neðan getur þú spurt okkur í gegnum netspjallið hér á elko.is, með því að senda skilaboð í gegnum facebook síðu ELKO eða með því að senda okkur tölvupóst.
Spurt og svarað
Hvar sé ég hver er viðgerðaraðili fyrir vörur
Hvernig get ég nálgast kaupnótur?
Get ég pantað vöru í vefverslun og sótt í verslun?
Hvar sé ég skilmála ELKO?
Ef ég vil sækja um starf í ELKO hvert sendi ég umsókn?
Hvar sé ég vöruúrval ELKO í Flugstöð Leifs Eiríkssonar?
Hversu lengi gildir gjafakort ELKO?
Hversu lengi gildir inneignarnóta frá ELKO?
Ég keypti kaffivél sem ég er ekki sátt/ur við, get ég skilað/skipt?
Hvar sæki ég um styrk?
Hvað er opið lengi?
Skilgreiningar og fræðsla
Þvottavélar - Kolalaus mótor: Ólíkt öðrum mótorum þá þarf minna viðhald við kolalausa mótora og reynast þeir öruggari og hagkvæmari í notkun. Bæði eyðir vélin minna rafmagni, endist lengur og er hljóðlátari.
Þvottavélar - Flutningsstífur: Flutningsstífur eru aftan á þvottavélum svo að tromlan sé ekki á hreyfingu í flutningum. Fjarlægja þarf flutningsstífur áður en vél er notuð í fyrsta skiptið, sjá nánar í leiðbeiningum sem fylgja þvottavél við kaup.
Hverju skal leita eftir þegar þvottavél er valin? Þvottageta, vinding, raki eftir vindingu, kerfi, stjórnborð, hljóðstyrkur og gerð á mótor er einhvað sem horfa skal til þegar maður er ákveða hvaða þvottavél hentar. Kolalausan mótor er að finna í mörgum þvottavélum og eru þær hljóðlátari og lifa lengur. Þvottageta er á milli 5 til 11 kg. Því stærri tromla og meiri þvottageta því meiri þvott getur þú þvegið í einu og getur þannig sparað pening. í vindingu er vatnið þvingað úr þvottinum, því hærri snúningshraði því minni raki er í fötunum eftir þvott. Stærð á tromlu hefur einnig áhrif á rakastig þvottsins. Raki fyrir A í vindingu þarf að vera 45% eða minni. Sumir vilja eingöngu vélar sem hafa skjá, skjár sýnir í sumum tilfellum þvottatíma, snúningshraða, hitastig, þvottakerfi og margt fleira. Á sumum þvottavélum getur þú tímaræst kerfið t.d. látið kerfið byrja eftir 5-6 tíma svo að hún er nýbúin þegar þú kemur heim úr vinnu.
Þurrkarar - Varmadælutækni: Þurrkari með varmadælutækni tekur rakan úr tromlunni og breytir honum aftur í heitt loft sem er sent í gegnum tromluna til að minnka rafmagnsnotkun.
Frystiskápar - NoFrost: Sjálvirk afhríming, gerir það að verkum að þú þarft aldrei að afhríma skápinn þar sem hrím myndast ekki innan á hann.
Uppþvottavélar - AquaStop: AquaStop er vatnöryggi sem tryggir að það verður ekki vatnsleki frá uppþvottavélinni.
Sjónvörp - Smart TV: Býður upp á fjöldan allan af netforritum (e. apps) sem þú getur notað í sjónvarpinu með innbyggðu WiFi. T.d. YouTube og Netflix.
Sjónvörp - OLED tækni: OLED sjónvarp er ný gerð af skjá (Organic Light Emitting Diodes) sem gefur frábær myndgæði og einnig er skjárinn þynnri en bæði LCD og Plasma. Perfect Black og djúpir litir sem aðeins OLED skjáir geta gefið kost á.
Sjónvörp - HDR (High Dynamic Range): Með hjálp endurnýjunartíðninnar sér HDR um að dekkri hlutar myndarinnar verði dekkri og bjartari hlutarnir bjartari. Þú færð því enn skarpari mynd og fleiri litbrigði.
Tölvur - SSD: SSD diskur er hraðvirkur diskur sem tryggir að tölvan er fljót að kveikja á sér og starta upp stýrikerfinu.
Tölvur - SSHD: SSHD er hybrid diskur sem styttir tímann sem það tekur að ræsa tölvuna ásamt því að tryggja almennt hraðari vinnslu.
Símar - IP68 stuðull: Vara með IP68 stuðul er vatnsvarinn mv 1,5 metra og 30 mínútur og ryk og óhreinindavarinn. Þegar talað er um vatnsvarinn síma er mv ferskvatn, ef síminn fer í vatn sem er salt eða með klór þarf að skola símann svo að gúmmíþétting eyðist ekki.
Ofnar og eldavélar - Þrjú mismunandi hreinsikerfi:
1. Gufuhreinsikerfi: (Aqua Clean, Steam Clean og eflaust fleiri nöfn). Hreinsunin byggir á því að setja ca ½ lítra af vatni í ofnskúffuna neðst í ofninum og stilla á undirhita og ca 100°C (stundum er sérstakt kerfi á ofninum/eldavélinni). Látið vinna í 40-60 mínútur og strjúkið síðan innan úr ofninum óhreinindin sem nú ætti að vera auðvelt. Emeleringin í dag er það góð að þetta virkar vel í flestum tilfellum.
2. Catalytic hreinsikerfi: Þetta er klæðning úr sérstöku efni (oft aðeins í hluta af ofnrými) og þekkist vel á því hve gróft hún er og er stundum kölluð fílaskinn. Oftast er þetta í bakinu en einnig stundum í hliðum og toppi en aldrei í botninum. Þetta efni dregur mjög vel í sig fitu sem það brennir svo innan úr sér þegar ofninn er hitaður í 220°C í ca 30 mínútur. Mælt er með að keyra þetta kerfi að minnsta kosti einu sinni í mánuði en ræðst auðvitað af notkun eins og gefur að skilja. Ef ofninn nær ekki að hreinsa sig við þetta þá þarf að láta hann kólna niður svo klæðningin geti dregið í sig súrefni og keyra svo kerfið að nýju. Þegar ofninn hefur kólnað niður má svo strjúka óhreinindi úr botninum.
3. Pyrolytic hreinsikerfi: Þetta er það sem talið er best og öflugast og byggir á því að sérstakt kerfi sem hitar ofninn í yfir 400°C sé keyrt í 1-2 tíma. Ofninn læsir sér við þessa aðgerð (öryggisþáttur) og það verður í mörgum tilfellum að fjarlægja bæði ofnstiga og skúffur. Það er sérstaklega tekið fram í leiðbeiningum og oftast eru stigar og skúffur sem þola þessa meðferð með dökkri áferð. Þegar ofninn hefur svo náð að kólna á að vera hægt að sópa öskunni í burtu.