Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Apollo City Pro 2022 rafmagnshlaupahjól

A1008P
Apollo City Pro 2022 er endurbætt útgáfa af Apollo City. Apollo City Pro 2022 er með IP66 vatnsvörn, sjálfgræðandi slöngulaus dekk og 48 km drægni.
120 kg burðargeta
Allt að 25 km/klst hraði
Allt að 61 km drægni
2x 500W mótor
10" dekk
IP66 vottun
189.995 kr.
Upplýsingar

Rafmagnshlaupahjól sem er tilvalið fyrir borgina og þá sem þurfa að komast fljótt á milli staða. Vegur aðeins 29,5 kg og klífur upp flesta hóla og hæðir og passar einnig undir skrifborðið. Hægt er að brjóta rafmagnshlaupahjólið saman.

Létt hönnun
Apollo City 2022 Pro rafmagnshlaupahjólið er létt og vegur aðeins 29,5 kg og því tilvalið til þess að setja undir skrifborðið. Hægt er að brjóta hjólið saman og einnig eru ljós að framan og aftan ásamt stefnuljósum fyrir betra öryggi.

Gæði í fyrirrúmi
Öll rafmagnshlauphjól frá Apollo eru áreynsluprófuð af nákvæmni í Kanada áður en þau eru sett í sölu á almennan markað.

Klífur hóla og hæðir
Apollo City Pro 2022 er öflugt en létt rafmagnshlaupahjól með 2x 500W mótor. Með þessum mótor kemst hlaupahjólið hraðar og getur keyrt upp allt að 20° halla. 120 kg burðageta og kemst upp í 25 km/klst.

Tvöfalt Skálabremsukerfi
Skálabremsur þurfa minna viðhald en aðrar bremsur og er aðal bremsan að aftan en bremsan að framan meira hugsuð sem öryggisbremsa. Regen bremsan eða endurhleðslu bremsan hægir á hjólinu og hleður umleið rafhlöðuna. Hægt er að stilla viðnám Regen bremsunnar í innri stillingum hjólsins.

Lítið fyrir mikið
Með 48V, 53 x 21700 (4500 mAh) lithium rafhlöðu kemst Apollo City Pro 2022 allt að 61 km á einni hleðslu. Hægt er að fullhlaða hjólið á 6 klukkustundum.

Þreföld fjöðrun
Apollo City Pro 2022 er útbúið þrefaldri fjöðrun svo ferðalagið sé þægilegt. 10" tommu dekk að framan og aftan. Hjólin eru slöngulaus og sjálfgræðandi með geli að innan sem fyllir í göt sem koma á dekkin.

Stjórnborð
Hægt er að sjá upplýsingar um hraða, drægni, hleðslu rafhlöðu og margt fleira. Breyttu kraftinum eða skiptu á milli mílna eða metrakerfisins alveg eins og þú vilt hafa það.

Helstu eiginleikar
- Hámarks afl mótors: 2x 500W
- Hámarks halli: 20°
- 48V rafhlaða
- Allt að 6 klst hleðslutími
- IP66 vörn - Hvað er IP vottun?

Stærð og þyngd
- 29,5 kg að þyngd
- Hámarks burðargeta: 120 kg

Nokkur atriði sem þarf að passa upp á fyrir fyrstu notkun
- Nauðsynlegt er að athuga loftþrýsting í dekkjum og passa að fylgja leiðbeiningum framleiðanda um þrýsting, en oftast er miðað við 50 psi þrýsting. Ef ekki er nægt loft í dekkjum eykur það verulega líkur á að dekk springi. 
- Farðu vel með rafhlöðuna á hjólinu. Það þarf að hlaða hjólið upp í 100% hleðslu áður en þú notar hjólið í fyrsta skipti. Ákjósanleg notkun á rafhlöðu er að hlaða hana áður en hún tæmist alveg. Einnig skal passa uppá að hlaða hjólið reglulega yfir vetrartímann eða þegar hjólið er ekki í reglulegri notkun til að lengja líftíma rafhlöðunnar.

Rafhlaða
Til að hámarka líftíma rafhlöðu eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga.
- Ekki er mælt með að nota hjólið í mjög miklu frosti og ekki geyma hjólið yfir vetrartímann í óupphituðu húsnæði.
- Hlaða skal hjólið reglulega yfir vetrartímann þegar hjólið er í geymslu.
- Aldrei skal hlaða hjól á afviknum stað – mælt er með hleðslu þar sem umgangur er og hægt að hafa auga með hjólinu. Rafhlaða í hlaupahjólum er stór og öflug og getur stafað af henni eldhætta eins og með aðrar rafhlöður.

Höggskemmdir
Mikilvægt er að fara varlega við notkun á rafmagnshlaupahjólum, en hér eru nokkur dæmi sem geta orsakað höggskemmdir á þeim:
- Þegar keyrt er óvarlega upp á götukanta
- Þegar verið er að stökkva fram af götuköntum og/eða úr hæð (ef höggið er of mikið þá skemmast demparar og stýrið getur skemmst eða brotnað – rafmagnshlaupahjól eru ekki hönnuð til að stökkva á þeim eða gera kúnstir).

Vatnsskemmdir
Ef það er verið að nota hjólin í mikilli bleytu þarf að gæta þess að þau fái að þorna inni í hlýju rými, þ.e. standi ekki úti og/eða í kaldri geymslu. Mikilvægt er að þurrka hjól áður en það er sett í hleðslu.
- Varast skal að keyra í polla og beita þarf almennri skynsemi þar sem hjólið er ekki vatnshelt.
- Eftir geymslutíma er mikilvægt að athuga loftþrýsting í dekkjum.

Eiginleikar
Farartæki
Strikamerki
6095853731748
Framleiðandi
Apollo
Litur
Grár
Hleðslugeta (mAh)
21700
Hleðslutími (klst)
6
Hámarkshraði (km/klst)
25
Hámarks halli (°)
20
Hjólastærð (″)
10
Vörn (IP staðall)
66
Drægni (km)
61
Burðargeta (kg)
120
Þyngd (kg)
29.5
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður